Morgunblaðið - 28.11.2020, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 28.11.2020, Blaðsíða 44
44 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2020 30 ára Guðmundur ólst upp á Hauks- stöðum í Vopnafirði. Guðmundur er ís- lenskufræðingur og er lögreglumaður á Húsa- vík, þar sem hann býr. Helstu áhugamál hans eru skot- og stangveiði og íþróttir, eink- um knattspyrna. Maki: Guðrún Helga Ágúststdóttir, f. 1990, náms- og starfsráðgjafi. Dætur: Anna Lísa, f. 2013, og Alma Þór- unn, f. 2019. Foreldrar: Þórunn Egilsdóttir, f. 1964, al- þingismaður Framsóknarflokksins og Friðbjörn Haukur Guðmundsson, f. 1946, sauðfjárbóndi og tófuskytta. Þau búa á Hauksstöðum og í Reykjavík. Guðmundur Friðbjarnarson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Samræður við vini eða milli hópa einkennast af hlýju og vinskap. Að næra þann hluta af sjálfum þér bætir samböndin og ljær listaverkum þínum meiri dýpt. 20. apríl - 20. maí  Naut Bregstu vel við ef einhver þér ná- kominn leitar aðstoðar þinnar. Nýttu hluta orkunnar í að færa út kvíarnar. Gakktu þó ekki of langt. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Gerðu eitthvað allt annað í dag en þú átt vanda til enda mun það auka skilning þinn á lífinu og tilverunni. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú hefur með ákveðni og þol- inmæði náð þeim áfanga sem þú hefur lengi stefnt að. Spáðu í það að rómantíkin þarfnast bæði svigrúms og umönnunar. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú þarft að taka á honum stóra þín- um í dag til að fá vinnufrið, því stöðugar truflanir verða. Margir eru í sömu sporum og þú í dag og hika. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er sjálfsagt að þú notfærir þér það að vera miðpunktur athyglinnar í dag. Láttu aðra ekki draga úr þér kjarkinn; at- hugasemdir þeirra eru mest öfund. 23. sept. - 22. okt.  Vog Lát ekki metnaðinn leiða þig í gönur. Hlutirnir taka óvænta stefnu og áætlanir fara út í veður og vind. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú gætir náð góðum árangri í starfi á næstunni. Reyndu að eyða tíma úti í náttúrunni, lestu bók eða farðu í göngu- ferð. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Ef ágreiningur rís meðal fjöl- skyldumeðlima þarf að komast að mála- miðlun. Sinntu því skyldum þínum af kost- gæfni. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú getur komið miklu í verk í dag ef þú bara færð frið til þess. Reyndu að temja þér ný vinnubrögð sem leiða til ferskra lausna. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er eins og þú sért á hlið- arleið og upphafleg fyrirætlun þín sé minn- ing ein. Ekki láta það eyðileggja fyrir þér ef eitthvað smávegis bjátar á, allt er samt að ganga upp. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú geislar af gleði og það hefur já- kvæð áhrif á flesta í kringum þig. Að staðna er það versta. F riðjón Skúlason fæddist 28. nóvember 1950 og ólst upp á Miðbæ í Norð- firði. Hann gekk í barna- skólann á Kirkjumel og fór síðar í Alþýðuskólann á Eiðum. „Þegar maður hugsar til baka þá var alveg dásamlegt frjálsræði að alast upp í Norðfirði. Maður fór út snemma á morgnana og kom ekki inn fyrr en seint á kvöldin.“ Friðjón bjó í sveitinni til 1969 en flutti þá til Neskaupstaðar, kominn með kærustu. „Ég kynntist konunni minni, Petrúnu, árið 1968. Ég var í reiðtúr í sveitinni þegar ég sá hana fyrst og varð strax hrifinn. Við byrj- uðum að búa í sveitinni á Neðri- Miðbæ árið 1969, en flytjum svo í kaupstaðinn og ég fer að læra smíðar og við giftum okkur 1971.“ Friðjón fór í Iðnskóla Austurlands og lauk sveins- prófi í húsasmíði. „Það var mjög gott smíðaverkstæði í skólanum á Eiðum og þar fékk ég góðan grunn fyrir framhaldið.“ Skóladvöl sem lengdist Í lífi Friðjóns og Petrúnar eru nokkrar tilviljanir sem hafa verið eins og sendar til þeirra. „Í maí 1971 tók- um við að okkur fimm ára dreng, Björn Gunnar, og hann ólst upp hjá okkur.“ Friðjón og Petrún eignuðust annað barn 1973 og næstu tíu árin bjuggu þau í Neskaupstað og ólu upp fjölskyldu og Friðjón vann við smíðar. Árið 1983 fluttu þau suður, en þá kom önnur tilviljun, sem breytti lífi þeirra. „Konan var að fara í sjúkraliðanám og við ætluðum að vera í eitt ár, en um haustið datt hún og handleggsbrotn- aði svo hún gat ekki lokið prófinu fyrr en um haustið 1984. Þá voru börnin komin í skóla í bænum. Björn var í Flensborg og krakkarnir voru ánægð í skólanum og það var eiginlega hálf- gert atvinnuleysi fyrir austan og ég búinn að fá góða vinnu í bænum hjá Byggðaverki.“ Þetta var ekki erfitt reikningsdæmi; þótt Norðfjörður eigi mikið í fjölskyldunni hefur fjölskyldan búið fyrir sunnan frá þessum tíma. Ein stór fjölskylda „Allt í einu var ég orðinn verkstjóri yfir því að byggja Kringluna og þetta vatt upp á sig og verkefnin komu.“ Friðjón vann hjá fyrirtækinu til 1988 en fór þá að vinna sjálfstætt sem verktaki, en með góðan hóp manna með sér. „Ég tók með mér bestu mennina,“ segir hann sposk- ur, en hópurinn vann lengi saman og var gífurlega skemmtilegur andi og þeir unnu vel saman. „Við vorum saman í ansi langan tíma, alveg frá því að ég kom suður, og síðustu tveir úr hópnum hættu ekki fyrr en árið 2000. Svo fór sonur minn, Andrés Viðar, að læra hjá mér og við förum að vinna saman. Síðan stofnar hann Byggingafélagið Sakka, og tekur við keflinu og í dag vinn ég með honum. Yngsti sonur minn, Sveinn Ómar, er að læra hjá mér núna og einn tengdasonur minn vinnur með okkur líka. Þetta er virkilega fínn hópur í fyrir- tækinu.“ Friðjón er ekkert að setjast í helgan stein þótt árin færist yfir og er ennþá að vinna. Hann hefur alltaf verið mikill hestamaður og má rekja það til uppvaxtarins í Norðfirði. „Afi minn gaf mér fyrsta hestinn og ég man eftir mér að fara á hestbak þegar ég var svo lítill að ég þurfti að standa uppi á tunnu til að komast á bak. Síðan var ég líka að temja og ætli ég hafi ekki verið 11-12 ára þegar ég tamdi fyrsta hestinn minn.“ Harmleikur sem gleymist ekki Friðjón hefur verið mjög virkur í félagsmálum og var í Ungmenna- félaginu Agli rauða og Lions fyrir austan, hestamannafélaginu Blæ á Norðfirði og Hjálparsveit skáta á Norðfirði og í Hafnarfirði og í stjórn Landsbjargar og Slysavarnafélags- ins Landsbjargar. „Þessi áhugi á björgunstörfum kviknaði á Norð- firði 1974 í kjölfar snjóflóðanna og kom ekki til af góðu. Það var að læra hjá okkur drengur sem lenti í snjóflóði 1976 í fjallinu fyrir ofan sveitina og dó. Þetta var gífurlega sárt og erfitt. Það er bara þannig að þetta situr alltaf í manni. Eftir þetta stofnuðum við nokkur Hjálparsveit skáta í Norðfirði, sem varð ekki langlíf, en þjappaði mönnum saman Friðjón Skúlason húsasmíðameistari – 70 ára Hjónin Friðjón og Petrún að fagna skírn barnabarnabarns síns á góðum degi. Tilviljanir sem breyta lífinu Fjölskyldan Hér eru frá vinstri: Björn, Eva Björk, Eyrún Ósk, Andrés Við- ar, Petrún, Friðjón og Sveinn Ómar sem er langyngsti sonur hjónanna. Til hamingju með daginn Borgarnes Úlfar Ingi Jónsson fæddist 23. febrúar 2020 kl. 6.12. Hann vó 4.782 g og var 57 cm langur. Foreldrar hans eru Unnur Inga Karlsdóttir og Jón Ingi Sigurðsson. Nýr borgari 30 ára Fanndís Dóra ólst upp á Húsavík þar sem hún býr enn. Fanndís Dóra vinnur hjá Eimskip Flytjanda, þar sem hún starfar sem þjónustufulltrúi. Helstu áhugamál Fanndísar Dóru eru söngur, leiklist, eldamennska, pole fitness og svo auð- vitað skemmtileg samvera með vinum og fjölskyldu. Dóttir: Tinna Dís Kolbeinsdóttir, f. 2015. Foreldrar: Þórir Stefánsson, f. 1956, veghefilsstjóri hjá Vegagerðinni á Húsa- vík, og Svanhvít Jóhannesdóttir, f. 1964, félagsliði á sambýlinu Pálsgarði á Húsa- vík. Þau eru búsett á Húsavík. Fanndís Dóra Þórisdóttir Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is BÖRN 5.990,- stkFULLORNIR 6.990,- stk TVÍBURAR 5.590,- stk TÖFRAHLIÐ 5.590,- JÓLAHÚS 14.990,- JÓLATRÉ lítið 2.690,-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.