Morgunblaðið - 28.11.2020, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 28.11.2020, Qupperneq 14
BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Færri strokulaxar úr sjókvíaeldi veiddust í laxveiðiám á þessu ári en síðustu ár, svo staðfest sé. Tveir til þrír slíkir laxar eru til athugunar hjá Hafrannsóknastofnun og búið er að staðfesta að einn þeirra er úr til- kynntu atviki hjá sjókvíaeldisstöð. Verið er að arfgerðargreina annan lax og beðið er sýnis úr þeim þriðja. Þá hefur komið fram í fjölmiðlum að líffræðingur fann fjóra laxa sem hann telur vera eldislaxa í lítilli á í Arnarfirði. Matvælastofnun fékk þrjár til- kynningar um bilanir í búnaði sjókvía á Vestfjörðum og mögulegt strok í febrúar og apríl á þessu ári. Ástæðan var í öllum tilvikum vont veður. Sett voru út net eftir at- burðina en enginn lax kom í þau. Eigi að síður var ekki hægt að úti- loka strok, að mati Mast. Á síðasta ári urðu alls þrjú slík tilvik. Úr Berufirði í Seyðisfjörð Komið er í ljós að eldislax sem veiddist í sjó í Seyðisfirði var úr sjókvíum Fiskeldis Austfjarða við Glímeyri í Berufirði og er talið að hann hafi sloppið í september þegar gat kom á netpoka sjókvíar. Verið er að arfgerðargreina eldislax sem veiddist í Staðará í Steingrímsfirði og beðið er eftir sýni úr laxi sem veiddur var í Víðidalsá til að finna uppruna hans. Fiskeldisfyrirtækjum er skylt að afhenda Matvælastofnun erfðaefni allra fiska sem notaðir eru til undan- eldis og hvar seiðin síðan fara í sjó. Hafró sækir erfðaefnið til Matvæla- stofnunar og fær Matís til að bera það saman við sýni úr stroku- laxinum. Þannig er hægt að rekja uppruna eldislaxa sem veiðast til heimakvía. Þetta kerfi getur einnig verið gagnlegt þegar sjúkdómar koma upp. Fjórir líklegir að vestan Auk þeirra laxa sem Hafrann- sóknastofnun hefur fengið tilkynn- ingar um, og látið rannsaka, kom fram í skoðanagrein Jóhannesar Sturlaugssonar líffræðings í Frétta- blaðinu að af 26 hrygningarlöxum sem teknir voru úr Fífustaðadalsá í Arnarfirði voru fjórir eldislaxar runnir úr sjókvíaeldi, samkvæmt út- litskennum og hreisturgögnum. Tók hann fram að lífsýni af löxunum yrðu greind til að staðfesta niður- stöðurnar. Hafrannsóknastofnun hefur ekki fengið tilkynningar um þessa laxa eða sýni til rannsóknar, að sögn Ragnars Jóhannssonar, sviðsstjóra fiskeldis hjá stofnuninni. Hins vegar fékk Hafró tilkynningar frá Fiski- stofu um þrjá hugsanlega eldislaxa úr Fífustaðadalsá en þeir reyndust allir vera „Íslendingar“. Þess má geta að Fífustaðadalsá er afar lítil á og er í hringiðu mesta laxeldis- svæðis landsins. Sjókvíar eru til að mynda skammt frá árósum hennar, kenndar við Hringsdal. Ef greiningar á sýnum úr löxun- um sem veiddir voru í Víðidalsá og Fífustaðadalsá staðfesta að þeir eru af norskum eldisstofni og hægt verður að ættfæra þá til eldisstöðva hér verður heildarfjöldi veiddra strokulaxa ekki tveir til þrír heldur sjö. Það er svipað og á árinu 2019 en mun minna en 2018 þegar tólf eld- islaxar veiddust. Enginn af annarri kynslóð Hafrannsóknastofnun vaktar nokkrar ár sérstaklega, meðal ann- ars með myndavélum sem hægt er að skoða á netinu. Margir fylgjast með þessum myndböndum þannig að starfsmenn Hafró og Fiskistofu fá mikla hjálp við að greina hvort laxar sem ganga upp í árnar eru lík- legir eldislaxar. Enginn slíkur sást á myndböndunum í ár, að sögn Ragn- ars. Einnig fær Hafró margar ábendingar um hugsanlega eldislaxa frá veiðimönnum, meðal annars með ljósmyndum í umræðum í hópum þeirra á samfélagsmiðlum. Ekki eru því líkur á að eldislaxar sleppi framhjá þessu eftirliti. Frá árinu 2018 hefur Hafró látið greina 76 laxa vegna gruns um að þeir væru úr eldi. Reyndust 20 þeirra vera eldislaxar en afgang- urinn „Íslendingar“. Tólf þúsund seiði hafa verið tekin úr laxveiðiám til rannsóknar frá árinu 2017. Verið er að rannsaka þau með tilliti til þess hvort þau eru undan eldislöxum eða blendingar eldislaxa og laxa af stofni viðkom- andi ár. Unnið er að þessum rann- sóknum í samvinnu við norsku náttúrufræðistofnunina og er ekki lokið. Enn sem komið er hafa ekki fundist nein dæmi um lax af annarri kynslóð undan eldislaxi í íslenskum laxveiðiám. GRUNUR UM ELDISLAX Fífustaðadalsá, Arnarfi rði Fjöldi 4 Ekki verið tilkynnt til Hafró 22. JANÚAR 2019 Hringsdalur, Arnarfi rði Fyrirtæki Arnarlax Líklegar ástæður Galli í framleiðslu nótapokans ELDISLAX VEIDDUR Í LAXVEIÐIÁ Staðará í Steingrímsfi rði Fjöldi 1 Uppruni Í rannsókn GRUNUR UM ELDISLAX Víðidalsá Fjöldi 1 Uppruni Beðið eftir sýni 1. FEBRÚAR 2020 Eyrarhlíð, Dýrafi rði Fyrirtæki Arctic Fish Líklegar ástæður Vont veður 15. APRÍL 2020 Eyri, Patreksfi rði Fyrirtæki Arnarlax Líklegar ástæður Vont veður 16. MAÍ 2019 Laugardalur, Tálknafi rði Fyrirtæki Arnarlax Líklegar ástæður Óljóst ELDISLAX VEIDDUR Seyðisfjörður, í sjó Fjöldi 1 Uppruni Glímeyri, Berufi rði, ágúst 2019 Tilkynningar til Mast um bilanir á búnaði og mögulegt strok 2019-2020 Eldislaxar veiddir í laxveiðiám 2020 12 6 2018 2019 2020 Úr þekktum slysasleppingum 10 5 1 Óþekktur uppruni 1 1 Erlendur uppruni 1 1 Samtals 12 6 2 Eldislaxar veiddir í laxveiðiám 2 Heimild: Mast, Hafrannsóknastofnun o.fl . 2. APRÍL 2020 Hringsdalur, Arnarfi rði Fyrirtæki Arnarlax Líklegar ástæður Vont veður 17. SEPTEMBER 2019 Glímeyri, Berufi rði Fyrirtæki Fiskeldi Austfjarða Líklegar ástæður Þvottavél talin hafa orsakað gat Laxar raktir til heimakvíar  Unnið að arfgerðargreiningu eldislaxa úr laxveiðiám  Tveir staðfestir frá þessu ári en eftir að greina nokkra til viðbótar  Einn rakinn til sjókvíar í Berufirði  Þrjú hugsanleg strok tilkynnt Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Sjókvíaeldi Með því að bera saman erfðaefni hænga og strokulaxa sem leita upp í laxveiðiár má oftast finna út hvaðan laxarnir hafa strokið. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2020 VERIÐ VELKOMIN Í SJÓNMÆLINGU Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.