Morgunblaðið - 28.11.2020, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2020
Landssamband veiðifélaga mótmælir
harðlega áformum Fiskeldis Aust-
fjarða hf. um 10.000 tonna framleiðslu
á laxi í Seyðisfirði. Í harðorðri ályktun
segir sambandið að eldi á norskum
eldislaxi í Seyðisfirði sé „tilræði við
villta laxastofna“.
Í ályktunni segir að sambandið taki
undir mótmæli veiðifélaga í Vopna-
firði og deili áhyggjum Seyðfirðinga.
„Tugir þúsunda ferðamanna koma til
landsins ár hvert með farþegaskipinu
Norrænu. Ef áætlanir Fiskeldis
Austfjarða hf. ganga eftir verður
fyrsta sýn þessara ferðamanna opnar
sjókvíarverksmiðjur í sjónum. Þessi
sýn er í boði íslenskra stjórnvalda
sem lagt hafa mikla áherslu á að
kynna íslenska náttúru sem hreina og
óspillta.“
Jafnframt segja Landssamtök
veiðifélaga að hugmyndir um eldi
gangi í berhögg við markmiðsákvæði
laga um náttúruvernd. „Einkum er
vísað til þess að markmið laganna er
m.a. að vernda líffræðilega fjölbreytni
og tryggja þróun íslenskrar náttúru á
eigin forsendum. Með því að staðsetja
sjókvíaeldi í Seyðisfirði er gengið gegn
þessu markmiði enda ljóst að villtir
stofnar laxfiska sem eiga heimkynni í
firðinum, sem og í öðrum austfirskum
ám, munu verða fyrir verulega nei-
kvæðum áhrifum af eldisiðnaðninum.“
Mótmæla „tilræði“ við villtan lax
Landssamband veiðifélaga ósátt við
fyrirhugað sjókvíaeldi í Seyðisfirði
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Laxeldi Óánægju gætir með stór
áform um sjókvíaeldi í Seyðisfirði.
Löggiltur heyrnarfræðingur
Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Hljóðmagnarar
Hljóðmagnari hentar vel þeim sem
þurfa að heyra betur og er einfaldur í
notkun. Þægilegt samskiptatæki. Með
margmiðlunarstreymi tengist hann
þráðlaust við sjónvarp og önnur tæki.
Vekjaraklukka
fyrir þá sem sofa fast eða heyra illa
Að vakna á réttum tíma hefur aldrei
verið auðveldara
Vekur með ljósi, hjóði og/eða tirtingi
svo að maður þarf ekki að sofa yfir sig.
Verð frá
kr. 19.800
Verð frá
kr. 58.800
Rósa Björk Brynjólfsdóttir,þingmaður utan flokka, hef-
ur í þriðja sinn lagt fram þing-
mannafrumvarp um breytingu á
útlendingalögum hvað varðar ald-
ursgreiningu þegar vafi leikur á
að hælisleitandi, sem segist vera
barn, sé það í raun.
Hún vill leggja af
tanngreiningu og
taka fólk bara trú-
anlegt um aldurinn.
Þetta væri óskyn-
samlegt, en það er
þó ekkert hjá
óheiðarlegum
málatilbúnaði þing-
mannsins, sem laðað hefur fram-
einhverja harðorðustu umsögn um
frumvarp, sem sést hefur, ritaða
af þeim fjórum réttartannlæknum,
sem annast hafa aldursgreiningar
hælisleitenda hér á landi frá upp-
hafi.
Réttartannlæknarnir afhjúpahreinar og beinar rang-
færslur í greinargerð Rósu Bjark-
ar, saka hana um að skálda tilmæli
af vettvangi Evrópuráðsins gegn
tanngreiningum þegar öll Evr-
ópuríki nema tvö beiti þeim, að
hún vísi til gagnrýni í þjóðmála-
umræðu þegar hún sé aðallega að
vitna til eigin orða, að hún leggi
Tomáš Bocek flóttamannafulltrúa
Evrópuráðsins orð í munn, sem
hafi átt að hafa fallið á málþingi
(sem Rósa hélt sjálf!), að hún vitni
ranglega í ályktun Evrópuráðs-
þingsins (sem Rósa samdi sjálf!).
Rósa getur hvorki borið viðfjótfærni né vanþekkingu.
Rangfærslur eru svo margar og
alvarlegar, að þær eru fals. Fals í
frumvarpi. Ef ráðherra afvega-
leiðir þingið er honum ekki sætt
lengur. Er þingmanni sætt eftir að
verða uppvís að hinu sama? Rósa
ætti að hugsa vel en ekki lengi um
afsögn. Í allra minnsta lagi að
draga frumvarpið til baka og biðja
þingheim afsökunar. Þessi vinnu-
brögð eru henni og þinginu til
vansæmdar.
Rósa Björk
Brynjólfsdóttir
Fals í frumvarpi
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Jóhann Hjálmarsson
rithöfundur er látinn,
81 árs að aldri.
Jóhann fæddist í
Reykjavík 2. júlí 1939
og ólst upp þar og á
Hellissandi. Hann
lærði til prentiðnar við
Iðnskólann, en hélt
þaðan til spænskunáms
í háskólanum í Barce-
lona, fyrst árið 1959 og
svo frá 1965-1966 er
hann lagði þar stund á
spænsku, las bók-
menntafræði og
spænskar bókmenntir.
Hann las einnig bókmenntir í Kaup-
mannahöfn og í Stokkhólmi 1962-
1963 þar sem hann lagði stund á nor-
rænar samtímabókmenntir.
Eftir Jóhann liggur sægur ljóða-
bóka, bæði með eigin ljóðum og
ljóðaþýðingum, auk safnrita, en
nokkrar þeirra komu út í þýðingu
erlendis.
Jóhann starfaði lengi hjá Pósti og
síma, var þar útibússtjóri og síðar
blaðafulltrúi Pósts og síma frá 1985-
1990. Samhliða öðrum störfum var
hann bókmennta- og leiklist-
argagnrýnandi Morgunblaðsins um
áratugaskeið, en árið 1990 gerði
hann gagnrýnina að aðalstarfi og var
umsjónarmaður með
bókmenntagagnrýni
Morgunblaðsins frá
1990-2000. Þá stjórn-
aði hann bókmennta-
þáttum á RÚV um
skeið.
Hann gegndi mörg-
um trúnaðarstörfum á
sínu sviði, sat í stjórn
Félags íslenskra rit-
höfunda og Rithöf-
undasambandsins, í
dómnefnd Bókmennta-
verðlauna Norð-
urlandaráðs um árabil
og formaður hennar
1987-1989, í þýðinganefnd Evrópu-
sambandsins, Ariane, og annaðist
ritstjórn ýmissa menningartímarita
hér og ytra. Þá var hann valinn í ótal
nefndir á vegum hins opinbera og
var félagi í PEN, alþjóðasamtökum
rithöfunda.
Jóhann kvæntist Ragnheiði Krist-
rúnu Stephensen hjúkrunarfor-
stjóra sem lést fyrir rúmum tveimur
árum, Þau eignuðust þrjú börn,
Þorra, rithöfund og kvikmyndaleik-
stjóra, Döllu dagskrárgerðarmann
og Jóru ljósmyndara.
Morgunblaðið átti langt og heilla-
ríkt samstarf með Jóhanni og þakk-
ar honum samfylgdina.
Andlát
Jóhann Hjálmarsson
rithöfundur