Morgunblaðið - 17.11.2020, Blaðsíða 26
SVÍÞJÓÐ
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Knattspyrnuþjálfarinn Elísabet
Gunnarsdóttir og lærikonur hennar
í sænska úrvalsdeildarfélaginu
Kristianstad leika í Meistaradeild
Evrópu á næstu leiktíð í fyrsta sinn í
sögu félagsins.
Kristianstad var stofnað árið 1998
en Elísabet tók við þjálfun félagsins
árið 2009 og var tímabilið í ár hennar
tólfta sem þjálfari liðsins.
Liðið hafnaði í þriðja sæti deild-
arinnar og komst ansi nálægt því að
enda í öðru sætinu en þetta er besti
árangur félagsins í efstu deild.
„Ég er ótrúlega sátt við árangur
tímabilsins,“ sagði Elísabet, eða
Beta eins og hún er jafnan kölluð, í
samtali við Morgunblaðið í gær.
„Ég verð samt að viðurkenna það
að ég er hrikalegt svekkt líka, eins
og staðan er í dag [gær], þar sem við
töpuðum 2:1-fyrir Linköping í loka-
umferðinni á eigin heimavelli. Á
sama tíma tapaði Rosengård 1:0 á
heimavelli fyrir Växjö þannig að ef
við hefðum unnið og gert okkar gegn
Linköping hefðum við hafnað í öðru
sæti deildarinnar.
Við komumst yfir í leiknum, 1:0,
og mér fannst við spila leikinn nægi-
lega vel til þess að vinna hann. Það
var því gríðarlega svekkjandi að
enda á að tapa leiknum og ég er satt
best að segja alveg ofboðslega
svekkt eins og sakir standa. Það er
nefnilega stór munur á því að enda í
öðru eða þriðja sæti, þegar kemur að
undankeppi Meistaradeildarinnar,
og ég trúi því varla enn þá að við höf-
um klikkað á þessu.
Ef einhver hefði hins vegar sagt
mér það fyrir tímabilið að við ættum
alvöru möguleika á öðru sæti deild-
arinnar í lokaleik tímabilsins og á
lokamínútunum, þá hefði ég eflaust
ekki trúað því enda Gautaborg og
Rosengård lang sterkustu lið deild-
arinnar á pappírunum. Við erum
komin ansi nálægt þessum liðum
finnst mér og ég þarf sjálf að koma
mér niður á jörðina á næstu dögum
og vera ánægð með þetta,“ bætti El-
ísabet við.
Rólegra en oft áður
Beta, sem er 43 ára gömul, hefur
glímt við veikindi á tímabilinu en
hún greindist með ristil í sumar,
sársaukafullar smáblöðrur af völd-
um hlaupabólu-ristilveiru, og það
hefur haft áhrif á hennar störf á leik-
tíðinni.
„Verkaskiptingin er mun betri en
hún var þar sem ég hef þurft að deila
verkefnunum meira á tímabilinu en
gengur og gerist vegna veikindanna.
Það hefur gert okkur að betra þjálf-
arateymi fyrir vikið og aðstoð-
arþjálfararnir Björn Sigurbjörnsson
og Johanna Rasmussen hafa verið
algjörlega geggjuð, sem og Kristín
Hólm Geirsdóttir, þrekþjálfari liðs-
ins.
Þau hafa tekið að sér mjög stór
hlutverk innan félagsins og valdið
þeim ótrúlega vel. Við erum búin að
vinna þetta saman sem ein liðsheild
ef svo má segja og ég hef sjálf lært
að vera betri stjórnandi í þjálf-
arateymi á leiktíðinni. Þetta hefur
verið gríðarlega lærdómsríkt og á
sama tíma hef ég líka slakað betur á
en gengur og gerist.
Ég tók reyndar UEFA Pro-
þjálfaragráðuna á dögunum frekar
óvænt þar sem ég fékk frest til að
skila stærstu verkefnunum frá mér á
næstu tveimur árum og planið var
því að gera hlé á náminu. Ég er bara
svo þrjósk að mér fannst ég þurfa að
klára þetta á sama tíma og hinir og
það hefur smá stress fylgt þessu öllu
saman en þetta hefur engu að síður
verið mun rólegra tímabil en und-
anfarin ár.
Líkaminn lætur mann vita þegar
hlutirnir virka ekki og ég hef unnið
allt of mikið í gegnum tíðina. Á sama
tíma á ég mjög erfitt með að hafa lít-
ið fyrir stafni og þegar allt kemur til
alls þá er ég dálítið þessi týpa sem
vill vera í smá ströggli. Ég er hins
vegar ekki orðin nægilega góð af
mínum veikindum og ræð þess
vegna illa við það að vera að gera of
mikið.“
Framar björtustu vonum
Þrátt fyrir frábæran árangur fé-
lagsins á tímabilinu hefur gengið á
ýmsu í herbúðum liðsins.
„Úrslitin voru framar öllum von-
um þar sem við vorum í miklum
meiðslavandræðum á ákveðnum
tímapunkti á leiktíðinni. Við misst-
um út alla varnarlínuna okkar sem
dæmi og þurftum því að búa til nýja
varnarlínu. Við færðum miðjumenn
niður í miðvarðastöðurnar og feng-
um líka inn nýja leikmenn.
Það gekk algjörlega framar von-
um að koma þessum leikmönnum
inn í ný hlutverk. Heilt yfir höfum
við gengið í gegnum erfið meiðsli á
tímabilinu en það hefur líka verið
virkilega gaman að sjá unga leik-
menn sem eru uppaldar í félaginu
koma inn í þetta og spila eins og al-
gjörir englar.“
Elísabet ætlar sér að taka eitt ár í
viðbót í Kristianstad og meta svo
stöðuna.
„Frá því að ég tók við liðinu hef ég
alltaf hugsað um sænska meist-
aratitilinn og ég mun halda áfram að
reyna á meðan möguleikinn er til
staðar. Ég mun að sjálfsögðu reyna
aftur á næstu leiktíð og svo skoðar
maður stöðuna. Ég get alveg við-
urkennt að það er farið að kitla mig
að prófa eitthvað allt annað og ég
mun taka mér góðan tíma í að hugsa
næstu skref. Hvar þau verða tekin
þarf svo bara að koma í ljós en það
styttist í það,“ bætti Elísabet við í
samtali við Morgunblaðið.
Kveðjustund í kortunum
hjá Betu í Kristianstad?
Elísabet Gunnarsdóttir er á leið í Meistaradeildina eftir tólf tímabil í Svíþjóð
Ljósmynd/@_OBOSDamallsv
Þjálfarar Elísabet Gunnarsdóttir ræðir við leikmenn sína á meðan Björn Sigurbjörnsson fylgist með í bakgrunni.
Elísabet Gunnarsdóttir
» Fæddist 2. október 1976.
» Knattspyrnuþjálfari í Sví-
þjóð.
» Var að ljúka sínu tólfta tíma-
bili sem þjálfari Kristianstad.
» Kristianstad fór í bikarúrslit
árið 2019 en tapaði þar fyrir
Gautaborg.
» Var kjörin þjálfari ársins í
sænsku deildinni árið 2017.
» Hér heima stýrði hún ÍBV,
Breiðabliki og Val áður en hún
hélt utan eftir tímabilið 2008.
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2020
Danmörk
Kolding - Holstebro............................. 32:32
Ágúst Elí Björgvinsson varði 1 skot í
marki Kolding.
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 4 mörk
fyrir Holstebro.
Svíþjóð
Guif - Redbergslid ............................... 31:32
Daníel Freyr Ágústsson varði 15 skot í
marki Guif.
Skövde - Lugi ....................................... 32:24
Bjarni Ófeigur Valdimarsson var ekki í
leikmannahópi Skövde.
HANDBOLTI
Anton Sveinn McKee og liðsfélagar
hans í Toronto Titans eru úr leik á ISL-
mótaröðinni í sundi þetta árið en und-
anúrslitin kláruðust í Búdapest í gær.
Anton, sem hefur staðið sig frábær-
lega í deildinni undanfarnar vikur, var
sjötti í 100 metra bringusundi í gær er
hann synti á tímanum 58,04 sek-
úndur. Íslands- og Norðurlandamet
hans í greininni er 56,30 sekúndur.
Toronto Titans endaði í fjórða sæti og
komst því ekki í úrslitakeppnina en að-
eins tvö lið fara þangað. Nú tekur við
hjá Antoni að undirbúa sig fyrir Ól-
ympíuleikana í Tókýó næsta sumar þar
sem hann er með keppnisrétt.
Spænski knattspyrnumaðurinn
Gonzalo Zamorano er genginn til liðs
við ÍBV en þetta staðfesti félagið á
samfélagsmiðlum sínum í gær.
Zamorano kemur til félagsins frá Vík-
ingi í Ólafsvík og skrifaði hann undir
tveggja ára samning við Eyjamenn.
Sóknarmaðurinn kom fyrst til landsins
árið 2017 þegar hann samdi við Hugin
í 2. deildinni en hann hefur einnig leik-
ið með ÍA í efstu deild hér á landi.
Hann á að baki 20 leiki í efstu deild en
hann skoraði 11 mörk í 20 leikjum með
Víkingum í 1. deildinni í sumar.
Fyrrverandi heimsmeistari í 1.500
metra hlaupi, Elijah Manangoi frá
Keníu, hefur verið úrskurðaður í
keppnisbann næstu tvö árin. Man-
angoi mætti ekki í lyfjapróf í þrígang
og fer af þeim sökum sjálfkrafa í bann
samkvæmt reglum Alþjóðafrjáls-
íþróttasambandsins. Bannið er aftur-
virkt til 22. desember 2019 og hefur
Manangoi þá afplánað tæpt ár. Man-
angoi fékk silfurverðlaun í greininni á
HM árið 2015 og gerði enn betur á HM
í London 2017 og sigraði í 1.500 metra
hlaupinu. Hann er 27 ára gamall.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson, úr
Golfklúbbi Reykjavíkur, er með keppn-
isrétt á lokamótinu í Áskorendamóta-
röð Evrópu. 45 efstu kylfingarnir á
stigalista mótaraðarinnar fá keppnis-
rétt á lokamótinu. Guðmundur hafnaði
reyndar í 46. sæti á listanum en kemst
inn á mótið vegna forfalla. Mikið er
undir því nú eru 20
sæti í boði í Evr-
ópumótaröðinni á
næsta ári.
Mótið hefst á
fimmtudaginn
kemur og fer fram
á eyjunni Mall-
orka. Haraldur
Franklín Magn-
ús, einnig úr
GR, hafnaði í
85. sæti á
stigalist-
anum.
Eitt
ogannað
Knattspyrnumaðurinn Kristinn
Jónsson hefur skrifað undir þriggja
ára samning við KR. Bakvörðurinn,
sem er þrítugur, gekk í raðir KR
fyrir tímabilið 2018 en hann er upp-
alinn hjá Breiðabliki. Kristinn varð
Íslandsmeistari með KR á síðustu
leiktið og þá var hann valinn besti
leikmaður Íslandsmótsins sam-
kvæmt einkunnagjöf Morgunblaðs-
ins sumarið 2019. Hann á að baki
204 leiki í efstu deild þar sem hann
hefur skorað tólf mörk og þá á
hann einnig að baki átta A-
landsleiki fyrir Ísland.
Framlengdi í
Vesturbænum
Morgunblaðið/Eggert
KR Kristinn Jónsson, til hægri,
verður áfram í Vesturbænum.
Knattspyrnukonan Anna Rakel Pét-
ursdóttir er á heimleið frá Svíþjóð
en hún hefur skrifað undir tveggja
ára samning við Val og mun því spila
á Hlíðarenda á næstu leiktíð.
Anna er 22 ára miðjumaður og
kemur frá Uppsala þar sem hún lék
á nýliðnu tímabili. Hún er uppalin
hjá Þór/KA og lék með liðinu til 2019
þegar hún fór til Linköping í Sví-
þjóð. Hún var Íslandsmeistari með
norðankonum sumarið 2017 og á að
baki 81 leik í efstu deild og tíu mörk.
Þá á hún að baki sjö A-landsleiki fyr-
ir Ísland.
Anna Rakel
á heimleið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Endurkoma Anna Rakel mun spila
með Völsurum á næstu leiktíð.