Morgunblaðið - 28.11.2020, Page 1

Morgunblaðið - 28.11.2020, Page 1
Við erum alls staðar Ásmundur Einar Daðason ákvað að stíga fram og segja sína sögu því það er ekkert athugavert við að leita sér hjálpar. Stuðningur á réttum tíma hafi skipt sköpum í hans lífi. Slíkur stuðningur eigi ekki að vera tilviljanakenndur heldur markviss fyrir bæði börn og fjölskyldur þeirra sem búa við ofbeldi og vanrækslu. 8 29. NÓVEMBER 2020SUNNUDAGUR Morðin flutt út Sparkheimurinn syrgir einn af sínum fremstu sonum, Diego Maradona.14 Sterkari saman Erlendar athafnakonur á Íslandi hafa tekið höndum saman og stofnað deild innan Félags kvenna í atvinnulífi. 18 Íslenskar glæpasögur njóta vinsælda og seljast vel víða um heim. 22 Mannlega goðið L A U G A R D A G U R 2 8. N Ó V E M B E R 2 0 2 0 Stofnað 1913  281. tölublað  108. árgangur  GEFUR DREKKTUM KONUM RÖDD VILJA LAUFA- BRAUÐ Á LISTA UNESCO MENNINGARARFUR 6ÞÓRA KARÍTAS 48 Guðrún Hálfdánardóttir guna@mbl.is Frumvörp sem miða að því að gjör- bylta aðstæðum barna og fjölskyldna þeirra eru á leið inn í þingið. Verk- efnið er risavaxið og sennilega felur það í sér mestu breytingu sem gerð hefur verið á umhverfi barna á Ís- landi í áratugi. Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráð- herra, brennur fyrir verkefninu enda þekkir hann af eigin raun að alast upp við erfiðar aðstæður þar sem móðir hans hefur glímt við áfengis- vanda árum saman og hún á einnig við geðræn veikindi að stríða og hef- ur átt lengi. Auk þess er hún með ADHD á háu stigi ásamt fleiru. Hingað til hefur hann ekki viljað ræða þessi mál opinberlega enda ekki langt síðan hann fór að vinna með steininn sem hann hefur drösl- ast með í maganum áratugum sam- an. Allt frá því í barnæsku. „Við getum aldrei komið öllum börnum til bjargar en ef okkur tekst að hjálpa fleiri börnum er tilgang- inum náð. Ekkert barn á að þurfa að búa við aðstæður eins og því miður of mörg börn búa við á Íslandi, ofbeldi og vanrækslu, “ segir Ásmundur. Ás- mundur segist nú vilja segja sína sögu bæði til að útskýra af hverju málefni barna hafa verið mikið áherslumál hjá honum en líka í þeirri von að það hjálpi öðrum sem glíma við sam- bærilegar að- stæður. „Við erum með stóran hóp fullorðinna einstaklinga sem hafa verið í þessum erfiðu aðstæðum og eru að burðast með það innra með sér, jafnvel þegar þeir eru komnir í seinni hálfleik lífs síns. Fólk sem er reitt og biturt. Við þetta fólk vil ég segja að ástæðan fyrir því að ég ákvað að stíga fram og segja mína sögu er sú að það er ekkert at- hugavert við að leita sér hjálpar. Fá aðstoð við að vinna á reiðinni og þrátt fyrir að það sé erfitt er hægt að yf- irstíga erfiðleikana og komast á betri stað. Við sem erum í þessum sporum erum alls staðar í íslensku samfélagi, líka í ríkisstjórn Íslands,“ segir Ás- mundur. Gjörbylta aðstæðum barna  Barnamálaráðherra lýsir erfiðum aðstæðum vegna veikinda móður og hvernig hann var við það að bugast  Fékk aðstoð vegna vanlíðanar á fullorðinsárum MÁsmundur »26 og Sunnudagur Ásmundur Einar Daðason Flygli var komið fyrir á Nova-svellinu við Ingólfstorg í gærkvöld í tilefni þess að svell- ið verður opnað almenningi í dag klukkan ár og verður svellinu því skipt upp í tvö svæði til að tryggja að fjöldatakmarkanir verði virtar. Talið verður inn á bæði svæðin. Þetta er í sjötta skiptið sem Nova setur upp Nova-svellið í hjarta Reykjavíkur. Heimsfaraldur setur svip sinn á útfærsluna í tólf á hádegi. Tónlistarmaðurinn Högni Eg- ilsson tók forskot á sæluna og vígði svellið með undurfögrum söng sínum og píanóleik. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Spilaði og söng á svellinu sem skipt er í sóttvarnahólf 20% afsláttur Allt að fimmtudag, föstudag og laugardag Kringlunni - michelsen.is BLACK FRIDAY HEKLA · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · www.mitsubishi.is Mitsubishi Outlander PHEV Invite+ VETRARPAKKI AÐ VERÐMÆTI 370.000 KR. FYLGIR! FYRIR ÁRAMÓT TRYGGÐU ÞÉR BETRA VERÐ Tilboðsverð! 5.190.000 kr.Mánaðargreiðslur frá 61.770 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.