Morgunblaðið - 28.11.2020, Síða 2

Morgunblaðið - 28.11.2020, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2020 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þetta er ótrúlega fallega gert. Við erum mjög þakklát fyrir og hlökkum til að reiða fram matinn,“ segir Jóna Björg Howard, verkefnisstjóri kaffi- stofu Samhjálpar. Hádegisverðurinn á kaffistofu Samhjálpar í Borgartúni verður í veglegri kantinum í dag því Krist- ófer Helgason og Íris Jóhannsdóttir, kokkar í mötuneyti Árvakurs sem gefur meðal annars út Morg- unblaðið, hafa tekið að sér mat- reiðsluna. Gestir eiga von á góðu; lambakjöti með sveppasósu, kart- öflubátum og fersku salati. Jóna segir í samtali við Morg- unblaðið að alla jafna mæti um 150- 170 manns í mat á kaffistofuna. Færri láti þó sjá sig þessa dagana vegna kórónuveirunnar. „Lífið er nógu erfitt fyrir hjá mörgum en svo bætist þetta Covid við. Það eykur bara á erfiðleika margra,“ segir Jóna og kveðst ánægð að geta glatt gestina með sér- staklega góðum mat í dag. Hún kveðst hafa sett sig í samband við fjölmörg mötuneyti fyrirtækja og spurt hvort þau gætu séð af mat fyr- ir skjólstæðinga sína. Kristófer tók vel í það og hefur fært þeim afgangs máltíðir að undanförnu. Hann tók svo málin í sínar hendur og þau Íris ákváðu að snara fram heilli veislu- máltíð. „Ég talaði við helstu birgjana mína, Esju gæðafæði og Íslensk- ameríska, og kannaði hvort þeir vildu hjálpa mér með hráefni. Þeir sögðu strax já og máltíðin verður ekkert slor,“ segir Kristó eins og hann er jafnan kallaður. Hvetur fleiri mötuneyti til að leggja sitt af mörkum Kristó segir það ánægjulegt að geta lagt sitt af mörkum fyrir þá sem á þurfa að halda. Hart sé í ári hjá mörgum um þessar mundir og jólahátíðin fram undan. „Maður varð að gera eitthvað. Ég vil gjarnan hvetja önnur mötuneyti og birgja sem mögulega geta gert eitthvað til að fylgja í kjölfarið,“ segir Kristó. Veislumáltíð fyrir gesti á kaffistofu Samhjálpar Morgunblaðið/Árni Sæberg Veisla Kristófer Helgason og Íris Jóhannsdóttir við undirbúning veislunnar í mötuneyti Árvakurs í gær.  Kristó og Íris vilja leggja sitt af mörkum á erfiðum tíma Kærleikskúlan kærleikskúlan.is Forsalan er hafin SVARTUR FÖSTUDAGUR 30% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM ALLA HELGINA KÓÐI Í VEFVERSLUN: SVARTUR SMÁRATORGI KRINGLAN GLERÁRTORGI LINDESIGN.IS Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Andrés Magnússon Ragnhildur Þrastardóttir Frumvarp um lög á verkfall flug- virkja Landhelgisgæslunnar var samþykkt á Alþingi í gærkvöldi. Með lögunum er lagt bann við vinnustöðvun flugvirkjanna sem voru í verkfalli. Lögin hafa þegar tekið gildi. 42 þingmenn samþykktu frumvarpið, sex greiddu atkvæði á móti því og fimm greiddu ekki at- kvæði. Eitt af því sem lögin kveða á um er að ef kjarasamningur verði ekki undirritaður fyrir 4. janúar næst- komandi skuli gerðadómur ákveða kaup og kjör flugvirkjanna fyrir 17. febrúar á næsta ári. Guðmundur Úlfar Jónsson, for- maður Flugvirkjafélags Íslands, segir flugvirkja ekki ósátta við þá lendingu að kjaradeilan fari í gerð- ardóm ef ekki náist samningar. „Þetta eru leikreglurnar, við för- um eftir því,“ segir Guðmundur Úlfar Jónsson. Tekist var á um málið á Alþingi í gær. Píratar greiddu atkvæði gegn frumvarpinu. Þórhildur Sunna Æv- arsdóttir, þingmaður Pírata, gagn- rýndi Katrínu Jakobsdóttur for- sætisráðherra harðlega og sagði að Katrín hefði lagt til að verkfalls- rétturinn skyldi tekinn af vinnandi fólki með ummælum sínum um það að eðlilegt gæti talist að ríkissátta- semjari fengi heimild til frestunar verkfalla. Katrín brást við orðum Þórhildar og sagði að málflutningur hennar væri á sérstaklega lágu plani. Það væri fjarri öllum sannleika og um- mæli Þórhildar hlytu að dæma sig sjálf „eins og málflutningur hátt- virts þingmnns gerir reyndar oft.“ Þá gagnrýndu Andrés Ingi Jóns- son og Rósa Björk Brynjólfsdóttir, fyrrum flokkssystkini Katrínar, hana einnig fyrir fyrrnefnd um- mæli. „Ég vona að sú breyting gegn rétti vinnandi fólks til að berjast fyrir sínum kröfum verði ekki að veruleika,“ sagði Andrés Ingi. Oddný G. Harðardóttir, þingmað- ur Samfylkingarinnar, sagði það á ábyrgð samningsaðila að ná samn- ingum en stjórnvöld hefðu ekki staðið undir þeirri ábyrgð. Staðan væri í boði ríkisstjórnarinnar. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra þakkaði þing- mönnum fyrir að hafa brugðist „hratt og vel“ við frumvarpinu. „Það var ljóst að staðan var orðin grafalvarleg en með afgreiðslu þessa frumvarps liggur nú fyrir að flugvirkjar munu koma strax til starfa og að flugrekstur Landhelg- isgæslunnar mun því smám saman komast í eðlilegan rekstur og björg- unarþyrla verður vonandi til taks í síðasta lagi á sunnudag.“ Þá sagði Áslaug að ekki hefði verið gripið til þessa ráðs nema þegar fullreynt hefði verið að ná samningum. Alþingi samþykkti lög á verkfallið  Vinnustöðvun flugvirkja Landhelgisgæslunnar nú bönnuð Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Guðmundur Úlfar Jónsson Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Mikill meirihluti íbúa þeirra fimm sveitarfélaga á Suðurlandi sem verið hafa í óformlegum viðræðum um sameiningu eru fylgjandi því að sveitarfélögin taki upp form- legar sameiningarviðræður. Meiri- hluti var fyrir þessari afstöðu í fjórum sveitarfélögum, öllum nema því minnsta. Í Ásahreppi voru heldur fleiri þeirra sem spurðir voru mótfallnir þessari þróun mála en þeir sem voru með- mæltir. „Þessi könnun var lokahnykk- urinn í starfi verkefnahópsins sem verið hefur í óformlegum við- ræðum og styrkti ákvörðun okkar um að senda tillögur til sveitar- stjórnanna fimm um að hefja form- legar viðræður um sameiningu. Það er síðan undir hverri og einni sveitarstjórn komið að ákveða framhaldið,“ segir Anton Kári Halldórsson, formaður verkefna- hópsins, um niðurstöður könnunar- innar. Tillagan verður tekin fyrir á næstu fundum sveitarstjórnanna. Ef allar samþykkja verður vænt- anlega hægt að leggja tillögu um sameiningu fyrir íbúana í atkvæða- greiðslu á næsta ári, annaðhvort næsta vor eða um haustið. Niður- stöður sveitarstjórnanna munu liggja fyrir snemma í mánuðinum. Valdið er hjá íbúunum Í heildina sögðust 69% þeirra íbúa sem spurðir voru hlynnt því að sveitarfélögin taki upp form- legar sameiningaviðræður en 16% sögðust andvíg. Íbúar fjögurra sveitarfélaga, Skaftárhrepps, Mýrdalshrepps, Rangárþings eystra og Rangár- þings ytra, lýstu sig samþykka áframhaldandi viðræðum en í Ása- hreppi voru 43% spurðra á móti en 41% með slíkri þróun mála. Þegar þátttakendur voru spurð- ir beint um viðhorfið til samein- ingar síns sveitarfélögs við hin kom svipað svar nema hvað mikill meirihluti íbúa Ásahrepps myndi vilja fella sameiningu, ef kosið væri nú. „Ég er mjög ánægður með þátt- töku íbúanna. Á íbúafundum var hugur íbúanna skýr, þeir vildu halda áfram og ljúka verkefninu með því að taka upplýsta ákvörðun um sameiningu í atkvæðagreiðslu. Ég er mjög ánægður með að lýð- ræðið virkar og valdið er hjá íbú- unum,“ segir Anton Kári. Meirihluti vill form- legar viðræður  Sveitarstjórnir ræða sameiningu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.