Morgunblaðið - 28.11.2020, Page 29

Morgunblaðið - 28.11.2020, Page 29
UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2020 OPIÐ HÚS MÁNUDAGINN 30.11. KL. 17.00–17.30 Hamraborg 12 200 Kópavogur 416 0500 www.eignaborg.is ÁRANGUR Í SÖLU FASTEIGNA Veghús 7, 112 Reykjavík Verð 46,9 millj. Upplýsingar gefur Óskar Bergsson lgfs. sími 893 2499, oskar@eignaborg.is Stór og falleg fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð. Þrjú svefnherbergi, rúmgóð stofa, eldhús með borðkrók, þvottahús innan íbúðar og stórar suðursvalir. Baðherbergið er með opnanlegum glugga, hvítri innréttingu og sturtu í baðkari. Þvottaherbergi innan íbúðar. Íbúð – Stærð 126,5 fm Einn mikilvægasti eiginleikikeppnismanns í hvaðagrein sem er hlýtur alltafað vera sá að gefast ekki upp þótt á móti blási. Aronjan – Nepomniachtchi Staðan kom upp í úrslitakeppni á Skilling open, enn einu netmótinu sem stendur yfir þessa dagana, og er hluti mótaraðar sem Magnús Carl- sen skipuleggur. Átta efstu í tólf manna keppni héldu áfram í útslátt- arkeppni með fremur flóknu fyrir- komulagi þar sem tefld eru þrjú fjög- urra skáka einvígi. Armeníumaðurinn virtist í erf- iðleikum vegna hótunar á f2. En hann lagði ekki árar í bát og bjargaði sér á snilldarlegan hátt: 43. Rg4! hxg4? Sennilega hefur Nepo talið að hvítur ætti ekki meira en þráskák og jafntefli. betra var 43. … Kg7 og eft- ir 44. Df5 má leika 44. … Dc6 og staðan er jöfn. 44. Dxg4+ Kf6 Vitaskuld ekki 44. … Kg8 45. Dg8 mát. 45. e5+! Hxe6 46. Df4+ … og nú sá Nepo að 46. … Hf5 er svarað með 47. Dxh6 mát. Hann varð að leika 46. … Kg7 en eftir 47. Hxe5 var endataflið harla vonlaust og hann gaf skákina eftir 86 leiki. Sú ákvörðun Nepos að taka ridd- arann strax afhjúpar ákveðinn veik- leika í fari hans sem gerir svo sem vart við sig hjá bestu skákmönnum – að leika fyrst og hugsa svo. Aðrir sem komust áfram í útslátt- arkeppnina voru Magnús Carlsen, Giri, Nakamura, Vachier-Lagrave, Radjabov og So. Vinsældir ítalska leiksins, sem nefndur er eftir skák- meisturum endurreisnartímans, vek- ur athygli. Þessi ágæta byrjun hefur komið upp 18 sinnum í mótinu. Þetta eru oft á tíðum snúnar og flóknar baráttuskákir og úrslitin velta oft á einum ónákvæmum leik: Skilling open 2020; 1. umferð úr- slita: Jan Nepomniachtchi – Levon Ar- onjan Ítalski leikurinn 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Bc5 4. c3 Rf6 5. d3 Að leika 5. d4 strax er hættuleg leið kunni stjórnandi svarta liðsafl- ans ekki skil á ýmsum refilstigum þeirrar leikaðferðar. 5. … 0-0 6. 0-0 d6 7. h3 He8 8. Rbd2 Be6 9. b4 Bb6 10. a4 a6 11. Bxe6 Hxe6 12. Dc2 d5 13. Bb2 Rh5!? Riddarinn stefnir til f4 eða jafnvel til g3 ef verkast vill. En hann gefur aðeins eftir á miðborðinu. 14. b5 Re7 15. c4 dxe4 16. Rxe4 c6?! Það var erfitt að verja e5-peðið vegna hótunarinnar 17. c5 sem lokar af biskupinn. En 16. … Rf4 var betra því að 17. Rxe5 má svara með 17. … Rg6! og svartur á góða stöðu. 17. Rxe5 Enn betra var 17. bxa6 og 18. Bxe5 og biskupinn ver f4-reitinn. 17. … Rg6 18. d4 Rhf4 19. Rf3 Rh4 20. Rxh4 Dxh4 21. Rg3 Hae8 22. bxc6 bxc6 23. Bc3 h5 24. Hab1? Hrekur biskupinn á stórhættu- legan reit. Hann varð að bjóða hrókakaup með 24. Hfe1 og staðan er jöfn. 24. … Bc7 25. Hb7? Skárra var 25. d5 þótt svarta sókn- in sé stórhættuleg eftir 25. … Hg6. 25. … Rxh3+! 26. gxh3 Bxg3 27. d5 Dxh3 28. fxg3 He2! – og hvítur gafst upp. Fjölsótt Íslandsmót ungmenna fer fram um helgina Það er að aðeins rofa til í skák- mótahaldi hér á landi þó að enn tak- markist það við yngstu aldurhópana. Ef aðstæður leyfa fer Íslandsmót ungmenna undir 15 ára aldri fram um helgina í húsakynnum skák- hreyfingarinnar í Faxafeni 12 í Reykjavík. Keppt verður í fjölmörg- um aldursflokkum ungmenna. Vel yfir 100 krakkar hafa þegar skráð sig til leiks. Það kostar að leika fyrst og hugsa svo Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Helgi Ólafsson Netskák Íslendingar urðu í 3. sæti á NM ungmennasveita sem fram fór um síðustu helgi. Fimm stúlkur tefldu með íslensku sveitinni. Bjarni Guðbjörnsson banka- stjóri fæddist í Reykjavík 29.11. 1912. Foreldrar hans voru Guð- björn Guðbrandsson bókbands- meistari og Jensína Jensdóttir. Bjarni kvæntist Gunnþórunni Björnsdóttur árið 1941 og þau áttu börnin Björn Ragnar, Þórdísi og Gunnar Þór. Bjarni lauk gagn- fræðaprófi árið 1930 og vann ýmis störf næsta áratuginn. Hann lauk kennaraprófi frá KÍ 1941 og sama ár hóf hann störf hjá Útvegsbank- anum í Reykjavík. Eftir starfs- nám í Privatbanken í Kaup- mannahöfn og Skandinaviska Banken í Stokkhólmi tók Bjarni við útibússtjórastöðu Útvegs- bankans á Ísafirði 1950. Bjarni var farsæll útibússtjóri næstu 23 árin, á tíma sem eftirspurn eftir lánsfé var miklu meiri en framboð og lán voru skömmtuð. Bjarni náði með mikilli útsjónarsemi að styrkja atvinnulíf Ísafjarðar á þessum erfiðu tímum. Frá Ísafirði fór Bjarni suður 1974 og var eitt ár útibússtjóri Útvegsbankans í Kópavogi, en tók þá við sem bankastjóri Útvegsbankans og gegndi því embætti til starfsloka 1983. Bjarni var virkur í fé- lagsmálum, sat m.a. í bæjarstjórn Ísafjarðar í 22 ár og þar í forsæti í fjögur ár, í stjórn fiskveiðasjóðs og iðnþróunarsjóðs og var norsk- ur vararæðismaður á Ísafirði í 22 ár. Bjarni var alþingismaður Vest- firðinga fyrir Framsóknarflokk- inn 1967-1974. Bjarni lést 29. janúar 1999. Merkir Íslendingar Bjarni Guð- björnsson Í „Umsögn Reykjavík- urborgar um tillögu til þingsályktunar um þjóð- aratkvæðagreiðslu um framtíð Reykjavík- urflugvallar, dagsettri 22. nóvember sl. og send til Alþingis Íslendinga, stendur þessi setning: Rétt er að vekja at- hygli á því að Reykjavík- urborg hefur þegar stað- ið fyrir almennri atkvæðagreiðslu íbúa Reykjavíkur um framtíð Reykjavíkurflugvallar sem fór fram hinn 17. mars 2001. Nið- urstaðan í þeim kosningum var sú að meirihluti borgarbúa vildi að flugvöll- urinn myndi víkja úr Vatnsmýrinni. Litli „meirihluti borgarbúa“ Í nærri 20 ár hafa fulltrúar Sam- fylkingarinnar í Reykjavík end- urtekið þessa ómerkilegu sögufölsun. Sannleikurinn er sá, að einungis 14.913 atkvæðisbærra borgarbúa, eða 18,35%, greiddu atkvæði með því að völlurinn myndi víkja. Það var ekki meirihluti borgarbúa, það var minna en einn af hverjum fimm. Með sömu rökum mætti halda því fram að 66.345 eða 81,65% borgarbúa væri minnihluti þeirra. Meirihluti og minnihluti samanlagðir hljóta að vera 100%. Ansi stór minnihluti það. Þar að auki voru leikreglurnar þær að 75% borgarbúa þyrftu að taka þátt til að kosningin yrði marktæk, en aðeins 37% tóku þátt, en því var vitanlega gleymt. Stóri minnihlutinn Stór hluti stóra minnihlutans vill ekki að hróflað verði við vellinum. Sama á við um meirihluta þjóðarinnar eins og margsinnis hefur komið fram í skoðanakönnunum. Flestir landsmenn vita að staðsetn- ing Reykjavíkurflugvallar í Vatns- mýrinni um langa framtíð er mjög mikilvægt þjóðaröryggismál. Þar er Landspítali þjóðarsjúkra- hús, miðstöð flugsveitar Landhelg- isgæslu Íslands, við- bragðsmiðstöð almannavarna vegna náttúruvár og hópslysa, svo eitthvað sé nefnt. Flugvöllurinn er mik- ilvægur öryggi allra landsmanna, líka fyrir litla 18,35% meirihlut- ann í borginni. Eldgömul umræða Ég var um það bil að senda þessa stuttu grein til Morgunblaðsins þegar ég hlustaði á viðtal við borgarstjórann í Reykjavík, þann hinn sama og skrif- aði fyrir fáum dögum undir setn- inguna, sem ég gerði að umræðuefni hér í upphafi. Hann var spurður um ummæli Njáls Trausta Friðbertssonar, sem hafði sagt að við atkvæðagreiðsluna 2001 hefði ekki verið farið eftir leik- reglunum. Svar borgarstjóra var orð- rétt: „Ég vísa því nú út af fyrir sig til föðurhúsanna, en það er eld eldgömul umræða, satt best að segja.“ Samt var hann fáum dögum áður að skrifa undir sömu setninguna sem rök gegn þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð flugvallarins. Er hann að gera gys að Alþingi? Í sama þætti gerði hann enn og aft- ur lítið úr þeim tíma sem það tekur að koma fólki utan af landi undir lækn- ishendur og taldi að of mikið væri gert úr mikilvægi sjúkraflugsins á sama tíma og sjúkraflutningar innan höfuðborgarinnar eru framkvæmdir með forgangsakstri og okkur leik- mönnum talin trú um að mínútur skipti máli. Eftir Friðrik Pálsson » Sannleikurinn er sá, að einungis 14.913 at- kvæðisbærra borgarbúa, eða 18,35%, greiddu at- kvæði með því að völl- urinn myndi víkja. Friðrik Pálsson Höfundur er hótelrekandi. Lágkúruleg söguföls- un í 20 ár – sagan um litla meirihlutann

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.