Morgunblaðið - 28.11.2020, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2020
Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com
Sölustaðir:
Hagkaup, Nettó, Melabúð, Fjarðarkaup, Heilsuhúsið, Frú Lauga, Matarbúðin,
Brauðhúsið, Fiskkompaní, Mamma veit best og Matarbúr Kaju Akranes
Frækex
Gott með ostum
Gott með álegg
Gott fyrir umhverfið
Gott fyrir þig
Keto, vegan, gluteinlaust
og að sjálfsögðu lífrænt
í umhverfisvænum
umbúðum
SVIÐSLJÓS
Birna G. Konráðsdóttir
Borgarfirði
Það lætur ekki mikið yfir sér að ut-
an, húsið í gamla bænum í Borgar-
nesi. Daufur ilmur af greni og ómur
af jólalögum gefa þó vísbendingu.
Gestir staldra við í dyrunum og
segja „vá“, því þeir eru engan veg-
inn viðbúnir þeirri dásemd sem við
blasir. Brosandi taka mæðgurnar
Svava Víglundsdóttir og Katrín
Huld Bjarnadóttir á móti þeim sem
kíkja í bæinn, um leið og stigið er
inn í þennan töfraheim jólanna, en
þær eiga og reka Blómasetrið og
Kaffi Kyrrð ásamt Unnsteini Ara-
syni. Öllu hefur verið smekklega
fyrirkomið, sóttvarnir virtar á kaffi-
húsinu og andrúmsloftið er afslapp-
að.
Svava Víglundsdóttir stofnaði
blómabúð árið 2006 í Borgarnesi og
var verslunin fyrst til húsa á öðrum
stað í bænum. Svava segir í gamni
að bóndinn hafi gleymt að gefa
henni blóm á konudaginn en bætt
það upp með því að kaupa heila
blómabúð. Þá verslaði hún eingöngu
með blóm og gjafavöru.
„Við keyptum þetta hús hér árið
2012, opnuðum kaffihúsið 1. júní og
lögðum áherslu á það ásamt heima-
gistingu. Við tókum síðan þá ákvörð-
un árið 2018 að hætta að vera með
afskorin blóm daglega, en bjóðum
áfram upp á pottablóm og pöntum
einnig afskorin fyrir fólk, ef það ósk-
ar þess.“
Það var með undraverðum hraða
sem húsinu var breytt frá því það
var keypt og þar til verslunin var
opnuð. „Við höfum getað gert mest-
allt sjálf,“ segir Svava og heldur
áfram. „Unnsteinn er húsasmíða-
meistari að mennt og við Kata erum
liðtækir handlangarar. Við hefðum
aldrei getað gert þetta ef við hefðum
þurft að kaupa iðnaðarmenn í alla
vinnu. Ég segi oft við bóndann:
Hafðu hamarinn og leyfðu mér að
hafa augað.“
Þær mæðgur eru sammála um að
það hafi verið mikið gæfuspor að
kaupa húsið sem hýsir verslunina
nú. „Við erum hér á álfhól,“ segir
Katrín, „í miklu og góðu nágrenni
við þá sem þar búa. Mikið er um
góðar og verndandi vættir í hólnum
sem viðskiptavinir okkar finna fyrir,
án þess jafnvel að gera sér grein fyr-
ir því. Alla jafna gengur fólk glaðara
héðan út en það kom inn því þessi
góða orka smitast inn í alla króka og
kima hússins. Við segjum því hiksta-
laust að allir fái hjálp hérna inni,“
segir hún leyndardómsfull.
Í búðinni vappar jafnframt um lít-
ill hundur sem kætir marga, ekki
síst yngstu kynslóðina. Hann heitir
Álfur, hvað annað?
Gjafavaran aukin
Í nokkurn tíma hefur verslunin og
kaffihúsið verið í mótun. „Við höfð-
um svona verið að finna taktinn,“
segir Katrín brosandi. „Árið 2018
var fjölskyldunni erfitt. Það voru
mikil veikindi og við ákváðum, úr því
að allir komust heilir út úr því, að
staldra við og athuga hvað okkur
langaði að gera, á hvað við vildum
leggja áherslu. Mamma er mikið
jólabarn og hefur gaman af því að
skreyta. Við höfum því verið að auka
við gjafavöruna almennt og fyrir
þessi jól ákváðum við að bæta
hressilega í allt það sem viðkemur
jólum. Okkur hefur heyrst að það
hafi mælst vel fyrir. Og enn eru
kerti af öllum gerðum það sem
heillar ekki síst fyrir jólin, alla vega
eru sem stendur Völuspár-kertin og
snúin kerti í mörgum litum það sem
er vinsælast.“
Breytingar á aðventunni
Alla jafna hefur Kaffi Kyrrð boðið
upp á aðventuhlaðborð á sunnudög-
um á þessum tíma árs með heima-
gerðum brauð- og rjómatertum
ásamt ýmsu öðru góðmeti. Á því
verður breyting að þessu sinni.
„Við verðum að hlýða Víði,“ segir
Katrín kímin, „við ætlum því að að-
laga okkur því sem er í gangi í sam-
félaginu og bjóða upp á „smörre-
bröd“ í staðinn. Það verður auðvitað
skreytt eftir kúnstarinnar reglum.
En þessi aðventuhlaðborð hafa verið
afar vinsæl. Fólki finnst gott að
skreppa aðeins út og líta upp úr önn-
um við undirbúning jólanna, kíkja
við og fá sér gott kaffi og með því.
Reyndar bjóðum við upp á gott kaffi
allan ársins hring en aðventustemn-
ingin er auðvitað bara í boði á að-
ventunni. Við munum einnig hafa á
boðstólum jólaöl frá brugghúsum og
sérstakan jóladrykk Kaffi Kyrrðar
hvort sem fólk kýs að hafa hann
heitan eða kaldan. Svo má ekki
gleyma jólakortahorninu okkar, þar
sem hægt er að setjast niður og
skrifa jólakveðjurnar og meira að
segja er hægt að kaupa jólakortin
hér og við munum póstleggja þau, ef
fólk kýs svo. Hornið hefur verið
nokkuð vinsælt.“
Taíland og Indland mótuðu
En af hverju blómabúð? Upphafið
að öllu þessu má rekja til ferðar sem
Svava fór til Taílands og Indlands
sem ung stúlka, árið 1975. „Það mót-
aði hana fyrir lífstíð að fara þangað,“
segir Katrín. „Henni fannst ljúfa
viðmótið, persónulega þjónustan
sem þar var veitt, ásamt gleðinni,
kærleikanum og afslöppuðu and-
rúmsloftinu svo meiriháttar.“ Og
Svava bætir við að hún hafi þá þegar
ákveðið að ef hún færi einhvern tíma
í verslunarrekstur yrði það á þess-
um nótum. „Og það erum við að
reyna hér,“ segir hún og nefnir að
viðskiptavinirnir séu afar ánægðir
með hvernig hefur til tekist. „Marg-
ir hafa á orði að þeim líði eins og þeir
séu að heimsækja ömmu eða gamla
frænku þegar þeir koma hingað inn.
Gömlu húsgögnin spila þar inn í en
einnig sá kærleikur og notalega and-
rúmsloft sem hér svífur yfir vötn-
unum. Það finnst okkur afar vænt að
heyra því við teljum að hjartað þurfi
að vera með í svona verslun, annars
virkar hún ekki. Það eru því allir
hjartanlega velkomnir í töfraheim
jólanna,“ segja þær mæðgur bros-
andi og benda fólki einnig á að kíkja
á facebooksíðu fyrirtækisins,
Blómasetrið – Kaffi Kyrrð.
Jólalegt Ekkert vantar upp á hugmyndaflugið í jólaskreytingum í Blómasetrinu. Jólasveinninn lengst til hægri hefur fylgt eigendum sínum um langa hríð.
Töfraheim-
ur jólanna
Jólastemningin fönguð í Blóma-
setrinu og Kaffi Kyrrð í Borgarnesi
Morgunblaðið/Birna G. Konráðsdóttir
Í Blómasetrinu Mæðgurnar Katrín Huld Bjarnadóttir og Svava Víglundsdóttir og hundurinn Álfur sem gleður gesti.