Morgunblaðið - 17.11.2020, Page 11

Morgunblaðið - 17.11.2020, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2020 Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Vel var tekið á móti flugmönnum Norlandair sem í gær fóru fyrstu ferðirnar vestur á firði, á grunni samninga við Vegagerðina um reglu- legt áætlunarflug félagsins þangað. Í morgunsárið var flogið til Bíldudals og eftir hádegi á Gjögur. Flogið var á Beechcraft King Air 200, níu sæta vél, og við stjórnvölinn voru flug- stjórarnir Bragi Már Matthíasson og Fáfnir Árnason. Spennandi tækifæri „King Air-vélarnar eru hannaðar sérstaklega fyrir stuttar flugbrautir, rétt eins og eru á Vestfjörðum. Þá er vélin búin jafnþrýstibúnaði og öllum öðrum nauðsynlegum tækjum. Við sjáum ekki betur en þetta dæmi eigi alveg að ganga upp,“ segir Friðrik Adolfsson, framkvæmdastjóri Nor- landair, í samtali við Morgunblaðið. Afgreiðsla Norlandair er hjá Air Icelandair Connect á Reykjavíkur- flugvelli og bókunarkerfi félaganna samtvinnuð. Flug til Bíldudals er á áætlun sex daga vikunnar, alla daga nema laugardaga. Friðrik segir spennandi tækifæri felast í flugi á þann áfangastað. Atvinnulífið á sunnanverðum Vestfjörðum, fiskeldi og ferðaþjónusta, sé í sókn sem aftur kalli á góðar samgöngur. Flugvélin haggaðist ekki Gjögurflugið verður tvisvar í viku, á mánudögum og föstudögum, og því má lýsa sem loftbrú byggðar í Árnes- hreppi við umheiminn. Nú þegar langt er liðið á nóvember er leiðin úr Bjarnarfirði og norður úr orðin þungfær. Hún lokast svo með öllu þegar lengra líður á veturinn og þá verður fólk og frakt ekki flutt öðru- vísi en loftleiðina. „Við að minnsta kosti byrjum með flug á Strandir hvort á sínum enda vikunnar,“ segir Friðrik. Hann bætir við að þessu megi svo alltaf breyta ef þarfir og óskir heimamanna séu aðrar. Einn farþegi var í fluginu norður á Gjögur í gær, Gunnsteinn Gíslason, oddviti Árneshrepps til áratuga og máttarstólpi í sinni sveit. Hann var raunar síðasti farþeginn suður með Erni, sem fór í sína síðustu ferð á Gjögur fyrir helgina. „Ég hef sjaldan farið þægilegra flug frá Reykjavík hingað á Gjögur en í dag. Vélin hreinlega haggaðist ekki,“ sagði Gunnsteinn við blaða- mann. „Já, við hér í Árneshreppi eig- um mikið undir fluginu. Síðasta vet- ur var landleiðin hingað lokuð vegna snjóa um langan tíma og þá var flug- ið eina leiðin sem hingað var fær. Svo raskast flugsamgöngur líka oft vegna veðurs, en flugmennirnir reyna og koma þegar fært er.“ Flotinn verður stækkaður Höfuðstöðvar Norlandair eru á Akureyri, en þaðan er félagið með áætlunarferðir til Grímseyjar, Þórs- hafnar og Vopnafjarðar. Einnig vikulegt flug til Constable Point, öðru nafni Scoresbysunds, á austur- strönd Grænlands. Þá sinnir flug- félagið ýmsu þjónustuflugi á Græn- landi, svo sem vegna námuvinnslu og vísindarannsókna, og notar til þess vélar af gerðinni Twin Otter. Þrjár slíkar eru í flota félagsins, auk King Air-vélarinnar sem fyrr er nefnd. Til stendur að bæta við nýrri vél þegar kórónuveirunni slotar og þar er horft til þess að kaupa Dash-200, sem tek- ur 37 farþega. Verður hún vænt- anlega eitthvað notuð í Vestfjarða- flugið, sem Friðrik Adolfsson segir að heildstætt styrki starfsemi Nor- landair til muna. Norlandair fer á nýja staði  Flogið á Bíldudal og Gjögur  Nýtt félag tekið við  Fóru fyrstu ferðirnar vestur á firði í gær  Flogið á Beech-craft King Air 200-vél  Loftbrú í afskekktar byggðir  Eiga mikið undir fluginu Morgunblaðið/Guðlaugur J. Albertsson Farkostur Beechcraft King Air 200-vél Norlandair á Bíldudalsvelli í gær. Vél sem þessi hentar vel á stuttum brautum og er góð og kraftmikil. Lokastefnan Flugbrautin á Gjögri er hér í augsýn og smurt inn á braut. Stjórnborðið Bein lína og flugið úr Reykjavík rétt um 35 mínútur. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Strandaflug Flugmennirnir Bragi Már Matthíasson, til vinstri, og Fáfnir Árnason, til hægri á Gjögri í gær. Á milli þeirra stendur Gunnsteinn Gíslason, fyrrverandi oddviti Árneshrepps og máttarstólpi í sinni sveit, sem var að blaðamanni frátöldum eini farþeginn norður. Hann kvaðst ánægður með ferðina. Úlfar Lúðvíksson tók til starfa sem lögreglustjóri á Suðurnesjum í gær. Annar lögreglustjóri tók einnig til starfa í gær en það er Grímur Her- geirsson sem tók við sem lög- reglustjóri í Vestmannaeyjum. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra skipaði lög- reglustjórana í embættin en skip- anirnar eru gerðar að undangengnu mati hæfnisnefndar. Úlfar hefur áralanga reynslu sem lögreglustjóri og sem sýslumaður. Grímur hefur víðtæka reynslu af lögreglustörfum. Hann hefur tvisv- ar verið settur lögreglustjóri á árinu 2020, síðast á Suðurnesjum. Tveir nýir lögreglu- stjórar hófu störf Skipun Grímur Hergeirsson, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Úlfar Lúðvíksson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.