Morgunblaðið - 28.11.2020, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2020
www.kofaroghus.is - sími 553 1545
359.000 kr.
Tilboðsverð
518.000 kr.
Tilboðsverð
416.500 kr.
Tilboðsverð
34mm
34mm44mm
Ítarlegar upplýsingar og teikningar ásamt ýmsum öðrum fróðleik
má finna á vef okkar
Afar einfalt er að
reisa húsin okka
r
Uppsetning teku
r aðeins einn da
g
BREKKA 34 - 9 fm
STAPI - 14,98 fm NAUST - 14,44 fm
25%
afsláttur
25%
afsláttur
30%
afsláttur
TILBOÐ Á GARÐHÚSUM!
(SÍÐUSTU HÚSIN 2020) VANTAR
ÞIGPLÁSS?
Þorsteinn Ásgrímsson
thorsteinn@mbl.is
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir
skoðar nú hvort hann þurfi að skila
nýjum tillögum um sóttvarnaaðgerð-
ir vegna kórónuveirufaraldursins til
heilbrigðisráðherra. Hann skilaði til-
lögum í vikunni en endurskoðun er nú
nauðsynleg vegna aukins smitfjölda.
20 greindust smitaðir innanlands á
fimmtudag. Níu voru í sóttkví við
greiningu en ellefu utan sóttkvíar.
Um er að ræða hæsta smitfjölda inn-
anlands síðan 10. nóvember.
Núverandi reglugerð um sótt-
varnaaðgerðir vegna faraldursins
gildir til annars desember.
Í tillögunum sem Þórólfur skilaði
til ráðherra í vikunni var fyrirvari um
endurskoðun ef breytingar yrðu.
„Ég er að skoða það núna hvort
koma þurfi til nýrra tillagna,“ segir
Þórólfur.
Spurður út í það hvort þróunin síð-
ustu daga komi alveg í veg fyrir að
hann muni mæla með einhverjum til-
slökunum segir Þórólfur að hvort
sem staðan líti vel út eða ekki þá hafi
hann alltaf sagt að skynsamlegt sé að
fara hægt í allar afléttingar. „Það
gildir sérstaklega þegar við sjáum
vöxt [í tölum].“
Þórólfur segist hafa mestar
áhyggjur af þeim fjölda sem greinist
utan sóttkvíar. Tölur dagsins séu þó í
takt við það sem gert hafi verið ráð
fyrir og spáð miðað við þann fjölda
smita sem hafa greinst utan sóttkvíar
undanfarna daga.
Þórólfur segir að ef sama þróun
haldi áfram gæti daglegur fjöldi
smita margfaldast og orðið nokkrir
tugir, jafnvel um 100 dagleg smit,
svipað og á hápunktinum fyrir nokkr-
um vikum.
„Þetta gæti gerst mjög hratt,“ seg-
ir Þórólfur um hver tímarammi slíkr-
ar þróunar gæti verið. „Það eru vís-
bendingar um að þetta sé að fara upp
í veldisvöxt aftur,“ segir hann ef ekk-
ert verði til þess að breyta þróuninni.
Segist Þórólfur hafa miklar áhyggjur
af ástandinu. „Þetta er eitthvað sem
við viljum auðvitað ekki að fari af stað
aftur.“
Þórólfur bendir á að alvarleg veik-
indi vegna veirunnar komi venjulega
fram um viku eftir að smit greinist.
Því gæti hækkun í smittölum núna
birst okkur eftir um viku í alvarleg-
um veikindum og álagi á sjúkrahús-
um.
Skoðar nýjar tillögur vegna smitfjölda
20 greindust innanlands á fimmtudag Vísbendingar um að veldisvöxtur sé væntanlegur að sögn
sóttvarnalæknis Smitum gæti fjölgað mikið mjög hratt og dagleg smit jafnvel farið upp í 100
Nýgengi innanlands:
35,7 nýtt smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa
20 ný inn an lands smit greindust sl. sólarhring
100
80
60
40
20
0
176 eru með virkt smit og í einangrun
júlí ágúst september október nóvember
Fjöldi inn an lands-
smita frá 30. júní
Heimild: covid.is
75
20
16
99
86
Ljósin á Cuxhaven-jólatrénu voru tendruð í Jólaþorpinu í
Hafnarfirði í gærmorgun af Rósu Guðbjartsdóttur bæj-
arstjóra Hafnarfjarðar, Dietrich Becker, sendiherra Þýska-
lands á Íslandi, og Gísla Valdimarssyni, formanni vinabæj-
arfélagsins Hafnarfjörður-Cuxhaven, að viðstöddum hópi
leikskólabarna. Tendrun ljósa á trénu hefur til þessa verið
formleg og athöfnin opin öllum en í ljósi aðstæðna í þjóðfélag-
inu var tendrunin í ár fámenn og góðmenn. Jólaþorpið í Hafn-
arfirði er nú að rísa og opnar það í dag klukkan eitt.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Björt jólaljós tendruð í Hafnarfirði
Helgi Jóhannesson, eigandi sæl-
gætisgerðarinnar Góu, sem hefur
látið sig málefni eldri borgara
miklu varða, segir að nú þegar búið
sé að loka Hótel Sögu sé upplagt
að opna þar elliheimili. „Sem gam-
all vesturbæingur, sem ólst upp í
hverfinu á þeim tíma sem verið var
að byggja Hótel Sögu og lék sér í
stóra drullupollinum í grunninum,
finnst mér upplagt að breyta hót-
elinu í elliheimili, nú þegar búið er
að skella í lás. Við erum með mat-
staðinn kláran niðri. Svo getum við
haft dansiball tvisvar í viku í Súlna-
sal til að létta lundina hjá eldri
borgurum.“
Helgi bendir á að tæknin sé orð-
in það góð að hægt sé að varpa alls
konar tónlistarfólki upp á tjald í
gegnum símann og spila tónlistina.
Nefnir Helgi þar listamenn bæði
lífs og liðna, menn eins og Ragga
Bjarna, Svavar Gests, Elvis Pres-
ley, Fats Domino og Ómar Ragn-
arsson. „Við tökum fyrst góða
sveiflu með Svavari Gests og Óm-
ari Ragnarssyni. Svo væri tilvalið
að enda kvöldið á góðum vanga-
dansi þar sem Raggi Bjarna myndi
syngja Góða nótt.“
Ekki nóg að tala
Helgi segir ekki nóg að tala um
að gera eitthvað fyrir eldra fólkið.
Nauðsynlegt sé að taka upp skófl-
una og framkvæma. „Eins og ég
hef gert um ævina,“ bætir hann
við.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í lok október sl. hvarf
rekstrargrundvöllur Hótels Sögu
með þeim sóttvarnaaðgerðum sem
gripið var til í október, líkt og Ingi-
björg Ólafsdóttir hótelstjóri út-
skýrði. Í frétt á vef Bændasamtak-
anna, sem áttu og ráku hótelið,
segir að Hótel Saga hafi orðið fyrir
gríðarlegum tekjusamdrætti vegna
faraldursins. tobj@mbl.is
Hótel Saga verði elliheimili
Matstaðurinn klár Hægt að hafa dansiball í Súlnasal
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ferðaþjónusta Hótel Saga var
tekin í notkun árið 1962.