Morgunblaðið - 17.11.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 17.11.2020, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2020 DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 1001 - VÍÐÞEKKT ÞÆGINDI Byggt á fyrsta DUX rúminu sem var framleitt árið 1926, þetta er sannarlega það sem draumar eru byggðir á. 30 ára Emilía ólst upp á Seltjarnarnesi en býr núna í miðbæ Reykja- víkur. Hún er menntað- ur stjórnmálafræðingur og stefnir á frekara nám. Núna er hún verslunar- og markaðs- stjóri í Adam og Evu. Helstu áhugamál Emilíu eru ferðalög, hestamennska og að kynnast nýju fólki. Maki: Arnar Leifsson, f. 1989, tölv- unarfræðingur og vinnur hjá ráðgjaf- arfyrirtækinu Expectus. Börn: Birna Dís, f. 2008, og Sara Hrafn- hildur, f. 2013. Foreldrar: Birna Dís Scheving, f. 1963, húsmóðir og Emil Karl Bjarnason, f. 1959, d. 2013, flugvirki. Emilía Kristín Bjarnason Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Vinir og vandamenn sækjast eftir tíma þínum og þú átt að láta þeim hann í té eftir fremsta megni. Byrjaðu strax. 20. apríl - 20. maí  Naut Segðu það sem þú meinar því mein- ingin skín hvort eð er í gegn. Mundu að maki þinn á ekki síður kröfur á þig en þú á hann. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Grunnurinn þarf að vera góður til þess að það sem á honum rís sé til fram- búðar. Njóttu þess eins og þú frekast getur og endurnýjaðu lífsþrótt þinn. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Heilbrigð sál þarf hraustan líkama. Notaðu daginn til þess að segja, gera og hafa hlutina eins og þú vilt. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Með réttum félaga getur þú myndað sterkt bandalag til að hrinda áhugamálum þínum í framkvæmd. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Hafðu augun hjá þér og láttu einskis ófreistað til þess að komast til botns í því máli sem þú hefur tekið að þér. Leiðin á að liggja fram á við og þokast þótt hægt fari. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það er allt í lagi að vita ekki hvað tekur við. Hafðu þetta í huga þegar þú velur þér verkefnin. En þú hefur bara uppskorið þín laun. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er óþarfi að byrgja allt inni þegar þú átt aðgang að góðum sálufélaga. Varastu samt að ofmetnast. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Viðamikið samstarfsverkefni sem þú ert nú að taka þátt í krefst mikils af þér. Stundum verða aðrir að fá að ráða för. Gættu vel að því sem er þitt. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú ættir að líta vandlega í eigin barm áður en þú kemur sökinni á aðra. En skoðanir af því tagi knýja verkefnin þín áfram í dag. Sýndu dugnað í starfi og dirfsku í persónulegum málum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er svo sem gott og blessað að telja sig geta lesið í hug annarra. Hlut- irnir munu að öllum líkindum fara á allt annan veg en þú gerir ráð fyrir. 19. feb. - 20. mars Fiskar Blandaðu ekki saman einkalífi og starfi þínu heldur haltu því aðskildu eins og kostur er. Margar lausnir virðast vera fyrir hendi en flýttu þér hægt því aðeins ein er rétt. júnkt við menntavísindasviðið en ár- ið 2019 var ég ráðin sem alþjóða- fulltrúi við Háskólann á Hólum og árið 2020 sem rannsakandi við sama skóla í rannsóknarverkefni um efl- ingu sjálfbærni og seiglu samfélaga á norðurslóðum en það er styrkt af „Árið 1983 réð ég mig sem leið- beinanda við Grunnskóla Bolung- arvíkur og þar kynntist ég eigin- manni mínum og saman fórum við um vorið 1984 til Reykjavíkur til náms. Eftir að námi lauk árið 1987 fluttum við aftur til Bolungarvíkur þar sem ég réð mig sem kennara. Þar bjuggum við í 24 ár og á þeim tíma eignuðumst við strákana okk- ar. Ég var svo ráðin aðstoðar- skólastjóri árið 1991 og skólastjóri, fyrst kvenna, við grunnskólann árið 1995 og starfaði sem slíkur til ársins 2004. Frá þeim tíma hef ég starfað að ýmsum verkefnum, var deild- arstjóri á Náttúrustofu Vestfjarða, verkefnastjóri og kennari í fullorðinsfræðslu hjá Fræðslu- miðstöð Vestfjarða og kennari í frumgreinanámi hjá Háskólasetri Vestfjarða.“ Eftir góðan tíma fyrir vestan fluttu hjónin til Reykjavíkur árið 2011 og Anna hellti sér út í doktorsnámið, sem hafði setið á hakanum vegna anna. Meðfram því kenndi ég hjá Mími símenntun og eftir að því lauk var ég ráðin að- A nna Guðrún Edvards- dóttir fæddist 17. nóv- ember 1960 í Reykja- vík. „Ég er fyrsta barn foreldra minna sem voru nú hálfgerð börn þegar ég fæddist, móðir mín var 18 ára og faðir minn 17. Fyrstu 10 ár ævi minnar bjuggum við á Vesturgöt- unni, fyrst á Vesturgötu 56 í fjög- urra íbúða húsi sem ömmubræður mínir byggðu og bjuggu þeir þar og svo í litla timburhúsinu á Vest- urgötu 58, en það hús byggði langafi minn. Það hús vék fyrir fjölbýlishúsi sem reist var á lóðinni á níunda ára- tugnum og var flutt í Skerjafjörðinn og gert upp.“ Þegar Anna var 10 ára flutti hún í Fossvoginn en á þeim tíma var hann að byggjast upp og fullt af ný- byggingum sem krökkunum þótti gaman að leika sér í, ekki síst þar sem það var harðbannað. „Töluvert var um opin svæði sem við notuðum til leikja og vinsælt var að spila fót- bolta. Yfirleitt vorum við tvær stelpurnar sem spiluðum með strák- unum en þar sem við vorum nokkuð liðtækar fengum við að vera með.“ Á sumrin frá sex ára aldri og fram á unglingsár var Anna í sveit hjá Melkorku Benediktsdóttur og Sigurbirni Sigurðsyni á Vígholts- stöðum í Laxárdal í Dalabyggð. „Það var góður tími þar sem manni voru falin ábyrgðarstörf og þar lærði maður að vinna. Eðalhjónin Melkorka og Sigurbjörn búa enn á Vígholtsstöðum og þangað förum við fjölskyldan eins oft og við get- um.“ Anna gekk alla grunnskólagöng- una í Hlíðaskóla en þar var faðir hennar kennari. Landsprófi lauk hún síðan frá Vörðuskóla og fór í Menntaskólann við Hamrahlíð og lauk stúdentsprófi árið 1981. Eftir að hafa verið á vinnumarkaðnum í nokkur ár lá leiðin í Kennara- háskóla Íslands og lauk hún grunn- skólakennaraprófi árið 1987, M.Ed.-prófi í stjórnun menntastofn- ana frá sama skóla árið 2002 og doktorsprófi í menntunarfræðum frá menntavísindasviði HÍ árið 2016. Horizon 2020. Frá árinu 2017 hef ég verið einn af eigendum rannsóknar- og ráðgjafarfyrirtækisins RORUM ehf. sem sérhæfir sig í rannsóknum í umhverfis- og byggðamálum en byggða- og menntamál með áherslu á sjálfbærni og seiglu samfélaga með femínískum áherslum í for- grunni eru mín sérsvið.“ Anna var bæjarfulltrúi Bolung- arvíkurkaupstaðar frá 1990-1998 og svo aftur frá árunum 2006-2011. „Á þessum árum voru mér falin ýmis trúnaðarstörf, ég sat í bæjarráði og var formaður þess um tíma fyrst kvenna í Bolungarvík. Þá var ég fyrst kvenna forseti bæjarstjórnar um tíma og sat í ýmsum nefndum á vegum sveitarfélagsins. Á árinu 2006 var ég, fyrst kvenna, kjörin formaður Fjórðungssambands Vestfirðinga og gegndi því embætti til ársins 2010. Á því tímabili var ég einnig formaður Markaðsstofu Vestfjarða, formaður samgöngu- nefndar fjórðungssambandsins og um tíma formaður atvinnuþróun- arfélagsins.“ Hún segist gera sér grein fyrir því núna að hún hafi varðað ákveðna braut fyrir þær sem á eftir henni komu því konur séu miklu meira áberandi á sveit- arstjórnarstiginu og gegni þar ýms- um ábyrgðarstöðum. „Ég er mikil keppnismanneskja og með mikla hreyfiþörf enda er ég sannfærð um að sem barn og ung- lingur hefði ég verið greind með ADHD en í þá daga var maður bara stimplaður óþekkur og latur. Ég stundaði íþróttir frá tólf ára aldri, var í handbolta, fótbolta í Val og körfubolta í ÍR og á tímabili í öllum íþróttunum á sama tíma. Það gekk ekki til lengdar og um tíma var ég í fótbolta á sumrin og körfubolta á veturna en hætti í fótboltanum og einbeitti mér að körfunni. Ég á ein- hverja Reykjavíkur-, bikar- og Ís- landsmeistaratitla frá þessum tíma í handboltanum og körfuboltanum en ég lagði skóna á hilluna þegar ég flutti vestur. Í dag hleyp ég nokkrum sinnum í viku og geng til skiptis og eftir að barnabarnið okkar kom í heiminn snýst lífið svoítið um hana enda er Anna G. Edvardsdóttir alþjóðafulltrúi og rannsakandi við Háskólann á Hólum – 60 ára Hjónin Anna Guðrún og Kristján með barnabarnið Þórdísi Örnu. Keppnismanneskja í húð og hár Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Doktorsvörnin Anna Guðrún að verja doktorsritgerð sína „Samspil þekking- arsamfélagsins og byggðaþróunar á Íslandi og í Skotlandi“ við HÍ árið 2016. Til hamingju með daginn Reykjavík Laufey Elsa Þorsteinsdóttir og Friðrik Friðriksson fögnuðu 35 ára brúðkaupsafmæli sínu í gær. Þau endurnýjuðu heit sín í Landakotskirkju síð- astliðið sumar, en myndin er tekin við það tækifæri. Kóralbrúðkaup 30 ára Alexandra fæddist í Vestmanna- eyjum og býr núna í Kópavogi. Alexandra er sjávarútvegsfræð- ingur og vinnur sem söluhönnuður hjá Marel. Hún er núna í meistaranámi í verkefnisstjórnun í HÍ. Helstu áhugamál Alexöndru eru ferðalög og nýjasta áhugamálið er golf. Maki: Árni Freyr Arngrímsson, f. 1992, sjávarútvegsfræðingur. Börn: Tómas Ingi, f. 2011, og Jóhanna Marín, f. 2015. Foreldrar: Sólveig Eva Sveinsdóttir, f. 1967, býr á Spáni, og Birgir Þór Sverr- isson, f. 1961, skipstjóri á Vestmannaey í Vestmannaeyjum. Alexandra Evudóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.