Morgunblaðið - 17.11.2020, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2020
Aga- og úrskurðarnefnd
KSÍ vísaði í gær frá kærum KR og
Fram um ákvörðun stjórnar KSÍ
að hætta keppni á Íslandsmótinu
þegar nokkrar umferðir voru
óleiknar. Þótt niðurstaðan hafi
verið fyrirsjáanleg þá get ég
tæplega leynt vonbrigðum mín-
um.
Grátt leiknir KR-ingar
misstu af Evrópusæti en áttu
leik til góða. Framarar urðu af úr-
valsdeildarsæti á markatölu. Í
skugga kórónuveirufaraldursins
taldi stjórn KSÍ það hins vegar
ógerlegt að halda mótinu áfram
á þessari stundu. Það er skilj-
anlegt, aðgerðir yfirvalda gerðu
hreyfingunni erfitt fyrir.
Óskiljanlegt er að KSÍ hafi
talið það lífsnauðsynlegt að
klára mótið fyrir 1. desember.
Næsta Íslandsmót hefst ekki fyrr
en í apríl á næsta ári og varla til
það mót í heiminum sem hefur
lengra undirbúningstímabil. Það
er greinilega ekki síður nauðsyn-
legt að Lengjubikarinn geti farið
fram óáreittur á nýju ári.
Óskiljanlegra er að úrskurð-
arnefndin vísaði málinu frá á
grundvelli þess að hún getur ekki
tekið til endurskoðunar ákvarð-
anir stjórnar KSÍ. Nú hafa félögin
nokkurra daga umhugsunarfrest
til að ákveða hvort þau áfrýi til
áfrýjunardómstóls sambandsins.
Margir óttast að hann taki sama
pól í hæðina og vísi málunum frá
án efnislegrar umfjöllunar.
Óskiljanlegast yrði ástandið
ef sú yrði raunin og þá yrði mað-
ur að spyrja sig hver tilgangurinn
með þessum kæruleiðum væri
yfir höfuð? Ef dómstóllinn kemst
að þeirri niðurstöðu að ekki sé
hægt að endurskoða ákvarðanir
stjórnar þá er staðan einfaldlega
sú að stjórn KSÍ er hafin yfir leik-
reglurnar og knattspyrnuhreyf-
ingunni ber að lúta vilja hennar
og geðþótta.
BAKVÖRÐUR
Kristófer
Kristjánsson
kristoferk@mbl.isÞjálfarar í efstu deild karla og
kvenna í körfuknattleik sendu frá
sér sameiginlega yfirlýsingu í gær
þar sem þeir skoruðu á yfirvöld að
leyfa æfingar afreksíþróttafólks.
Ekki stendur til að leyfa æfingar
íþróttaliða með breytingum á sótt-
varnaaðgerðum sem taka gildi 18.
nóvember en deildirnar hafa verið í
hléi frá því í byrjun október. Þjálf-
ararnir skora á stjórnvöld að leyfa
æfingar hjá liðum í efstu deildum
frá og með næsta miðvikudegi en
yfirlýsinguna má sjá í heild sinni á
mbl.is/sport/korfubolti.
Áskorun til
stjórnvalda
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss.
Bikarmeistari Arnar Guðjónsson,
þjálfari Stjörnunnar í Garðabæ.
Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ hefur
ákveðið að vísa frá kærum Fram
og KR um þá ákvörðun stjórnar
KSÍ að hætta keppni á Íslands-
mótinu 2020.
KR missti af Evrópusæti en liðið
átti leik til góða þegar keppni var
hætt. Fram missti af sæti í efstu
deild á markatölu og ákváðu bæði
félög að kæra ákvörðun stjórnar
KSÍ um að hætta keppni á mótinu.
Bæði félög eiga kost á því að
áfrýja málinu til áfrýjunardómstóls
sambandsins og hafa þau þrjá
virka daga til þess.
mbl.is/Íris
Frávísun KR-ingar og Framarar
geta enn áfrýjað úrskurðinum.
Kærum Fram
og KR vísað frá
oft gerist hjá börnum. Heildartalan
er töluvert lægri en í gögnunum
fyrir árið 2018 en þá var hún
154.410.
Hér er rétt að taka fram að þessi
tala á eingöngu við um íþróttaiðkun
sem er undir hatti sérsambanda
ÍSÍ. Fleiri tegundir íþróttagreina
eru stundaðar hér á landi og falla
ekki undir Íþrótta- og ólympíu-
sambandið.
Einnig má taka fram að hjá
Íþróttasambandi fatlaðra eru 1.042
iðkanir. Undir ÍF eru nokkrar
íþróttagreinar sem myndi þá
hækka töluna í greinum eins og
sundi og frjálsum sem dæmi.
ÍSÍ birtir einnig tölur yfir iðk-
anir í íþróttagreinum utan ÍSÍ og
er heildartalan 14.634. Langhæsta
talan er undir lið sem er einfald-
lega kallaður almenningsíþróttir og
undir það falla 10.192. Klifur nýtur
vinsælda en þar eru 1.788 og 821
var í skvassi árið 2019. Rúbbí nýtur
vinsælda í löndum í nokkrum
heimsálfum en á Íslandi voru ein-
ungis 68 sem stunduðu íþróttina
hérlendis árið 2019 enda framboðið
af liðum og æfingum líklega ekki
mikið.
Mun fleiri karlar en konur
Karlar og drengir eru 60,5%
þeirra sem stunda íþróttir innan
ÍSÍ og konur og stúlkur eru því
39,5%. Í gögnunum má einnig sjá
skiptinguna ef miðað er við 18 ára
og eldri. Mikill munur er á fjölda
karla og kvenna 18 ára og eldri.
Konurnar eru ekki nema 26.345
sem er 16,5% en karlarnir eru
52.709 sem er 33%. Kynjahlutfallið
er hins vegar annað hjá þeim sem
eru 17 ára og yngri. Þar eru 36.654
konur sem gerir 23% en karlarnir
43,797 sem gerir 27,5%.
Áframhaldandi aukning
í vinsælustu greinunum
Um 30 þúsund æfa knattspyrnu Hátt í 15 þúsund eru í greinum utan ÍSÍ
FRÉTTASKÝRING
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Knattspyrnusamband Íslands er
sem fyrr með langflesta iðkendur
samkvæmt upplýsingum frá sér-
samböndunum sem Íþrótta- og ól-
ympíusamband Íslands sendi frá
sér. Samkvæmt þeim tölum eru
29.998 sem lögðu stund á knatt-
spyrnu á Íslandi árið 2019. Aukn-
ing varð í knattspyrnunni á milli
ára um liðlega tvö þúsund manns.
Golfsambandið nær einnig yfir
tuttugu þúsund en fjöldi þeirra sem
skráðir eru í golfklúbba landsins er
21.215 manns og þar er einnig
aukning á milli ára.
Nokkuð langt er í næstu íþrótta-
grein samkvæmt tölunum. 14.141
leggur stund á fimleika í landinu og
hjá Landssambandi hestamanna
eru 12.530 skráðir samkvæmt þess-
um tölum. Önnur sérsambönd eru
með færri en tíu þúsund en næst
koma körfuknattleikur, handknatt-
leikur, skotíþróttir og badminton.
Allar þessar greinar ná meira en
fimm þúsund iðkendum en iðk-
endum í körfuknattleik hefur fjölg-
að um rúmlega 1.000 á milli ára. Á
sama tíma hefur iðkendafjöldi í
handknattleik staðið í stað frá
árinu 2018.
Næst á eftir koma rótgrónar
íþróttagreinar hérlendis: frjálsar
íþróttir, sund og blak.
Fækkun milli ára
Heildartalan er 144.871 í 33
greinum. Í gögnunum er talað um
144.871 iðkun en sami einstakling-
urinn gæti verið talinn oftar en
einu sinni ef hann leggur stund á
fleiri en eina íþróttagrein eins og
Fjöldi iðkenda eftir íþróttagreinum
Íþróttagrein Fjöldi iðkenda
Knattspyrna 29.998
Golf 21.215
Fimleikar 14.141
Hestaíþróttir 12.530
Körfubolti 8.313
Handbolti 7.685
Skotfi mi 5.509
Badminton 5.011
Frjálsíþróttir 4.397
Sund 3.951
Blak 3.317
Íþróttagrein Fjöldi iðkenda
Mótorhjól a- og
vélsleðaíþróttir 2.793
Dans 2.714
Hnefaleikar 2.114
Siglingar 1.895
Tennis 1.854
Hjólreiðar 1.801
Karate 1.568
Skíðaíþróttir 1.503
Akstursíþróttir 1.467
Kraftlyftingar 1.375
Taekwondó 1.254
Íþróttagrein Fjöldi iðkenda
Skylmingar 1.248
Íþróttir fatlaðra 1.042
Júdó 1.028
Listskautar 951
Lyftingar 917
Bogfi mi 736
Íshokkí 633
Glíma 592
Borðtennis 464
Þríþraut 432
Keila 423
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Golf Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Guðrún Brá Björgvinsdóttir hafa lengi
verið á meðal fremstu kylfinga landsins enda báðar atvinnukylfingar.
Guðmundur
Þórður Guð-
mundsson, þjálf-
ari íslenska
karlalandsliðsins
í handknattleik,
hefur valið þá 35
leikmenn sem
koma til greina í
hópinn sem tek-
ur þátt á heims-
meistaramótinu í
Egyptalandi sem fram fer í janúar á
næsta ári. HM fer fram dagana 13.-
31. janúar en Ísland leikur í F-riðli
keppninnar ásamt Portúgal, Alsír
og Marokkó. Fyrsti leikur liðsins
verður fimmtudaginn 14. janúar
þegar Ísland mætir Portúgal í
Kaíró. Af þeim 35 leikmönnum sem
Guðmundur valdi eru þeir Óskar
Ólafsson og Elvar Ásgeirsson þeir
einu sem ekki hafa leikið A-
landsleik. Þá er Stefán Rafn Sig-
urmannsson, leikmaður Pick Sze-
ged í Ungverjalandi, ekki í hópnum
en Alexander Petersson, sem varð
fertugur í sumar, er í hópnum.
Í tilkynningu sem Handknatt-
leikssambandið sendi frá sér í gær
segir að reikna megi með að 22-24
leikmenn verði í æfingahópi sem
kemur saman í janúar. Af þeim fara
svo 20 til Egyptalands.
Hópinn má sjá í heild sinni á
mbl.is/sport/handbolti.
Guðmundur
valdi 35 í
æfingahópinn
Guðmundur
Þ. Guðmundsson
Markvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson er á leið
til sænska knattspyrnufélagsins Norrköping á
reynslu en þetta staðfesti hann í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
Hákon, sem er einungis 19 ára gamall, sló í gegn
með nýliðum Gróttu í úrvalsdeildinni, Pepsi Max-
deildinni, í sumar en hann hefur verið orðaður við
stórlið FH og KR undanfarna daga.
„Ég fer út til Svíþjóðar á fimmtudaginn og ég er
virkilega spenntur,“ sagði Hákon í samtali við
Morgunblaðið.
„Þeir fylgdust með mér í allt sumar og vilja fá að
skoða mig betur núna. Ég verð úti í viku og það
verður virkilega gaman að fá að æfa með Norrköp-
ing.
Markmannsþjálfarinn þeirra er markmanns-
þjálfari hjá sænska landsliðinu og það verður gam-
an sjá hvaða sýn hann hefur á hlutina.
Ég geri mér grein fyrir því að það að æfa með
þeim þýðir ekkert endilega að mér verði boðinn
samningur og ég lít fyrst og fremst á þetta sem frá-
bært tækifæri,“ sagði Hákon sem á að baki 18 leiki
í efstu deild og tvo leiki fyrir yngri landslið Íslands.
Framtíð markvarðarins er í óvissu en Grótta féll
úr efstu deild á dögunum.
„Ég vil spila áfram í efstu deild en hvort af því
verður þarf að koma betur í ljós.
Draumurinn er að sjálfsögðu að fara í atvinnu-
mennsku einn daginn og hugurinn stefnir eins
langt og kostur er,“ bætti ungi markvörðurinn við í
samtali við Morgunblaðið.
Íslendingarnir Ísak Bergmann Jóhannesson og
Oliver Stefánsson eru samningsbundnir Norrköp-
ing og þá fóru Skagamennirnir Jón Gísli Eyland
Gíslason og Guðmundur Tyrfingsson til reynslu til
félagsins um síðustu helgi. bjarnih@mbl.is
Frá Seltjarnarnesi til Svíþjóðar
Morgunblaðið/Eggert
Markvarsla Hákon Rafn og Nikulás Val Gunn-
arsson eigast við í leik Fylkis og Gróttu í sumar.