Morgunblaðið - 17.11.2020, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2020
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ný verslun Góða hirðisins verður
opnuð á fimmtudag á jarðhæð ný-
byggingar sem er á horni Baróns-
stígs og Hverfisgötu. Þar eru fjög-
ur verslunarrými, veitingarými,
bílakjallari og 38
íbúðir sem eru
allar seldar nema
ein.
Fyrir er Góði
hirðirinn með
verslun með not-
aða hluti í Fells-
múla 28. Um
60% sölunnar
hafa verið í smá-
vöru en meðal
varnings er barnavara, raftæki og
húsgögn.
Ruth Einarsdóttir, rekstrarstjóri
Góða hirðisins, leggur áherslu á
fjölbreytt vöruframboð.
„Verslunin verður í 300 fermetra
rými og vöruframboðið þverskurður
af því sem hefur verið í boði hjá
Góða hirðinum. Rýmið er töluvert
minna en í Fellsmúlanum en við
munum gera okkar besta til að hafa
breytilegt vöruframboð dag frá
degi,“ segir Ruth.
Fjölbreyttur hópur
„Hugmyndin er að koma sem flestu
í endurnot og eins að mæta þörfum
viðskiptavinarins. Við sjáum fyrir
okkur fjölbreyttan hóp viðskiptavina
í miðbænum. Það er til dæmis
margt ungt fólk að hefja búskap í
miðbænum og það er ekki endilega
að leita að hönnunarvöru heldur
horfir meira í hagkvæmni og verð.
Við viljum höfða til þessa hóps og
líka þeirra sem eru að leita að hönn-
unarvöru, á borð við tekkhúsgögn,“
segir Ruth.
Húsgögn úr Airbnb-íbúðum
Hún segir mikla sölu á nýjum hús-
gögnum í ár skila sér í auknu fram-
boði á notuðum húsgögnum.
„Fólk hefur hugað að nær-
umhverfi sínu í faraldrinum, betr-
umbætt og tekið til á heimilinu.
Þannig að við erum að sjá mikið
koma inn af húsgögnum. Eins eru
greinilega margir að hætta útleigu
Airbnb-íbúða og selja íbúðirnar,
sem birtist í kommóðum og nátt-
borðum sem koma til okkar. Það
má lesa margt úr framboðinu sem
kemur hingað,“ segir Ruth um
framboðið. Góða hirðinum berist nú
mikið af vel með förnum hús-
gögnum.
Jafnframt verði lögð áhersla á að
bjóða gott framboð af notuðum
bókum í versluninni.
„Við ætlum að vera með bækur
enda hefur það verið okkur hug-
leikið að halda bókinni á lofti. Við
fáum óheyrilegt magn bóka til
okkar. Fólk er að taka niður bóka-
hillurnar á heimilunum og margir
hlusta orðið á hljóðbækur, til
dæmis hjá Storytel. Þannig að við
munum klárlega hafa bækur til
sölu og eins raftæki, ljós og lampa
og eldhústæki,“ segir Ruth.
Spurð hvernig leigusamningur
hafi verið gerður á Hverfisgötunni
segir hún samningsformið hafa
verið kallað „uppsprettu,“ sem á
ensku er gjarnan nefnt pop-up.
„Við höfum tækifæri til að vera
hér áfram ef versluninni verður
vel tekið,“ segir Ruth.
Vörumóttaka bakdyramegin
Spurð um bílastæðamál hjá versl-
uninni segir Ruth að hægt verði að
taka á móti vörum í innkeyrslunni
baka til, Barónsstígsmegin.
Það sé vissulega áskorun að
reka verslun með fáum stæðum.
„Ég byrjaði að vinna í mið-
bænum 18 ára, hóf mína starfsemi
þar og hef ætíð haft miklar mætur
á miðbænum. Þar sem eru ný
verslunarrými hefur þó dálítið
gleymst að gera ráð fyrir bílastæð-
um. Á hinn bóginn lifir orðið stór
hópur fólks bíllausum lífsstíl, hugs-
ar umhverfisvænt og endurnýtir
hlutina. Málið snýst um að vera í
tengslum við almennings-
samgöngur,“ segir Ruth og nefnir
að um 400 bílastæði séu í bíla-
húsum í göngufæri við verslunina
á Hverfisgötu.
Opna verslun á Hverfisgötu
Morgunblaðið/Eggert
Á Hverfisgötu Líf er að færast í nýbyggingar á þéttingarreitum.
Góði hirðirinn opnar útibú í nýbyggingu á Hverfisgötu Nýtur góðs af miklu
framboði af vel með förnum húsgögnum Ungt fólk kaupir sífellt meira notað
Ruth Einarsdóttir
17. nóvember 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 137.05
Sterlingspund 180.5
Kanadadalur 104.28
Dönsk króna 21.74
Norsk króna 14.974
Sænsk króna 15.791
Svissn. franki 149.86
Japanskt jen 1.3066
SDR 194.6
Evra 161.9
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 195.3887
Hrávöruverð
Gull 1878.2 ($/únsa)
Ál 1918.0 ($/tonn) LME
Hráolía 43.2 ($/fatið) Brent
Rútufyrirtækið Teitur Jónasson
mun skila hagnaði á yfirstandandi
ári þrátt fyrir þau miklu skakkaföll
sem fylgt hafa útbreiðslu kórónu-
veirunnar og lömun ferðaþjónust-
unnar í landinu. Þetta kemur fram í
yfirlýsingu sem fylgir nýbirtum árs-
reikningi fyrirtækisins fyrir árið
2019. Þar kemur fram að tekjustofn-
ar fyrirtækisins séu fjölbreyttir og
að það hafi skipt sköpum fyrir fyrir-
tækið að hafa tryggt sér langtíma-
samning um akstur fyrir fatlaða á
höfuðborgarsvæðinu.
Gera ráð fyrir hröðum bata
Í yfirlýsingunni segir að áhrifa
faraldursins muni hins vegar gæta á
efnahag fyrirtækisins. Tekjur séu
minni meðan lokað sé fyrir komu
ferðamanna til landsins. Hins vegar
geri stjórn félagsins ráð fyrir hröð-
um bata þegar ferðalög hefjist að
nýju milli landa. Bent er á að fjár-
hagsstaða félagsins sé sterk, vegna
ábyrgrar efnahagslegrar stjórnar
undanfarinna ára og markvissra að-
gerða til að sporna við áhrifum af
veirufaraldrinum. Eigið fé félagsins
hafi verið 600 milljónir um áramót
og eiginfjárhlutfallið 76%.
Samkvæmt ársreikningi síðasta
árs skilaði félagið 35,9 milljóna
króna hagnaði og námu tekjur tæp-
um 902 milljónum króna á árinu. Var
hagnaðurinn þó mun minni en árið
2018 þegar hann nam 143,6 milljón-
um en það ár var velta félagsins 843
milljónir króna. Eignir Teits Jónas-
sonar í árslok 2019 námu 805 millj-
ónum króna og höfðu minnkað um
68 milljónir frá fyrra ári. Skuldir
voru 194 milljónir króna og höfðu
dregist saman um 59,5 milljónir
króna frá fyrra ári. ses@mbl.is
Teitur
mun skila
hagnaði
Sterk eiginfjár-
staða hjá fyrirtækinu
Morgunblaðið/Golli
Gamalgróið Teitur Jónasson hyggst
standa af sér storminn sem nú geisar.
Skoðið fleiri innréttingar á
innlifun.is
Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700
Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga innlifun.is ALVÖRU ELDHÚS
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Fasteignafélagið Reitir hagnaðist
um 889 milljónir króna á þriðja árs-
fjórðungi, samanborið við 629 millj-
ónir króna á sama fjórðungi í fyrra.
Leigutekjur drógust saman um tæp-
ar 300 milljónir og rekstrarkostnað-
ur hækkaði um 50 milljónir. Stjórn-
unarkostnaður dróst saman um 9
milljónir milli tímabila.
Það eru hins vegar matsbreyting-
ar fjárfestingareigna sem gera
gæfumuninn og eru þær jákvæðar
um 1.327 milljónir króna á tíma-
bilinu, samanborið við 192 milljónir
yfir sama tímabil 2019. Rekstrar-
hagnaður er því 2.920 milljónir en
var 2.095 milljónir í fyrra.
Það sem af er ári nemur tap Reita
335 milljónum króna, samanborið við
2.554 milljóna króna hagnað yfir
fyrstu níu mánuði síðasta árs. Það
sem af er ári hafa matsbreytingar
fjárfestingareigna verið neikvæðar
um 787 milljónir króna en voru já-
kvæðar um 1.990 milljónir á fyrstu
níu mánuðum síðasta árs. Rekstrar-
tekjur hafa dregist saman um 633
milljónir króna milli ára.
Bjartsýni um uppgang næstu ár
Reitir gera ráð fyrir að áhrif kór-
ónuveirufaraldursins verði mestar á
félagið á yfirstandandi ári og að
fréttir af þróun virks bóluefnis auki
bjartsýni um að staðan muni batna
strax á næsta ári. Hins vegar er gert
ráð fyrir að áhrifa faraldursins muni
gæta farm á árið 2022. Mest séu
áhrifin á hótel og gististaði og lang-
stærstur hluti tapaðra tekna tengist
starfsemi af því tagi.
Í lok þriðja ársfjórðungs námu
fjárfestingareignir Reita 147 millj-
örðum króna og höfðu lækkað um 2
milljarða frá áramótum. Eigið fé fé-
lagsins var 45,5 milljarðar og hafði
lækkað um rúma tvo milljarða frá
áramótum. Skuldir félagsins stóðu í
106 milljörðum og höfðu hækkað um
rúma tvo milljarða frá áramótum.
Eiginfjárhlutfall félagsins var 30%
og hafði lækkað um 1,4 prósentur frá
áramótum.
Hagnaður Reita 889 milljónir króna
Segja skilyrði fyrir öflugri jólaverslun innanlands vera að skapast
Atvinna