Morgunblaðið - 17.11.2020, Page 14

Morgunblaðið - 17.11.2020, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Það er mikilsér-fræðidýrkun í tilverunni síðustu áratugi. Menn hafa það sem kæk að hrópa að þeir sem fá umboð sitt frá al- menningi eigi að selja það vand- meðfarna vald til sérfræðinga, sem séu að auki fullkomlega ábyrgðarlausir. Bandarískir fjölmiðlar hafa stundað það frá byrjun árs að segja Donald Trump útbreiðslustjóra kór- ónuveiru heima hjá sér. Allt sem hann hefur sagt var sam- stundis tætt þannig að fæstar fullyrðinganna áttu nokkru sinni viðkomu í munnholi Trump. Vissulega var Trump tekinn í bólinu þegar veiran bankaði. En allar þúsundir sér- fræðinganna voru í því bóli á undan honum. Fyrir þremur mánuðum sagðist Trump telja eftir samtöl sín við þá sem bestu máttu vita að fært myndi verða að kynna bóluefni til sögu vel fyrir jól. Er einhver til sem man ekki tryll- inginn sem rann á fjölmiðla vestra yfir þessari spá? En sex dögum eftir kosningar kynnti lyfjabransinn að hann væri komninn með efnin og að öryggi þeirra væri 90-95%. Það þætti kraftaverk ef NYT eða Wash- ington Post birtu frétt byggða á fullkomlega áreiðanlegri heim- ild sem hefði 5% tryggingu fyr- ir að væri að marka. En nú eiga Bandaríkjamenn og við sem lengra erum í burtu að trúa því að bóluefnin hafi orðið pottþétt þegar fimm dagar voru frá kjördegi. Við gerum ekki at- hugasemdir við það sem blýfast er á þeirri bók sem við höfum gert upp við okkur að gefa meiri tiltrú en þeim ritlingum sem koma og fara. Þar eru vís- bendingar um að almáttugur, sem við höllum okkur mörg að, hafi ekki þurft lengri tíma til að skapa heim. En það dagatal lýt- ur lögmálum og sá vari hafður á að hver dagur sé sem þúsund ár og sú góða líking er ekki daga- tal. Lyfjakompaníum treystir enginn lengra en nauðsynlegt er og þá ekki því að fimm dagar hafi ráðið úrslitum í leit að efni sem skilur heiminn frá daglegri nánd við kórónudauðann. Við höfum fengið útvarpað í okkur „staðreyndum“ æði óstöðugum þessa tæpu 10 mán- uði sem veiran hefur verið með mannkynið innan sinnar seil- ingar. Þetta er ekki sagt „sér- fræðingum“ eða öðrum til æru- taps. Okkar fólk hefur vafalaust gengið eins ærlega fram og það mátti. Það fólk var bundið af upplýsingum og getgátum sér- fræðinga víða frá. Það var þó með ólíkindum hve lengi var ætlast til þess að umheimurinn tryði marx-maóistanum sem settur var fremstur á flet SÞ í heil- brigðismálum. Við, almúginn hér og þar, þykj- umst nú orðið vita að séum við hlýðin og góð í þrjár vikur í senn þá láti veiru- drottningin með kórónuna eins og að hún sé far- in, og minnir á leikræna til- burði Grýlu ef við, börnin á öll- um aldri, sýnum okkar bestu hlið um jól. Helstu vitmenn og sérfræðingar í Grýlu segja börnum um ár og aldir að nú sé sú gamla dauð vegna yf- irgengilegrar hlýðni ungdóms- ins á hverri stund. En Grýla mætir svo fyrst á ný þegar jólin liggja í lofti. Við erum ekki búin að gleyma því að staglast var á að fólk skyldi ekki að leggja of mikið upp úr því að koma sér upp möskum og grímum. Alls ekki væri síðra að hnerra með hnykk öllu því sem úr æstri nös kæmi upp á jakka- eða peysu- ermina. Það var ekki fyrr en síðar sem upplýst var að þessi hvíta lygi hefði verið óhjá- kvæmileg íferð til að tryggja að fólkið sem þjóðin átti allt undir fengi maska. Ekki skal úr því dregið að slíkt hafi mátt rétt- læta á viðkæmasta augnabliki. En hafa má þá skoðun að hefð- um við, múgurinn, fengið slík skilaboð hefði enginn möglað. Hann Ari litli var á köflum þreytandi rétt eins og Björn Ingi þegar hann fór mest. En litli karlinn Ari setti þó aðeins fram eina ófrávíkjanlega kröfu: Þið eigið að segja mér satt. Ari myndi til dæmis spyrja hvers vegna íslenskir sporgöngu- menn smitaðra, jafnvel þeir sem renndu sér beint úr brekk- unni forðum inn í nýjan veiru- leika geti fengið stimplað heið- urskort frá „þríeykinu“ um að þeir séu útvaldir og allir vegir færir. En það gildir ekki um Boris Johnson. Um daginn böðlaði einn af þingmönnum hans sér inn á ráðherrann, bull- andi smitaður. Og öllum á óvart var Boris settur í einhverja sér- staka gerð af sóttkví, en við og þegnar hans trúðum því að hann og Trump væru í lávarða- deild smitaðra, en heimurinn yrði að halda áfram að koma í veg fyrir að Biden sleppi upp úr kjallaraholunni sem hann hefur húkt í mánuðum saman og nái sér í smit. Við vitum reyndar mörg að svokölluð sóttkví Bidens geng- ur út á það, að hann hlaupi ekki um og spyrji alla sem hann hitt- ir hvenær hann megi setjast aftur í öldungadeildina fyrst fjölmiðlar hafi úrskurðað að hann hafi náð kjöri. En auðvit- að teldi Ari að reyna mætti að segja Biden satt, ef það eru ekki of viðkvæm mál að ræða. Það á að viðurkenna að á ólíkindalegri vegferð veirunnar hafi menn ekki endi- lega verið vissir í sinni sök} Hreinskilni borgar sig E nginn kemst á áfangastað nema vita hvert ferðinni er heitið! Skýr markmið eru forsenda þess að árangur náist. Við gerð nýrrar menntastefnu hafa þau sannindi verið höfð að leiðarljósi. Ég mun í dag mæla fyrir þingsályktun um menntastefnu til ársins 2030. Það er mín von að þingheimur verði sam- stiga í því brýna samfélagsverkefni að varða menntaveginn inn í framtíðina. Meginmarkmiðið er að tryggja Íslendingum framúrskarandi menntun alla ævi. Stefnan byggist á fimm stoðum, sem saman mynda traustan grunn til að byggja á. Við viljum 1) jöfn tækifæri fyrir alla, 2) að kennsla verði í fremstu röð, 3) að nemendur öðlist hæfni fyrir framtíðina, 4) að vellíðan verði í öndvegi í öllu skólastarfi og 5) gæði í forgrunni. Undir stoðunum fimm hafa 30 áhersluþættir verið skilgreindir, sem eiga að skapa öflugt og sveigjanlegt menntakerfi – kerfi sem stuðlar að jöfnum tækifærum til náms, enda geta allir lært og allir skipta máli. Verði þingsályktunartillagan sam- þykkt verður unnin aðgerðaáætlun með árangursmæli- kvörðum til þriggja ára í senn, sem metin verður árlega. Menntastefnan var unnin í víðtæku samráði, með að- komu fjölmargra aðila úr skólasamfélaginu. Stefnumót- unin byggðist m.a. á efni og umræðum á fundum með skólafólki og fulltrúum sveitarfélaga um allt land, sam- ræðum á svæðisþingum tónlistarskóla, samstarfi við for- eldra, börn og ungmenni, atvinnulíf, Efnahags- og framfarastofnunina (e. OECD) og fleiri hags- munaaðila. Stefnudrög fengu jákvæð viðbrögð í samráðsgátt stjórnvalda, þaðan sem gagnlegar ábendingar bárust og voru þær m.a. notaðar til að þétta stefnuna og einfalda framsetninguna. Fyrir vikið er textinn aðgengilegur og skýr, sem er ein af forsendum þess að allir hlutaðeigandi skilji hann á sama hátt og sammælist um mark- miðin. Menntun er lykillinn að tækifærum framtíð- arinnar. Hún er eitt helsta hreyfiafl samfélaga og á tímum fádæma umskipta, óvissu og örra tæknibyltinga verða þjóðir heims að búa sig undir aukinn breytileika og sífellt flóknari áskoranir. Framtíðarhorfur íslensku þjóð- arinnar velta á samkeppnishæfni og sjálfbærni íslenska menntakerfisins. Velgengni byggist á vel mennt- uðum einstaklingum með skapandi og gagnrýna hugsun, félagsfærni og góð tök á íslensku og erlendum tungu- málum til að takast á við hnattrænar áskoranir. Menntun styrkir, verndar og eflir viðnámsþrótt ein- staklinga og samfélaga. Með menntastefnu verður lögð áhersla á að styrkja viðhorf Íslendinga til eigin menntunar með vaxtarhugarfar að leiðarljósi. Þekkingarleitinni lýkur aldrei og menntun, formleg sem óformleg, er viðfangsefni okkar allra, alla ævi. Lilja Dögg Alfreðsdóttir Pistill Þrautseigja og þekking, hugrekki og hamingja Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Íslands í gegnum EES-samninginn. Að lokum er það fyrirkomulag fiskveiða og er það talið mjög erfitt úrlausnar þrátt fyrir að sjávar- útvegur sé hvorki fyrir ESB né Bret- land efnahagslega fyrirferðarmikill. Vandinn felst í að samningsafstaða Breta virðist með öllu ósamrýmanleg afstöðu ESB. Aukið sjálfræði yfir lög- sögu Breta var mikilvægur liður í herferðinni til að koma Bretlandi úr Evrópusambandinu og kusu sjávar- plássin í Bretlandi í miklum mæli með úrsögninni. Á sama tíma hefur ESB gefið það út að það sé ekki í boði að gera samning sem felur ekki í sér aðgang evrópskra fiskveiðiskipa að breskum hafsvæðum enda hafa sjómenn frá Ír- landi, Spáni, Portúgal, Frakklandi, Belgíu, Hollandi og Danmörku stund- að veiðar umhverfis Bretland í ára- raðir. „Það hefur ekki tekist að minnka bilið milli afstöðu beggja aðila svo ein- hverju muni,“ sagði Simon Coveney, utanríkisráðherra Írlands, í viðtali á írsku sjónvarpsstöðinni RTÉ í gær. Þá sagði hann að skilyrði samnings- umboðs Barniers á sviði sjávar- útvegsmála væri ósamrýmanlegt lof- orðum sem bresk stjórnvöld hefðu veitt breskum útgerðum. Coveney gerir ráð fyrir að þessi vika verði sú erfiðasta til þessa í samningaviðræðunum. „Við verðum að finna leið til að skapa málamiðlun í sambandi við fiskinn, sem báðir aðilar geta lifað með.“ Hvatti hann aðila til að draga úr stóryrtum yfirlýsingum. Viðræður Breta og ESB steyta á skeri Bretland Krúnusamband við Bretl. Aðild að ESB Sameiginleg fiskveiði- stefna Evrópusambands- ins (ESB) heimilar aðildar- ríkjum að veiða innan 200 mílna efnahagslög- sögu annarra aðildarríkja Veiðisvæði ESB Heimild: Institute for Government ÍSLAND Út- haf Færeyjar* NOREGUR BRETLAND ÍRLAND FRAKKLAND BEL.. HOLL. ÞÝSK. DAN. Önnur ríki utan ESB *Sjálfsstjórn innan danska konungsríkisins. Á ekki aðild að samningum ESB FRÉTTASKÝRING Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Samningaviðræður Bretlandsog ESB vegna viðskipta-samningsins sem á að takavið þegar griðatími úrsagnar Breta úr sambandinu líður undir lok um áramótin virðast vera komnar í hnút, meðal annars vegna ósættis um tilhögun fiskveiða. Óformlegur frestur til að móta drög að samningi rennur út á fimmtudag og á að vera búið að ganga frá öllum þáttum í desember. David Frost, sem leiðir samn- inganefnd Breta, hélt til Brussel í gær til að halda áfram viðræðum við Mic- hel Barnier sem fer fyrir samn- inganefnd ESB. „Við erum að vinna að því að koma á samkomulagi, en eini samningurinn sem er í boði er samn- ingur sem samræmist fullveldi okkar og endurheimtir valdið yfir lagasetn- ingu, viðskiptum og lögsögu,“ tísti Frost í gær. „Þetta hefur verið afstaða okkar frá upphafi og ég mun ekki breyta henni.“ Leiðtogafundur ESB sem hald- inn verður á fimmtudag er talinn síð- asti séns til að kynna einhver samn- ingsdrög ef Evrópuþingið eigi að hafa nægilegan tíma til að taka samninginn til efnislegrar meðferðar og sam- þykkja innleiðingu samnings. Þannig eru aðeins þrír dagar og þrjár nætur til stefnu. Samningsaðilar hafa komið sér saman um drög að samningstexta að mestu leyti, að sögn Frosts sem bendir þó á að enn þurfi að leysa úr veigamiklum þáttum og hét hann því að vinna að samkomulagi. „En okkur mun kannski ekki takst það,“ bætti hann við. Stoppar á fiskveiðum Það eru þrír meginþættir sem skilja samningsaðila að. Í fyrsta lagi á enn eftir að komast að samkomulagi um hvernig eigi að stýra framkvæmd samningsins, en ESB leggur til að Evrópudómstóllinn verði réttur stað- ur til að útkljá deilumál. Á móti telja Bretar það valdaframsal til dómsvalds sem þeir eiga ekki aðild að. Í öðru lagi hefur framkvæmdastjórn ESB áhyggjur af því að samkeppnisstaðan kunni að skekkjast Bretum í vil ef ekki er hægt að tryggja sömu tak- markanir á ríkisstyrki og skattaaf- slætti til fyrirtækja og eru í gildi á innri markaði ESB, sem nær einnig til Deilur breskra yfirvalda og ESB um tilhögun fiskveiða eru aðeins einn angi fiskveiðimálsins þar sem samkomulag við ESB á því sviði leysir ekki skort á samn- ingum um nýtingu deilistofna sem ESB áður samdi um fyrir hönd Breta við Færeyinga, Norð- menn og Íslendinga. Á undanförnum vikum hafa Bretar gengið frá samningum við Færeyinga, Grænlendinga og Ís- lendinga hverja fyrir sig um sjáv- arútvegsmál, en þar er aðeins um að ræða eins konar vilja- yfirlýsingar um samstarf og felur í sér engar skuldbindingar hvað varðar nýtingu deilistofna. Fari svo að áramótin komi án samnings um fiskveiðar milli Breta og ESB lokast bresk haf- svæði fyrir evrópskum skipum og óljóst hvaða áhrif slíkt mun hafa á samningsvilja aðila þegar kemur að sameiginlegri nýtingu deilistofna. Jafnframt er ekki vit- að hvort Bretar séu mögulegir bandamenn Íslendinga í við- ræðum, en ljóst er að samnings- umhverfið verður gjörbreytt. Úrlausnar- efnið flókið FISKVEIÐISAMNINGAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.