Morgunblaðið - 28.11.2020, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 28.11.2020, Blaðsíða 32
32 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2020 Reykjavík varð höf- uðstaður Íslands og síðar höfuðborg allra lands- manna. Íslendingar hafa verið stoltir af sinni borg með allt sitt fjölskrúðuga mannlíf og átölulítið var ekki aðeins Alþingi; lög- gjafarvaldi þjóðarinnar, heldur og fram- kvæmdavaldinu – Stjórnarráðinu með öll- um sínum áhrifum – og svo auðvitað Hæstarétti Íslands fundinn þar stað- ur. Í heimatúni borgarinnar gefur einnig að líta margar og sællegar stofnanir og fyrirtæki sem ætlað er að þjóna landsmönnum öllum; Þjóðleik- húsið, Þjóðminjasafnið, Þjóð- arbókhlöðuna, Þjóðskrána og sjálfan Háskóla Íslands. Og einnig má líta Landspítalann, Landhelgisgæsluna, Ríkislögreglustjórann, höfuðstöðvar trygginga, banka, olíuverslana og símafyrirtækja að ógleymdri aðal- innflutningshöfn landsins og að sjálf- sögðu Ríkisútvarpið, útvarp allra landsmanna sem í þáttagerðum og vali á viðmælendum nær vart út fyrir túngarðinn enda eftir litlu að slægjast hjá kotkörlunum og þannig mætti áfram telja. Að undanskildum þeim ágæta þætti Landanum. Og vegna þessa hefur Reykjavík- urborg ósjaldan tekið á herðar sínar stærri og þyngri pakka en önnur sveitarfélög og ekki minnst á það einu orði. Þess vegna hrekkur maður við þeg- ar því er lýst yfir af borgarstjóra að Reykjavíkurborg ætli að höfða mál til að ná í „sinn skerf“ úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga – sjóði sem hefur það að markmiði að jafna að einhverju leyti mismunandi aðstöðu sveitarfélaganna til tekjuöflunar og gera þar með bú- setuskilyrði landsmanna lífvænleg hvar á landinu sem er. Friður hefur ríkt um okkar höf- uðborg og ég get sem íbúi þar í aldarfjórðung vottað að hér hefur verið gott að búa – ekkert þó betra en á öðrum stöðum þar sem ég hef verið enda Ísland allt gott land. Mér finnst hins vegar farið á örla á „okkur“ og „ykkur“ í umræðunni og er ekki alveg viss um að utanbæjarfólk sé jafn vel- komið á götur borg- arinnar og það áður var. Öllu er troðið í miðbæ borgarinnar þar sem þröngt er um vik; umferð- aræðar torskildar enda þótt almenn- ingssamgöngur eigi þar að dekka hin- ar ýmsu dagsláttur höfuðbýlisins og vel er látið í það skína að allir bílar séu óvelkomnir á götum þess – einkum og sérílagi þeir sem ætlaðir eru til akst- urs um langa vegi landsins í hvaða færð og veðri sem er. Og nú þetta: Reykjavíkurborg á ekki lengur málungi matar handa gestum sínum; erlendum barna- fjölskyldum sem meira og minna var boðið að koma og margir buðu peysur, sokka og herbergi í tvær vikur o.s.frv. en gleymdist að gera ráð fyrir skóla- göngu barnanna. Já, – barna- fjölskyldur hafa alla tíð verið hrepps- byrði og sýsluþrot. Vandræðafólk sem hreppstjórar hafa í aldanna rás sent á heimasveitir sínar með tilheyrandi uppboðum og fjölskylduslitum. Búið autt og búrið snautt á höfuðbýlinu. Nú telur hreppstjóri okkar Reyk- víkinga að ekki sé „sanngjarnt að Reykjavík – eitt sveitarfélaga“ fái ekki meðlag með þessum barnahópi. Má ég minna á upphaf þessarar grein- ar og spyrja: Er það „sanngjarnt“ að nær öllum kjötkötlum landsins sé mis- munað niður á par tugi hektara hjá einu og sama sveitarfélaginu með til- heyrandi valdi og tekjum sem þar krauma en hin skófirnar ef einhverjar eru? Maður, líttu þér nær. Þá hljóta landsmenn að vera farnir að skilja í eitt skipti fyrir öll að banna á flug til Reykjavíkur og þar með tor- velda enn frekar aðgang landsmanna að þeirri þjónustu sem þeir eiga rétt á hjá hinum ýmsu ríkisstofnunum. Nei – enn skal troðið og þjappað á heima- túnið enda þótt landrými jarðarinnar rúmi vel milljónir manna – en að vísu aðeins rúman stekkjarspöl frá bæjar- hlaðinu. Ég skil ekki aumingjaskap þingmanna sem halda vilja flugvellin- um að ganga ekki í það verk og af- greiða málið, hvort heldur er með samningum eða lögum. Meirihluti landsmanna, þar með taldir borgar- búar, vill hafa flugvöllinn með allri sinni athafnasemi, beinum og óbein- um störfum og tilheyrandi gjöldum til sveitarfélagsins. Við horfum upp á að hægt og rólega er hnoðast yfir vall- arstæðið – undir sama takti og göngu- lagi og innleiðing reglugerða ESB, svo brátt verður allt geirneglt og engu þokað. (Viðurkennd aðferð stórþjóða til að ná landi og eignum undir sig). Þar með leggst innanlandsflug niður á Íslandi. Með yfirlýstri málshöfðun Reykja- víkurborgar gegn öðrum sveit- arfélögum landsins er mér, sem íbúa Reykjavíkur, misboðið og svo mjög að ég kýs að segja mitt álit sem raunar rúmast í þessum hendingum: Heldur finnst mér lotið lágt og langt til seilst; er oddvitinn og hjúin hans hramsa sjóði almúgans. Þannig er nú það. Gleðilega aðventu og jólahátíð. Er búið autt og búrið snautt? Eftir Níels Árni Lund Níels Árni Lund » Og vegna þessa hef- ur Reykjavíkurborg ósjaldan tekið á herðar sínar stærri og þyngri pakka en önnur sveit- arfélög – og ekki minnst á það einu orði. Höfundur er eldri borgari, búsettur í Reykjavík. lund@simnet.is hugmyndirnar voru lagðar fram af COWI og nánast engu hefur verið breytt þótt umræða hafi verið nokkur og tilefnin til aðlögunar séu ærin. Í fyrsta lagi ganga menn og hjóla mun meira nú en þá og svo hafa rafskutl- urnar og rafhjól komið til og gert upptökusvæði borgarlínunnar mun stærra, jafnvel þrefaldað í sumum til- fellum. Þessu til viðbótar hefur há- vær gagnrýni á áætlanirnar engin áhrif haft. Það eitt vekur athygli. Í svona málum dugar engin óbilgirni. Hagsmunirnir eru miklir og rökin þung. Það verður að miðla málum og ná víðtækri samstöðu um málið. Þrátt fyrir að vera einlægur stuðn- ingsmaður hugmyndanna að baki borgarlínunni tek ég undir með dr. Bjarna Reynarssyni skipulagsfræð- ingi í nýlegri grein í Morgunblaðinu, sem segir að „þar sem borgarlínu- verkefnið er þegar komið af stað tel ég rétt að klára fyrst legginn Kvos- Ég var mjög ánægður þegar ég sá að hugmynd um mið- borgarás með öflugum almenningsflutn- ingum hafði ratað inn í aðalskipulag Reykja- víkur AR2010-2030. Ég sá strax fyrir mér eina miðborgarlínu frá Kvos að Keldum, með vögnum sem færu í sérrými og hefðu forgang á öllum um- ferðarljósum og kæmu með sjö mín- útna fresti fullir af fólki allan daginn í iðandi línulegri miðborginni. Fólk trúði því, að þetta yrði að veruleika innan fárra ára. Og menn töldu að í framhaldinu myndi svipuð lína fara suður Kringlumýrarbraut til Hafnar- fjarðar og tengja þannig fjóra miðbæi höfuðborgarsvæðisins í eina starf- ræna samgöngulega heild með borg- arlínu. Hugmyndin að þessu á rætur að rekja til greinar eftir Pétur H. Ár- mannsson arkitekt, sem birtist í Les- bók Morgunblaðsins 17. september 2005, þar sem hann segir m.a.: „Sem innlegg í umræðuna um skipulag Reykjavíkur er vert að kynna til sög- unnar hugmynd sem kalla mætti Kvosin-Keldnaholt, línulegur miðbær Reykjavíkur frá vestri til austurs.“ Og síðar: „Í reynd er hún aðeins ábending um þróun, sem þegar hefur átt sér stað og teikn eru á lofti um að halda muni áfram, hvað sem öllum skipulagsáætlunum líður. Að því leyti er hún í samhljómi við þá skoðun að eðlilegasta þróun borga sé sú sem gerist hægt og sígandi á löngum tíma. Hugmyndin felst í því að viðurkenna í hugsun og verki línulegan vöxt mið- borgarinnar til austurs, frá Kvosinni í vestri að Mörkinni í austri, og til lengri tíma litið áfram yf- ir á Ártúnshöfða allt að Keldnalandi.“ Þessi texti Péturs um miðborgarás er inni í aðalskipulagi Reykjavík- ur 2010-2030 sem lagði grunninn að línulegum miðbæ milli Kvosar og Keldna. Í framhaldinu gerðist ekki mikið þar til á fundi í nóvember 2016 þegar ráðgjafar verkefnisins, danska fyrir- tækið COWI, kynntu hugmyndirnar á stórum fundi í gamla Iðnó. Þá var þessi góða hugmynd orðin að heljar- miklu kerfi sem átti að þjóna öllu höf- uðborgarsvæðinu. Hugmyndin hafði vaxið úr einfaldri línu í fullu samræmi við sögulegan vöxt borgarinnar í eitt- hvað annað. Hún hafði vaxið úr um 6 km á lengd upp í tæplega 60 km. Nú er þessi einfalda hugmynd orðin að stóru, óskýru og flóknu leiðakerfi. Hana vantar þann skýrleika sem er hornsteinn skilvirks samgöngukerfis. Kerfið var ekki í neinum tengslum við borgarvefinn og þróun hans eins og Pétur lagði áherslu á í grein sinni. Þetta var orðið svo stórt að efasemdir voru strax uppi um hvort úr þessu gæti orðið peningalega og/eða vegna farþegagrunnsins. Var þetta orðið of stórt fyrir of fáa? var spurt. Nú eru liðin fjögur ár frá því að Grafarholt og meta árangur af þeirri aðgerð áður en farið verður í að tengja borgarlínu út í öll úthverfi höf- uðborgarsvæðisins“. Þetta er í sam- ræmi við þá skoðun að eðlilegasta þróun borga sé sú sem gerist hægt og sígandi á löngum tíma. Núverandi áætlanir um borgarlínu ganga þvert á þessi sjónarmið. Hún fellur ekki inn í sögulega borgarvefinn og virðist stefna að því að skapa nýja borg. Aðra Reykjavík á grunni borg- arlínunnar. Viljum við það? Á borgarlínan að móta Reykjavík? Nú er borgarlínan „komin á fulla ferð“ eins og sagt er, án þess að lyk- ilmálin séu afgreidd. Það er eins og verkefnið sé komið fram úr sér og hafi öðlast sjálfstætt líf. Haldin var samkeppni um stoppistöðvarnar og útlit þeirra og fyrirhuguð er sam- keppni um brú yfir Fossvog. Þetta er komið af stað þrátt fyrir að margt sé á huldu. Ég nefni að hvergi hefur ver- ið sýnt götusnið á viðkvæmum stöð- um. Í því sambandi má nefna Hverf- isgötu, Lækjargötu, Skothúsveg og Borgarholtsbraut. Er ekki ástæða til þess að staldra við og vinna þetta allt og kynna betur áður en lengra er haldið? Kannski væri skynsamlegt að end- urskoða áætlanirnar og stefna að fyrsta áfanga með línu frá Kvos að Keldum, eins Pétur skrifaði um og Bjarni leggur nú til. Og í framhaldinu suður Kringlumýrarbraut til Hafn- arfjarðar. Slík tenging mun binda Reykjavík saman í starfræna línulega borg og sveitarfélögin til suðurs í eina samgöngulega heild fyrir líklega nokkru minni fjárhæð en áætlað er að verja í fyrsta áfanga einan, eins og nú er stefnt að. Slíkur áfangi myndi ein- mitt taka á helsta umferðarvand- anum í dag, sem er umferð austur og vestur í Reykjavík og suður í Hafn- arfjörð. Er umferðarvandinn á leiðinni frá Landspítalanum yfir Fossvog um Kársnes að Hamraborg svo mikill að hann þurfi að leysa í fyrsta áfanga borgarlínunnar? Látum borgina móta borgarlínuna, en ekki borgarlínuna borgina Eftir Hilmar Þór Björnsson »Nú er þessi einfalda hugmynd orðin að stóru, óskýru og flóknu leiðakerfi. Hana vantar þann skýrleika sem er hornsteinn skilvirks samgöngukerfis. Hilmar Þór Björnsson Höfundur er arkitekt FAÍ. Mynd sem fylgdi grein Péturs H. Ármannssonar árið 2005. Þarna er línu- legur miðbær Reykjavíkur dreginn upp og samgönguás í rauðum lit. Ör hef- ur verið bætt á uppdráttinn sem sýnir hugsanlega tengingu suður til mið- bæja Kópavogs, Garðabæjar og Hafnarfjarðar. Stórgóð grein eftir Sigmund Davíð Gunn- laugsson, formann Miðflokksins, með fyrirsögninni „Stjórn- laust stórmál“ birtist í Morgunblaðinu 7. nóvember síðastlið- inn. Hann kemur þar inn á mál sem er í slíku skötulíki hér á landi í umsjón ungrar dömu sem í dag er dómsmálaráðherra, Áslaugar Örnu, að til stórskammar er. Það er svolítið erfitt að skrifa um mál sem er í slíku rugli sem raun ber vitni. Ef ég samt byrja á allra nýj- ustu hneykslismálunum er það þegar átti að vísa úr landi annars vegar hjónum með mörg börn, sem voru búin að bíða í á fjórða ár í óvissu á milli vonar og ótta og börnin byrjuð í skóla og orðin nokkuð vel talandi á íslensku. Enn verra dæmi kom upp með önnur hjón með tvö börn, bæði fædd hér og því íslenskir ríkisborgarar. Þessi fjölskylda hafði beðið hér í óreiðu eftir að verða vísað úr landi en fyrir þau hafði biðin staðið í um sex ár. Getur einhver ímyndað sér hvernig sálarlíf þessara tveggja fjölskyldna hefur gjörsamlega ver- ið brotið niður? Skyldi dóms- málaráðherra greiða þessu fólki fyrir sálfræðiaðstoð eða aðra læknisaðstoð? Þetta er ömurlegt. Útlendingar flæða inn í landið, mikið ungmenni í jafnvel hundr- aðatali, miklu fleiri en annars stað- ar á Norðurlöndunum og eru miklu strangari reglur þar um inn- flytjendur. Þetta fólk hrúgast inn í landið á mjög misjöfnum for- sendum og ekkert er jafnvel vitað um forsögu þess og getur þess vegna ver- ið um hryðjuverka- hópa að ræða. Það er því ærin ástæða til að taka alvarlega hrylli- lega atburði frá Frakklandi og Aust- urríki þar sem hryðjuverkaglæpa- gengi hafa skilið eftir sig dauða og limlest- ingu. Er kannski ástæða til að fara að endurskoða Schen- gen-samninginn? Það heyrir ekki undir nein mannúðarmál að hleypa fólki hundruðum saman inn í landið í tómri óvissu um fortíð þess og sumt er jafnvel frá lönd- um þar sem fyrrgreindir hryðju- verkaglæpamenn eru upprunnir. Ólíkt er að farið þegar til þess bært fólk er sent utan til að velja úr t.d. úr flóttamannabúðum fjöl- skyldur með blessuð börnin, sem auðvitað er sjálfsagt að koma í skjól hér á landi. Óhætt er að segja að flest þetta fólk ef ekki allt verður síðan góðir og gegnir íslenskir þegnar. Dómsmálaráðherra ætti að bera gæfu til að hlusta á sér betur hugsandi fólk í þessum málum, þó ekki sé endilega úr hennar stjórn- málaflokki, og þiggja aðstoð frá formanni Miðflokksins. Innflytjendamál í skötulíki Eftir Hjörleif Hallgríms » Innflytjendamál eru hér í slíku rugli að til vansa er og býður jafnvel heim hryðju- verkamönnum. Hjörleifur Hallgríms Höfundur er eldri borgari á Akureyri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.