Morgunblaðið - 28.11.2020, Page 28

Morgunblaðið - 28.11.2020, Page 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2020 Átímum „tilfinninga-upplifana“ og „ást-arkrafts“ er við hæfi aðminnast Áslaugar, konu Ragnars loðbrókar. Heimir fóstri hennar leyndi henni í hörpu sinni og flutti hana frá Hlymsdölum til Noregs eftir að faðir hennar Sig- urður Fáfnisbani hafði verið drepinn og móðir hennar Bryn- hildur lagt sig sverði, „og var hún brennd með Sigurði“. Á Spangarheiði drápu gestgjaf- arnir Heimi en „gerðu Áslaugu koll“ og báru tjöru í bert höfuð hennar og kölluðu hana Kráku. Hér ólst hún upp við illan kost uns Ragnar konung loðbrók bar að garði. Þá hafði hún með leynd getað látið hárið vaxa undir síð- um hetti. Og þegar hún þurfti að ganga fyrir konunginn lét hún það hylja allan líkama sinn, að vísu með urriðanet yfir sér, enda var það skipun Ragnars að hún kæmi hvorki klædd né óklædd á hans fund. Í þessari sögu glittir í ofurást milli Áslaugar og stjúpsonar henn- ar; hann hafði verið handtekinn í Svíþjóð eftir misheppnaða herferð – sem hann fór hennar vegna. Á dauðastund lét hann senda Áslaugu hring sinn. Þegar hringurinn barst henni felldi hún tár„en það var sem blóð væri álits en hart sem haglkorn“. Áslaug hefndi hans og hét þá Ran- dalín. Spenna hafði verið í hjónabandinu – enda hafði Ragnar ætlað að svíkja Ás- laugu og ganga að eiga sænska kóngsdóttur. Fuglar sögðu Áslaugu frá þessum svikum. Á brúðkaupsnótt þeirra hjónanna hafði Ragnar viljað „eiga hjú- skaparfar“ við Áslaugu en hún beðið hann að bíða með það í þrjár nætur. Hann gaf því engan gaum. Hún eignaðist beinlausan son. Af Ívari beinlausa er löng saga; hann gerðist konungur yfir Eng- landi. En „hann átti ekki barn því að hann var svo skapaður að hon- um fylgdi engin girnd né ást“. Bölvun brúðkaupsnæturinnar? Hár Áslaugar beinir huga okkar að hári Hallgerðar langbrókar og þar með að þeim áhrifum sem Áslaug hefur haft á stallsystur sínar í Íslendingasögum. Bjarni Guðnason sagði um Áslaugu í snjallri grein árið 1969: „Margar kvenhetjur Íslendingasagna spegl- ast í henni.“ Rétt eins og hár Hallgerðar birtist okkur á ný við ævi- lok Gunnars (kraftur hatursins), þá sjáum við hár Áslaugar á ör- lagastund í lífi hennar: Þegar hún fær kveðju stjúpsonarins situr hún í hásæti „og ætlaði að kemba sér, og hárið hafði hún leyst“. Ragnar var í herleiðangri. Átti Áslaug kannski von á stjúpsyninum sjálfum en ekki frétt um dauða hans á þessu magnþrungna augna- bliki? Og enn kemur hár Áslaugar við sögu: Þegar hún kvaddi Ragnar í hinsta sinn eftir árangurslausar viðvaranir færði hún honum „heil- aga hjúpu“ (serk) sem engin vopn bitu og ofin var úr „hársíma gránu“. Helgi Skúli Kjartansson sagði mér einu sinni að þetta merkti ekkert annað en serk, ofinn úr hennar eigin hári. Með öðrum orðum: Áslaug fórnaði sínu síða (og gráa) hári fyrir eiginmanninn á þeirra lokafundi. Ástarkraftur! Ragnar endaði sína daga í ormagarði eftir að serknum hafði verið af honum flett. „Ástarkraftur“ Tungutak Baldur Hafstað hafstad.baldur@gmail.com Áslaug í Hörpunni Heimir fóstri henn- ar leyndi Áslaugu, konu Ragnars loð- brókar, í hörpu sinni og flutti hana frá Hlymsdölum til Noregs. Ljósmynd/Wikipedia; A Malmström: Kung Heimer och Aslög. Ætla mætti að svarið við spurningunni ífyrirsögninni hér að ofan sé augljóst:Ísland sé ekki til sölu. En svarið erekki svo einfalt. Sívaxandi kaup útlend- inga á íslenzku landi sýna að málið er flóknara. Og þá mætti spyrja annarrar spurningar: Hvar ætli tak- mörkin liggi? Hvað mega útlendingar eignast mikið af íslenzku landi án þess að kjörnir fulltrúar þjóðarinnar bregðist við? Um þetta er fjallað nú vegna nýrra frétta um að Hjörleifshöfði sé kominn í eigu hlutafélags, sem er að meirihluta til í þýzkri eigu. Í barnæsku greinarhöfundar voru Ingólfshöfði og Hjörleifshöfði einna fyrstu kennileitin á Íslandi sem barnssálin stimplaði inn – vegna sögunnar. Á þessum tveimur höfðum höfðu þeir vetursetu, fóstbræðurnir Ingólfur og Hjörleifur. Í fyrsta bindi Sögu Íslands (sem þjóðin gaf sjálfri sér í afmælisgjöf á 1000 ára afmæli Íslands byggðar 1974) segir svo um Hjörleifshöfða: „Á Mýrdalssandi hafa orðið ærnar breytingar á sögulegum tíma. Vestan til á sandinum hefur strönd færzt út meir en dæmi eru um annars staðar á landinu. Á landnámsöld gekk Hjörleifshöfði í sjó fram og vík eða fjörður, Kerlingarfjörður, inn með honum að vestan. Mun núverandi Reynisdjúp vera í framhaldi af þessum „firði“ … Hefur fjörður þessi verið orðinn fylltur af framburði fyrir tilkomu Styrmisbókar Landnámu. Ekki er ólíklegt að hlaup samfara Kötlugosinu um 1000 hafi farið vestan Hjör- leifshöfða, en fyrsta hlaup, sem vitað er um af skráð- um heimildum að farið hafi þá leið, er það hlaup, sem saga Þorláks biskups Þórhallssonar hin yngri nefnir Höfðahlaup og varð það skömmu fyrir 1179.“ Nú er þessi fallegi höfði kominn í meirihlutaeigu útlendinga. Áður hefur komið fram, að töluverður hluti Norðausturlands er kominn í eigu brezks auð- kýfings sem nú býr í Mónakó. Skýringin á jarða- kaupum hans er sögð vera áhugi á að friða laxastofn- inn í ám á því svæði. Áhugi Þjóðverjanna á Hjörleifshöfða er sagður vera sandurinn á þeirri landareign, sem um er að ræða. En hvaða máli skiptir, þótt útlendingar eigi jarðir hér? Því er svarað í greinargerð stjórnarfrumvarps, sem orðið er að lögum og hefur að geyma breytingar á ýmsum lögum, sem snúa að fasteignum og jarða- eignum, á þennan veg: „Land er undirstaða fullveldis ríkis og telst til tak- markaðra gæða á sama hátt og mikilsverðar nátt- úruauðlindir eins og fiskistofnar og jarðhiti.“ Land er undirstaða fullveldis … Það hlýtur að þýða að einhver takmörk eru fyrir því, hvað mikið má selja af slíku landi til útlendinga. Úr því að brezkur auðkýfingur fær þá hugmynd að kaupa töluverðan hluta Norðausturlands gætu t.d. Kínverjar (sem áður hafa reynt að kaupa land hér) fengið þá hugmynd að kaupa allar eyðijarðir á Vest- fjarðakjálkanum og eignast þar með verulegan hluta af honum. Það mundi koma sér vel fyrir þá, þegar skipaflutn- ingar þeirra um norðvesturleiðina yfir pólinn aukast að ráði. Þeir hafa ekki bara sýnt áhuga á að kaupa stóra jörð á Íslandi. Þeir reyndu fyrir nokkrum árum að kaupa stórt landsvæði á Grænlandi en tókst ekki – og sýna Færeyjum áhuga. Sennilega gæti brezki auðkýfingurinn hagnast mikið á því að selja Rússum jarðir sínar á Norðausturlandi í einni kippu. Það mundi nýtast þeim vel í vaxandi átökum stórveldanna á norðurslóðum. Kannski finnst einhverjum svona vangaveltur fáránlegar. Ekki að mati þeirra, sem sömdu fyrrnefnt stjórnarfrumvarp. Í greinargerð þess, sem áður var vísað til, segir líka: „Lega og landgæði Íslands, þ.m.t. nálægð landsins við norð- urslóðir, möguleikar til fram- leiðslu hreinnar orku, hreint neyzluvatn og fleiri þættir geta vakið áhuga á fjárfestingu í íslenzku landi og þá eftir atvikum í spákaupmennskuskyni. Með hliðsjón af þessu má telja nauðsynlegt að lög tryggi viðeigandi stjórnvöldum m.a. heimildir til að taka af- stöðu til þess, hvort kaup eða nýting á landi og auð- lindum samræmist þjóðaröryggissjónarmiðum.“ Allt er þetta rétt og réttlætir þá spurningu, sem sett var fram hér að framan, hvar mörkin liggi, hversu mikinn hluta landsins megi selja til útlendinga án þess að fullveldi okkar sé stofnað í hættu því að það er líka rétt, sem áður var vitnað til, að „land er undirstaða fullveldis ríkis …“ Frá því að við gerðumst aðilar að Evrópska efna- hagssvæðinu hefur ríkisstjórn eftir ríkisstjórn og ráð- herra eftir ráðherra gefist upp á því að gæta hags- muna þeirrar fullvalda þjóðar, sem hér býr og á þetta land. Þó er það svo, að sá ráðherra, sem gerði þann samning, Jón Baldvin Hannibalsson, hefur ítrekað bent á að skv. þeim samningi getur Ísland sagt nei. Reyndar er ljóst að eigendur Hjörleifshöfða vildu selja íslenzka ríkinu jörðina. Hvers vegna var því boði ekki tekið? Það hefði kostað mun minna en sá einn og hálfi milljarður, sem íslenzka ríkið lagði á sínum tíma í fánýta tilraun til að fá Ísland kjörið í Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fyrir allmörgum árum. Af hverju var það svona mikilvægt? Datt einhverjum raunveru- lega í hug að það mundi færa þessu örríki einhver alvöruáhrif á heimsvísu? Og til hvers? Hvað veldur sofandahætti kjörinna fulltrúa, þegar kemur að jarðakaupum útlendinga? Hafa þeir alveg tapað tengslum við samfélagið, sem þeir búa í? Kannski þarf að efna til námskeiðs fyrir þá um Sögu Íslands. Er Ísland til sölu? Hvað veldur sofandahætti kjörinna fulltrúa? Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Árið 1948 gaf Jóhannes S. Birki-land út bókina Harmsögu æfi minnar: Hvers vegna ég varð auðnu- leysingi. Þjóðin brosti, ef til vill ekki alltaf góðlátlega, og Megas söng um hann vísur. Árið 2020 gefur Ólína Þ. Kjerúlf út bókina Spegil fyrir skuggabaldur: atvinnubann og mis- beiting valds. Undirtitill hennar gæti verið: Hvers vegna enginn vill ráða mig í vinnu. Og þjóðin andvarp- ar og spyr, hvort blessuð konan ætti ekki að líta í eigin barm í leit að skýringu. Í harmatölu sinni reifar Kjerúlf þá kenningu, að bækur Halldórs Lax- ness hafi ekki komið út í Bandaríkj- unum á fjórða og fimmta áratug síð- ustu aldar, af því að íslensk og bandarísk stjórnvöld hafi lagst gegn því. Þessu til stuðnings nefnir hún ýmis skjöl um samskipti íslenskra og bandarískra ráðamanna frá árunum 1947-1949, sem fundist hafa í banda- rískum söfnum. Eins og ég benti á í Morgun- blaðinu í gær, föstudaginn 27. nóv- ember, eru þau skjöl alls ekki um neitt slíkt. Þau eru um áhuga stjórn- valda á að rannsaka, hvort Laxness hefði vantalið tekjur frá Bandaríkj- unum í íslensku skattframtali sínu og brotið reglur um skil á gjaldeyr- istekjum, og reyndist svo hvort tveggja vera. Brella Kjerúlfs er að veifa með fyrirgangi og þjósti skjölum um allt annað efni en verið er að tala um. Hún fetar þannig ekki aðeins í fót- spor Birkilands, heldur líka Ólafs Friðrikssonar Möllers, kaffihúsa- spekings í Reykjavík og eins helsta frumkvöðuls jafnaðarstefnu á Ís- landi. Ungur og óreyndur vinstri- maður ætlaði eitt sinn í framboð. Hann spurði Ólaf, hvernig hann skyldi bregðast við frammíköllum á fundum. „Uss, það er ekkert mál,“ svaraði Ólafur. „Þú gerir bara það sama og ég gerði einu sinni á fundi, þegar einhver náungi fór að kalla fram í fyrir mér. Þá hvessti ég á hann augun og sagði hátt og snjallt: Þú varst ekki svona borubrattur forðum, þegar þú grést úti í Viðey! Maðurinn snarþagnaði. Hann hafði sennilega aldrei komið út í Viðey. En við þessu átti hann ekkert svar.“ Þeir Birkiland og Ólafur enduðu að vísu báðir á Kleppi. En sem betur fer hefur viðhorf okkar til furðufugla breyst. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar. Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Nýr Birkiland?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.