Morgunblaðið - 28.11.2020, Page 20

Morgunblaðið - 28.11.2020, Page 20
ÚR BÆJARLÍFINU Albert Eymundsson Höfn Kórónuveirufaraldurinn hefur sín áhrif hér um slóðir eins og ann- ars staðar. Bæjarlífspistillinn verður því með nokkuð breyttum áherslum að þessu sinni þar sem félagslíf, uppákomur og tómstundir eru ekki áberandi eins og gefur að skilja.    Ferðaþjónustan í héraðinu hefur byggst hratt upp á síðustu ár- um og er ein af undirstöðuatvinnu- greinum héraðsins með fjölda starfa. Faraldurinn bitnar helst á ferðaþjónustunni og fara íbúar hér ekki varhluta af því eins og atvinnu- leysistölur sýna. Fólkið tekur ástandinu þó almennt af yfirvegun og notar tímann til að búa í haginn. Þrátt fyrir erfiða tíma er mikill kraftur í samfélaginu segir bæj- arstjórinn Matthildur Ásmunds- dóttir.    Iðnaðarmenn hafa næg verk- efni, mikið er byggt og íbúar dugleg- ir að halda við eignum sínum. Meðal verkefna er bygging raðhúss með átta íbúðum á góðum stað fyrir eldri íbúa og eru allar seldar. Byrjað er að undirbúa byggingu fleiri sambæri- legra íbúða. Svo fagna Skaftfellingar miklum framkvæmdum í brúargerð og fækkar þar með einbreiðum brúm á hringveginum sem eru flest- ar í sýslunni.    Hitaveituframkvæmdum hef- ur miðað vel undanfarið. Verið er að ljúka við lagningu 20 km stofnlagnar frá Hoffelli til Hafnar samhliða byggingu dælustöðva. Stefnt er að því að tengja nýju stofnlögnina við dreifikerfi veitunnar á Höfn fyrir áramót. Fyrst um sinn munu þannig um 2⁄3 hlutar húsa á Höfn sem í dag tengjast fjarvarmaveitu RARIK tengjast hitaveitunni.    Á tímum sem þessum kemur sér vel að hafa öflug sjávarútvegs- fyrirtæki í sveitarfélaginu. Starfs- fólk Fiskmarkaðsins lætur vel af afla báta þegar gefur á sjó. Skinney- Þinganes heldur uppi vinnslu á bol- fiski og síld en stuttri síldarvertíð var að ljúka í vikunni. „Þrátt fyrir enga loðnuveiði, hrun í humarveiðum og miklar sveiflur á mörkuðum kvörtum við ekki. Með góðu starfsfólki, fjöl- breyttum vinnslubúnaði ásamt því að stjórna fiskveiðunum tekst okkur að skapa samfellda vinnu fyrir fólk- ið,“ sagði Ásgeir Gunnarsson, út- gerðarstjóri hjá Skinney-Þinganesi. Tvær nýjar verslanir hófu rekstur nýverið. Önnur er í elsta íbúðarhúsinu á Höfn, Kaupfélags- húsinu, þar sem fyrir er veitinga- staðurinn Ottó. Auður Mikaels- dóttir, eigandi Kaupfélagshússins, segir að heimamenn hafi verið dug- legir að fara út að borða undanfarið en hún vildi auka umsvifin í húsinu og í aðdraganda aðventunnar kom upp sú hugmynd að bjóða upp á ýmsar heimilistengdar vörur í kjall- ara hússins. Önnur verslun nefnist Berg- spor og segist eigandi hennar, Erla Berglind, vera bjartsýn á fram- haldið en auk þess að versla með fatnað, skó, handklæði, sængurföt, handavinnuefni o.fl. saumar hún merkingar á ýmislegt fyrir fólk. Sömuleiðis má nefna nýjan veit- ingastað, Úps, sem bætist í fjöl- breytta flóru veitingastaða og var nýlega fjallað um í frétt í blaðinu.    Helgistundir á netinu hafa komið í stað almennra athafna í kirkjum prestakallsins. Prestarnir okkar hafa tekið upp fjölbreyttar helgistundir í öllum sjö kirkjum í héraðinu og notað tækifærið til að segja sögu kirknanna, sýna hönnun þeirra og ýmsa muni. Hefur þessu verið vel tekið. Morgunblaðið/Albert Byggt Verið er að byggja raðhús með átta íbúðum á góðum stað á Höfn fyrir eldri íbúa og eru allar seldar. Mikill kraftur í samfélaginu 20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2020 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Vefverslunin alltaf opinwww.listverslun.is Verkfæralagerinn án.-m. kl. 9-18, fs. kl. 9-180, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-1 Kolibri trnur í miklu úrvali, gæða- vara á góðu verði Kolibri penslar Handgerðir þýskir penslar í hæsta gæðaokki á afar hagstæðu verði Ennþá meira úrval af listavrum WorkPlus Strigar frá kr. 195 „Að í hverju byggðarlagi sé dag- vöruverslun er grunnþjónusta. Sveitarfélagið lætur þetta mál sig því miklu varða og við setjum all- an okkar kraft í að tryggja áfram slíkan rekstur hér á staðnum,“ segir Sandra Brá Jóhannsdóttir sveitarstjóri Skaftárhrepps. Forsvarsmenn Festar hf., sem rekur Kjarval og fleiri búðir, tilkynntu fyrr í vikunni fyrirhugaða lokun verslunar fyrir- tækisins á Kirkjubæjarklaustri frá og með áramótum. Húsnæði versl- unarinnar hefur jafnframt verið selt og verður í byrjun febrúar afhent nýjum eigendum. Þeir eru eigendur veitingahússins Systrakaffis sem nú skoða möguleikann á því að opna sjálfir verslun, sem kæmi í stað Kjarvals. Forsvarsmenn Festis hafa kynnt og boðið íbúum og sveitarstjórn í Skaftárhreppi að efla þjónustu á svæðinu með netverslun. Að fólki bjóðist að panta vörur sem svo séu afhentar tvisvar í viku og megi nálg- ast á völdum stöðum eystra. Lítill hljómgrunnur er fyrir því. Mjólk og brauð á beinsínstöð „Sú þjónusta dugar okkur alls ekki, né heldur að við fáum mjólk, brauð og allra helstu nauðsynjar með hárri álagningu á bensínstöð. Við í dreifbýlinu viljum og þurfum að vera jafnsett öðrum um sjálfsagða þjónustu,“ segir Sandra Brá. „Við eðlilegar aðstæður fara hér þúsundir ferðamanna í gegn á hverjum degi og fyrir vikið ætti verslunarrekstur hér að vera vel arðbær. Þótt fáir séu á ferðinni einmitt núna búast allir við að ferðaþjónustan verði aftur komin á snúning í vor og þá eru betri að- stæður. Að Festi ætli að loka versl- uninni nú vegna tímabundis ástands finnst mér einfaldlega ábyrgðarlítið gagnvart samfélaginu hér.“ Sandra Brá væntir þess að niður- staða fáist í verslunarmálin á Klausti innan tíðar. Verkefni þetta sé í for- gangi hjá stjórnendum sveitar- félagsins. Fyrsta val sé að heimafólk taki við keflinu, en ef ekki verði leit- að annarra leiða. Ljóst sé þó að ein- hver eyða geti myndast, því núver- andi verslunarhús þurfi endurbóta við áður en nýir kaupmenn taka við, hverjir sem það verði. sbs@mbl.is Grunnþjónusta við íbúana sé tryggð  Kjarvali lokað  Klaustur er arðbært Sandra Brá Jóhannsdóttir Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri Húsasmiðjan hefur hafið byggingar- framkvæmdir við Freyjunes á Akur- eyri og hyggst flytja starfsemi sína frá Lónsbakka þar sem hún hefur verið um árabil og í nýtt húsnæði í Nesjahverfi. Fasteignir á Lónsbakka þar sem Húsasmiðjan er nú eru í eigu fast- eignafélags ótengds Húsasmiðjunni. Árni Stefánsson, forstjóri Húsa- smiðjunnar, segir að jarðvinna sé langt komin. Eftir útboð í haust var samið við Tréverk um uppsteypu sökkla og er sú vinna nú að hefjast. „Þetta verður glæsileg Húsa- smiðju- og Blómavalsverslun ásamt því að rafiðnarheildsalan Ískraft verður jafnframt opnuð í sama hús- næði,“ segir Árni. Verslunin verður um 5.000 fer- metrar að stærð og segir Árni að stefnt sé að því að opna hana á síðari hluta næsta árs. Nýja verslunin verður nær miðju Akureyrar og nýja staðsetningin hentar smásöluverslun betur. Sér- hönnuð út frá þörfum viðskiptavina. Húsasmiðjan á langa viðskiptasögu á Lónsbakka en Árni segir að menn sjái tækifæri í að flytja starfsemina í nýtt húsnæði þar sem meðal annars verður innangengt í timbursöluna og staðsetning nýju lóðarinnar sé frá- bær. „Verslunin verður sérhönnuð út frá þörfum viðskiptavina okkar, og við erum sannfærð um að Akureyr- ingar og nærsveitamenn muni fagna nýju versluninni og því aukna vöru- úrvali sem þar verður,“ segir Árni enn fremur.  Framkvæmdir á fullt við Freyjunes  Færa sig nær miðpunkti bæjarins Morgunblaðið/Margrét Þóra Þórsdóttir Freyjunes Jarðvegsframkvæmdir eru hafnar á Akureyri vegna áforma Húsasmiðjunnar um að byggja nýtt og stærra verslunarhúsnæði. Húsasmiðjan stækkar við sig á Akureyri

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.