Morgunblaðið - 28.11.2020, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 28.11.2020, Qupperneq 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2020 Kvöldroði Keilir laðar til sín linsur ljósmyndaranna, ekki síst að kvöldlagi þegar sólin er að setjast. Fjallið er okkar egypski píramídi norður á norpandi Íslandi. Kristinn Magnússon „Lífeyrissjóður er launþegans“ er yf- irskrift greinar sem Inga Sæland alþing- ismaður birti í Morg- unblaðinu 24. nóv- ember sl. og það er vissulega bæði satt og rétt. Í sjálfri greininni er hins vegar að finna staðhæfingar og álykt- anir sem ekki standast og eru því ekki fallnar til þess að skila okkur fram á veginn í upp- lýstri umræðu um lífeyrissjóðakerf- ið. 1. Skylduaðild að lífeyrissjóðum á rætur að rekja til kjarasamnings á almennum vinnumarkaði vorið 1969. Verkalýðshreyfingin hefur all- ar götur síðan þá talið þetta skref vera eitt hið merkasta í sam- anlagðri baráttusögu sinni á öldinni sem leið. Grunngildi skylduaðildar eru að tryggja launafólki eft- irlaun til æviloka og vera öryggisnet gagn- vart skakkaföllum hve- nær sem er á lífsins leið. 2. Lífeyrisréttindi í samtryggingardeildum eru eign sjóðfélaga og lögvarin sem slík. Þetta hefur verið stað- fest margsinnis með dómum og er hafið yfir allan vafa. 3. Lífeyrisréttindi í samtrygging- ardeildum jafngilda ekki fjár- munum sem sjóðfélagar „eiga“ heldur eru þau réttindi sem fólk öðlast á vinnumarkaði og gengur síðan að eftir atvikum sem eft- irlaunum, örorkulífeyri, makalífeyri eða barnalífeyri. 4. Þessi réttindi erfast ekki en þau gilda óháð því hve lengi við- komandi greiða í samtrygging- ardeildirnar. Sumir lenda í skakka- föllum snemma á ævinni eða deyja um aldur fram, aðrir lifa lengi, eru lengi heilsuhraustir og fá jafnvel greidd eftirlaun mun lengur en sem svarar til iðgjalda sem þeir greiddu til kerfisins á starfsferli sínum. Þetta er eðli máls samkvæmt, þann- ig virkar samtryggingarkerfi. 5. „Kaldhæðnislegt en satt að stjórnirnar [í lífeyrissjóðunum] eru að meirihluta skipaðar fulltrúum at- vinnurekenda“ skrifar alþingismað- urinn. Rangt. Allt frá 1969 hafa stjórnir vinnumarkaðstengdra sjóða verið skipaðar að jöfnu fulltrúum samtaka atvinnurekenda annars vegar og launafólks hins vegar. Þetta stjórnarfyrirkomulag hefur reynst farsælt. 6. Séreignarsparnaður er allt annars eðlis en samtryggingarhluti lífeyrissjóðakerfisins. Fólk ákveður sjálft hvort það vill yfirleitt leggja fyrir í séreignarsparnað og þá hve- nær það hefur slíkan sparnað eða hættir og í hvaða sjóði greitt er. 7. Séreign er ekki ávísun á rétt- indi heldur sérgreindir fjármunir sem sjóðfélagi felur vörsluaðila að ávaxta fyrir sig þar til kemur að því að taka út sparnaðinn. Séreign rennur til maka og barna við fráfall eigenda hennar. 8. Lífeyrisréttindi í samtrygging- arsjóðum eru gríðarlega mikilvæg eign sjóðfélaganna og fela í sér afar hagkvæma tryggingu sem fólk nýt- ur. Því miður líta samt alltof fáir á lífeyrisréttindi sín sem tryggingu en það er einmitt eitt af meginhlut- verkum lífeyrissjóða að veita fjár- hagslega vernd ævina á enda: SAM- trygging! Inga Sæland horfir fram hjá þessu eðli lífeyrissjóðakerfisins. 9. Íslenska lífeyrissjóðakerfið er skilvirkt, öflugt og þjónar hlutverki sínu afar vel. Til þess er horft sem fyrirmyndar víðs vegar að úr ver- öldinni. Skilja má skrif alþing- ismannsins á þann veg að réttast væri að leggja af skyldugreiðslur til samtryggingar lífeyrissjóðakerf- isins og að hver sjái bara um sig. Slíkt væri fráleitt og víst er að margur maðurinn myndi þá hugsa og segja upphátt: Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Eftir Þóreyju S. Þórðardóttur » Íslenska lífeyris- sjóðakerfið er skil- virkt, öflugt og þjónar hlutverki sínu afar vel. Til þess er horft sem fyrirmyndar víðs vegar að úr veröldinni. Þórey S. Þórðardóttir Höfundur er framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða. Áréttað um lífeyrissjóði Ríkið er skrítin skepna. Hagar sér með furðulegum og mótsagna- kenndum hætti í sumum málum, til dæmis húsaleigumálum. Ríkið á eðli máls samkvæmt margar byggingar. Sumar hverjar notar það undir eigin starfsemi, aðrar eru leigðar út til reksturs þar á meðal hjúkr- unarheimila. Ein af þeim fasteignum sem eru í eigu ríkisins og umsjá Rík- iseigna er hjúkrunarheimilið á Höfn í Hornafirði, Skjólgarður. Skv. gögn- um sem ég hef undir höndum greiðir Skjólgarður rúmlega 1,5 milljónir á mánuði í húsaleigu til ríkisins/ Ríkiseigna af því húsnæði sem hjúkr- unarheimilið er rekið í, eða rúmlega 18 milljónir á ári. Þessir peningar eru greiddir af daggjöldum sem Skjólgarður fær skv. samningi sínum við Sjúkratryggingar Íslands en í 11. gr. þess samnings segir meðal ann- ars að svokölluðu húsnæðisgjaldi sé ekki ætlað að standa undir stofn- kostnaði, afskriftum og meiri háttar breytingum. Þá segir í 14. gr. sama samnings að það sé óheimilt að ráðstafa fé í annað en er tilgreint í samn- ingnum og það kemur ekkert fram í honum að það megi greiða húsa- leigu af þessum aurum, eins og reyndar er gef- ið einnig í skyn í 11. gr. Það sem er að gerast hjá Skjólgarði er að ríkið er að neyða þau til að brjóta samninginn með því að innheimta þessa húsaleigu með þessum hætti auk þess sem ríkið er að skerða þjón- ustu við þá heimilismenn sem þar búa um rúmlega 18 milljónir á ári þar sem það er alls ekki gert ráð fyr- ir slíkum útgjöldum í rekstrarsamn- ingnum. Það væri hægt að gera ým- islegt fyrir heimilismenn Skjólgarðs fyrir þessar 18 milljónir sem ríkið innheimtir í húsaleigu. Og ætli Sjúkratryggingar Íslands viti af því að Skjólgarði er gert að brjóta samn- inginn við SÍ með þessum hætti? Að boðvaldi ríkisins? Á sama tíma hafa Grundarheimilin Grund og Ás, ásamt Hrafnistu, þurft að höfða mál á hendur ríkinu til að reyna að fá greidda sanngjarna húsaleigu fyrir það húsnæði sem heimilin útvega ríkinu til að veita öldrunarþjónustu. Málið var dæmt okkur í óhag í héraði og Landsrétti en Hæstiréttur tekur það fyrir í byrjun næsta árs. Framangreint lýsir talsverðum tvískinnungi af hálfu ríkisins í húsa- leigumálum. Rukka aðra fyrir það húsnæði sem ríkið útvegar í hjúkr- unarheimilisþjónustu á sama tíma og það neitar að greiða húsaleigu til annarra sem útvega ríkinu húsnæði í hjúkrunarheimilisþjónustu. Vægast sagt furðulegt í alla staði. Eftir Gísla Pál Pálsson og Guð- rúnu Döddu Ásmundardóttur »Og ætli Sjúkratrygg- ingar Íslands viti af því að Skjólgarði er gert að brjóta samninginn við SÍ með þessum hætti? Að boðvaldi ríkisins? Gísli Páll Pálsson Gísli Páll er formaður Samtaka fyr- irtækja í velferðarþjónustu og Guð- rún Dadda er framkvæmdastjóri Skjólgarðs – öldrunarþjónustu. gisli@grund.is og gudrundadda- @hornafjordur.is Guðrún Dadda Ásmundardóttir Tvískinnungur ríkisins í húsaleigumálum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.