Morgunblaðið - 28.11.2020, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 28.11.2020, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2020 Þú finnur örugg tilboð á www.securitas.is/vefverslun SV AR TU R FÖSTUDAGUR20% AFSLÁTTUR AF ÖLLU Í VEFVERSLUN27. - 30. NÓVEM BE R Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Nýr fréttatengdur þáttur á Rás 1, Hádegið, hefur göngu sína næst- komandi þriðjudag, 1. desember. Þátturinn nýi verður á dagskrá alla virka daga milli kl. 12:02 og 13:00 og er í raun tvískiptur; um það bil 10 mínútur fyrir hádegisfréttir og um 20 mínútur að þeim loknum. Um- sjónarmenn þáttarins verða Guð- mundur Björn Þorbjörnsson og Katrín Ásmunds- dóttir og til um- fjöllunar verða málefni líðandi stundar með fréttaskýringum, viðtölum, um- ræðum, stuttum pistlum og öðru slíku. Þátturinn verður aðgengilegur í Spilaranum á vefnum ruv.is og öllum helstu hlað- varpsveitum strax að lokinni útsend- ingu. Fastir liðir felldir inn í heildstæðan þátt „Við höfum lengi horft til þess að styrkja hádegisútvarpið, einmitt þann tíma dagsins þegar flestir leggja við hlustir. Til þessa hafa í há- degisútvarpinu verið ýmsir fastir lið- ir sem nú verða felldir inn í heild- stæðan þátt sem við erum mjög spennt fyrir. Við væntum þess að hlustendur eigi eftir að kunna að meta það að fá vel unnið og áhuga- vert útvarpsefni um málefni líðandi stundar í hádeginu,“ segir Þröstur Helgason dagskrárstjóri í samtali við Morgunblaðið. Hádegisfréttatíminn verður á sín- um stað kl. 12:20 og sömuleiðis síð- asta lag fyrir fréttir; íslenskt söng- lag sem landinn lætur sig jafnan miklu varða hvert er og hver syngur. Strax að loknum fréttum munu um- sjónarmenn fara yfir veðurspána, en horfið verður frá því að vaktmaður á Veðurstofu Íslands lesi veðurfréttir eins og verið hefur. „Veðurfréttirnar í þeirri mynd sem við þekkjum hæfa kannski ekki blæ eða svip þáttarins nýja. Þá ber að hafa í huga að spáin í hádeginu er orðin nokkurra klukkustunda gömul og hefur áður verið lesin í veður- fréttatíma kl. 10:05 sem að sjálf- sögðu verður áfram á dagskránni. Sé svo eitthvað mikið að gerast, veðrabrigði í nánd eða viðvaranir af einhverjum toga, verða veðurfræð- ingar á línunni, ef ástæða er til,“ seg- ir Þröstur Helgason. Krufið til mergjar Unnið hefur verið að undirbúningi þáttarins Hádegisins um nokkurt skeið og Guðmundur Björn Þor- björnsson verður ritstjóri. Sam- félagsmál í sinni víðustu mynd verða á dagskrá þáttarins, bæði fréttir stundarinnar og annað sem vekur forvitni. „Þetta geta verið pólitík, neyt- endamál, íþróttir, erlend málefni og svo framvegis. Ýmis mál verða kruf- in til mergjar og hugtök einnig út- skýrð. Loftslagsbreytingar, stýri- vextir, verg landsframleiðsla eða stjórnarskrárákvæði; þessi orð og fleiri þekkja allir en hvað þau merkja er önnur saga og slíku mun- um við leitast við að svara í þætti á besta hlustunartíma dagsins,“ segir Guðmundur Björn sem starfað hefur hjá RÚV sl. fimm ár en Katrín skemur. Bæði hafa þau verið á fréttastofunni en einnig sinnt gerð ýmissa þátta á Rás 1. „Því fylgir mikil ábyrgð að fjalla um fréttir og fréttatengd efni. Mik- ilvægt er að leggja sig allan fram við að vinna af heilindum, kynna sér efnistök og nálgast viðfangsefnin frá ólíkum áttum,“ segir Katrín Ás- mundsdóttir. „Sérstaklega finnst mér spennandi þegar hægt er að fara á dýptina og skoða málefni í stærra samhengi við samfélagið, sem getur þó verið krefjandi í hröðu fréttaumhverfi. Að annast slíka um- fjöllun í fréttaþættinum Hádeginu er því spennandi áskorun.“ Hádegisútvarpið eflt með nýjum þætti  Fréttir, viðtöl, pistlar og síðasta lag  Rás 1 á RÚV Morgunblaðið/Eggert Útvarpsfólk Katrín Ásmundsdóttir og Guðmundur Björn Þorbjörnsson í hljóðveri við undirbúning á þættinum sem fer í loftið nk. þriðjudag. Þröstur Helgason Samningar voru undirritaðir í gær um kaup Sigtúns þróunarfélags á Landsbankahúsinu við Austurveg á Selfossi. Fjögur tilboð bárust og var tilboð Sigtúns það hæsta, 352 millj- ónir króna. Landsbankinn mun leigja hluta hússins undir starfsemi sína uns flutt verður á nýjan stað. „Þessi kaup eru liður í uppbygg- ingu okkar á Selfossi og undirstrika þá sannfæringu sem við höfum fyrir framtíðarmöguleikum bæjarins,“ segir Leó Árnason stjórnarformaður Sigtúns. Hann segir óákveðið hvern- ig húsið nýtist, en það skýrist vænt- anlega innan tíðar. Landsbankahúsið á Selfossi var reist 1949-1953, eftir teikningum Guðjóns Samúelssonar arkitekts. Guðjón teiknaði einnig byggingu Mjólkurbús Flóamanna á Selfossi sem var reist 1929 en rifin 1956. Í nýjum miðbæ á Selfossi, sem nú er verið að reisa á vegum Sigtúns, verð- ur hús í sama stíl og gamla mjólkur- búið. Þannig myndast því tenging við húsameistarann. Lilja Björk Einarsdóttir, banka- stjóri Landsbankans, segir húsið á Selfossi of stórt fyrir núverandi starfsemi. Flutt verði í hentugra hús, sem óvíst sé hvert verði. sbs@mbl.is Selja Landsbanka- húsið á Selfossi  Sigtún kaupir á 352 millj. kr.  Möguleikar Morgunblaðið/Sigurður Bogi Selfoss Hús Landsbankans er svipsterkt og stendur við aðalgötu bæjarins. „Ríkisútvarpið er að mínu mati ein mikilvægasta menningarstofnun þjóðarinnar,“ segir Stefán Eiríks- son útvarpsstjóri „Auðvitað hefur margt breyst á þessum níutíu árum sem RÚV hefur starfað og ekki bara í tækniumhverfinu, en á sama langa tímabili hefur kjarninn í starfsem- inni verið hinn sami. Að miðla upplýsingum og fréttum, sinna menningar- hlutverki sínu með fjölbreyttum hætti og skemmta fólki.“ Fréttir réttar og traustar Fyrstu útsendingar Ríkisútvarps- ins voru dagana 20. og 21. desember 1930. Í tilefni þessa 90 ára afmælis verður fjölbreytt afmælisdagskrá á Rás 1 í desember. Á dagskrá verður meðal annars 21 örþáttur undir yfirskriftinni Það sem skiptir máli. Þar munu viðmælendur, jafnmargir þáttunum, segja hvað þeim finnst skipta mestu máli nú þegar þetta undarlega ár er að líða. Þættirnir verða sendir út dagana 1.-21. des- ember kl. 13:03 og eru í umsjón Þor- gerðar E. Sigurðardóttur. Þær Anna Sigríður Þráinsdóttir og Jó- hanna Vigdís Guðmundsdóttir sjá svo um þrjá þætti um stöðu íslenskr- ar tungu nú á 90 ára afmælinu. Á afmælisdeginum sjálfum, 21. desember, verður útsending úr öll- um þeim húsum í Reykjavík þar sem Ríkisútvarpið hefur verið með starf- semi sína á síðastliðnum níutíu ár- um; Hafnarstræti 12, Landssíma- húsinu við Austurvöll, Skúlagötu 4 og Efstaleiti. Í þessum útsend- ingum verða meðal annars rifjaðir upp nokkrir atburðir og sagt frá fólki sem tengst hefur Ríkisútvarp- inu í tímans rás. „Ég tel að hlutverk og erindi Ríkisútvarpsins sé mikilvægt í dag, ekki síður en á undanförnum ára- tugum. Þar koma meðal annars inn atriði eins upplýsingaóreiða. Það er ánægjulegt að sjá að traust til fréttastofu RÚV er á stöðugri upp- leið samkvæmt mælingum sem gerðar eru tvisvar á ári og hefur aldrei mælst hærra en nú. Það er öflugt mótvægi við aukna upplýs- ingaóreiðu að vita hvert hægt sé að leita eftir réttum og traustum fréttum og upplýsingum.“ Fjölmiðlar þróist með tækni Hröð tækniþróun er ein af þeim stóru áskorunum sem fjölmiðlar standa frammi fyrir. Stefán segir margt hafa breyst síðan hann vann sem blaðamaður fyrir 30 árum, þótt störf þeirra sem vinna á fjöl- miðlum séu í grunninn þau sömu. „Það eru í sjálfu sér ekki mörg ár síðan hefðbundið útvarp og sjón- varp voru einu leiðirnar til að nálg- ast okkar efni. Þær eru orðnar mun fleiri í dag og fjölbreyttari. Þróunin á næstu árum verður áfram mjög hröð og mikilvægt að fjölmiðlar hér á landi þróist í takt við tæknina. Áfram mun þó sjálfur grunnurinn skipta öllu máli, það er að búa til og miðla gæðaefni til fólksins í landinu eins og Rík- isútvarpið hefur gert með sóma síðastliðin 90 ár,“ segir Stefán Ei- ríksson. Morgunblaðið/Eggert Efstaleiti RÚV er mikilvæg menningarstofnun, segir útvarpsstjóri um starfsemina, sem verði að þróast í takt við samfélag og tækni. Mikilvægt í óreiðunni Ríkisútvarpið hefur verið í loftinu í 90 ár Stefán Eiríksson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.