Morgunblaðið - 28.11.2020, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 28.11.2020, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2020 Þú finnur fallegar og vandaðar jólagjafir hjá Eirvík Hvort sem þú leitar að fallega hönnuðum smátækjum í eldhúsið, sterkbyggðri matvinnsluvél sem er afkastamikill hjálparkokkur við eldamennskuna, endingargóðri ryksugu gæddri nýjustu tækninýjungum eða glæsilegri kaffivél sem hellir upp á nýmalað og dásamlegt kaffi, þá erum við með frábæra valkosti fyrir þig. Vöruúrval Eirvíkur er afar fjölbreytt og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is. Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Þingmenn meirihlutans í atvinnu- veganefnd Alþingis sem Morg- unblaðið hefur rætt við virðast nokk- uð jákvæðir í garð frumvarps þingmannsins Páls Magnússonar sem hann segir til þess gert að skerpa á gildandi fyrirkomulagi um takmarkanir á eignarhaldi á afla- heimildum. Þetta á einnig við um þingmenn minnihlutans og því sterkar vísbendingar um að frum- varpið fái þinglega meðferð. Þing- mennirnir taka allir vel í hugmynd- irnar með fyrirvara. Frumvarpið var birt á vef Alþing- is síðdegis í gær og er þar lagt til að aðili sem þegar á aflahlutdeild festir kaup á hlut í útgerð með afla- hlutdeild „skal leggja hlutfall kaup- anda í aflahlutdeild seljanda saman við þær heimildir sem hann á fyrir. Telst sú heildaraflahlutdeild tilheyra kaupanda.“ Þarf að loka fyrir krókaleiðir Páll, sem er þingmaður Sjálfstæð- isflokksins, sagði í Morgunblaðinu í gær að tilgangur frumvarpsins væri að sjá til þess að þakið fyrir afla- hlutdeild staks aðila yrði virt, en þakið er 12% af útgefnum kvóta. „Mér finnst það bara vera gloppa að þú getir eignast 49% í félaginu án þess að nokkuð af aflaheimildum þess teljist til þinna. Að mínu mati á þetta bara að vera hlutfallslegt,“ sagði Páll. „Inntakið virðist hljóma skyn- samlega en ég hef ekki kynnt mér þetta, en mér finnst þessi viðleitni jákvæð að koma fram með ein- hverjar hugmyndir í þessum mál- um,“ svarar Lilja Rafney Magn- úsdóttir, þingmaður Vinstri grænna og formaður atvinnuveganefndar, er blaðamaður spyr um afstöðu hennar til frumvarps Páls. „Maður hefur verið að glíma við þetta lengi og kannski mismikill vilji hjá viðeigandi ráðherrum að taka á þessu,“ segir Lilja Rafney. Þegar rætt var við hana hafði hún ekki séð umrætt frumvarp og þótti því ekki við hæfi að taka afstöðu til þess. Almennt séð segir Lilja Rafney að „löggjafinn verði að leita allra leiða til þess að koma í veg fyrir frekari samþjöppun í sjávarútvegi og það verði að vera eitthvert raunverulegt þak en ekki bara einhver sýnd- armennska.“ Þá sé mikilvægt að ákvæði laga um 12% þak sé skýrt og að komið verði í veg fyrir að hægt sé með krókaleiðum að komast hjá ákvæðinu. „Ég er mjög andsnúin þessari samþjöppun, bæði í litla kerfinu og stóra kerfinu, og tel að stjórnvöld verði að leita allra leiða til að koma í veg fyrir það,“ ítrekar Lilja Rafney. Tekur undir sjónarmið Páls Ásmundur Friðriksson, þingmað- ur Sjálfstæðisflokksins sem einnig á sæti í atvinnuveganefnd, kveðst taka undir þau sjónarmið sem Páll, flokksbróðir hans, lýsti í gær og seg- ir mikilvægt að ræða þá þætti er snúa að tengdum aðilum og eign- arhaldi í sjávarútvegi. Hins vegar segir hann erfitt að gefa upp afstöðu til frumvarps sem hefur ekki komið fyrir nefndina og einnig óljóst hvernig frumvarpið mun verða þeg- ar það kemur úr nefndinni. „Ég styð framlagningu frum- varpsins sem getur orðið til þess að bæta gagnsæi í sjávarútvegi,“ segir Ásmundur og bendir á að það eru fleiri þættir sem þarf að skoða í sam- bandi við aflahlutdeildir. Þá sé með- al annars hægt að auka gagnsæi og skilning almennings á kerfinu með því að hætta að ræða um þorskígild- istonn og einfaldlega tala um hlut- deild í skilgreindum tegundum. Til höfuðs ráðherra? „Mín fyrstu viðbrögð er að þetta er ákveðin atlaga að Kristjáni Þór Júlíussyni sjávarútvegsráðherra. Þetta er ákveðin yfirlýsing um skort á trausti í hans garð varðandi að tryggja að farið er að lögum í sjávar- útvegi,“ sagði Þórhildur Sunna Æv- arsdóttir, þingmaður Pírata, í sam- tali við 200 mílur á mbl.is í gær. Spurð hvort það komi til greina að styðja hugmyndir Páls, kvaðst Þór- hildur Sunna enn eiga eftir að skoða frumvarpið. „Ég tek öllu með væn- um skammti af salti sem kemur frá Sjálfstæðisflokknum og varðar sjáv- arútveginn, sér í lagi í aðdraganda prófkjara. En ég tek þessu með opn- um hug og styð markmið tillög- unnar. […] Ég veit hins vegar ekki hvort frumvarp Páls taki á raun- verulegum vanda, sem er skilgrein- ingin á tengdum aðilum.“ Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og varaformaður atvinnuveganefndar, fagnaði í gær tillögu Páls en þó með- þeim fyrirvara að frumvarpið taki á málinu með þeim hætti sem Páll lýsti í Morgunblaðinu. „Það er alveg ljóst að það að fáum aðilum sé gert kleift að fara með stóran hluta auð- lindarinnar gengur gegn almanna- hagsmunum,“ sagði Albertína. Kvótafrumvarp fær góðar viðtökur  Þingmenn taka vel í hugmyndir um takmarkanir aflahlutdeilda en með fyrirvörum  Formaður atvinnuveganefndar segir mikilvægt að sporna gegn samþjöppun  Pírati lýsir miklum efasemdum Morgunblaðið/Hari Afli Deilt hefur verið um hvernig skal skilgreina tengda aðila hvað varðar þak á aflahlutdeildum. Tillaga til að höggva á hnútinn var birt í gær. Lilja Rafney Magnúsdóttir Ásmundur Friðriksson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.