Morgunblaðið - 28.11.2020, Side 46
Morgunblaðið/Hari
Barein Halldór Jóhann Sigfússon er orðinn landsliðsþjálfari og er á leið á HM í janúar.
HANDBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Halldór Jóhann Sigfússon er kominn
til starfa í Barein en á dögunum var
greint frá því að hann hefði verið
ráðinn þjálfari karlaliðs Barein í
handknattleik. Þótt ekki sé beinlínis
um nágrannaríki að ræða er Halldór
þriðji Íslendingurinn sem gegnir
starfinu. Á undan hafa gengið Guð-
mundur Þ. Guðmundsson og Aron
Kristjánsson.
„Þetta er mikið tækifæri fyrir mig
og mikill heiður fyrir íslenskan
handbolta þegar við fáum landsliðs-
þjálfarastarf. Ég nýt góðs af frá-
bærri vinnu Gumma og Arons. Nú er
mitt hlutverk að halda sama skipu-
lagi og verið hefur síðustu ár. Það
var gaman að koma hingað aftur og
finna hlýjar móttökur. Það var mik-
ilvægt en nú tekur við mikil vinna í
tvo mánuði,“ sagði Halldór þegar
Morgunblaðið sló á þráðinn til hans í
vikunni. Handknattleikssambandið í
Barein tók þá ákvörðun að segja
Þjóðverjanum Michael Roth upp
störfum. Hann sinnti starfinu í
skamman tíma eftir að Aron þurfti
að gefa það frá sér vegna vinnu sinn-
ar hjá Haukum.
Selfyssingar skilningsríkir
Barein verður með í lokakeppni
HM í janúar og liðið verður einnig á
Ólympíuleikunum í Japan í fyrsta
skipti í sögunni. Til að byrja með réð
Halldór Jóhann sig til skamms tíma
og mun undirbúa liðið fyrir HM og
stýra því á mótinu. Hann er sem
kunnugt er þjálfari Selfoss hér
heima.
„Þetta var nú bara þannig að þeir
voru ekki nógu ánægðir með þjálf-
arann sem hafði verið hjá þeim í
þennan stutta tíma. Þegar tekin var
ákvörðun um að láta hann fara þá fór
málið af stað. Þeir höfðu reyndar
áhuga á að ráða þjálfara til lengri
tíma sem yrði í Barein. En það var
ekki möguleiki og var ein ástæða
þess að Aron Kristjánsson afþakkaði
starfið. Hann gat ekki verið í burtu í
svo langan tíma og gat ekki heldur
stokkið inn í verkefnið núna til að
stjórna liðinu á HM. Þeir höfðu sam-
band við mig og ég vissi svo sem að
hér hefði verið óánægja í kringum
landsliðið undanfarið.“
Þekkir vel til
„Ég fékk fyrirspurn og á miðviku-
daginn í síðustu viku var sam-
komulagið nokkurn veginn tilbúið.
Selfyssingar studdu mig bara í þessu
og fannst þetta vera tækifæri sem ég
gæti ekki neitað. Ég talaði strax við
þá þegar málið kom upp og svo fór
þetta bara sína leið. Ég var svo kom-
inn hingað tæpri viku síðar.“
Halldór stjórnaði yngri lands-
liðum Barein í fjóra mánuði í fyrra,
þá einnig með Aroni Kristjánssyni
hjá A-landsliðinu. Hann veit því vel
út í hvað hann er að fara og þekkir
bæði leikmennina sem og þá sem
fara fyrir handknattleikssamband-
inu í Barein.
„Ég var með U20 ára og U18 ára
landsliðin og fór tvívegis í loka-
keppni HM með þau. Okkur gekk
rosa vel. Við náðum til að mynda
besta árangri sem náðst hefur hjá
Barein á HM í handbolta þegar U21
árs liðið fór á HM. En vandamálið
var að menn töldu sig ekki geta verið
með tvo evrópska þjálfara á launum
heilan vetur og til að fara á öll mótin.
Þeir ráku mig í raun og veru út af því
en ekki ágreiningi um handbolta eða
eitthvað slíkt. Ég hef alltaf haldið
sambandi við Ismael hjá samband-
inu í Barein og hann hafði stundum
orð á því að hann hefði áhuga á að fá
mig aftur til starfa á einhverjum
tímapunkti. Eitthvað hefur maður
gert rétt þegar ég var þarna. Ég
þekki nánast alla leikmennina í liðinu
og hafði verið aðeins í kringum liðið
hjá Aroni áður en ég var formlega
ráðinn í fyrra skiptið. Ég þekki auð-
vitað ungu leikmennina og þá sem
starfa í kringum landsliðið og sam-
bandið. Ég veit að hverju ég geng.
Það er því auðvelt fyrir mig að koma
hingað og taka að mér verkefni í
stuttan tíma. Þeir hafa örugglega
einnig tekið það með í reikninginn að
ég þekki hvernig liðið hefur spilað og
þarf ekki tíma til að setja mig inn í
hlutina.“
Vel skipulagt lið
Spurður um hvaða væntingar
gerðar eru til liðsins á HM þá er
markmiðið að komast í milliriðil.
„Rétt eins og ég sjálfur eru þeir
með væntingar um að fara upp úr
riðlinum. Það fara þrjú lið upp úr
riðlinum og það ætti að vera ágæt-
ismöguleiki. Það býst svo sem eng-
inn við miklu af okkar liði en margir
okkar leikmanna eru á góðum aldri.
Þeir hafa spilað lengi saman og svo
eru ungir leikmenn að koma upp sem
ég þekki. Þegar Barein vann for-
keppni Ólympíuleikanna þá voru all-
ir leikmennirnir heilir heilsu. Þegar
allir geta verið með þá er þetta eitt af
þremur bestu landsliðunum í Asíu.
Þeir vonast eftir því að bæta besta
árangur landsins til þessa á HM en
einnig horfa þeir til þess að liðið sé
taktískt og spili góðan handbolta.
Hér hefur miklu verið breytt til hins
betra af Gumma og Aroni. Liðið er
orðið mjög skipulagt og ég þarf að
leggja mig fram um að viðhalda því.
Þessir leikmenn geta verið fljótir að
fara út úr skipulagi en ég þarf að ná
því besta út úr þeim á HM. Ef það
gengur eftir þá gætum við komist í
milliriðil og fengið að spila fleiri góða
leiki. Við sjáum hverju þetta skilar
og maður er alltaf dæmdur af sinni
vinnu og árangrinum. Þannig er
þessi bransi,“ sagði Halldór Jóhann í
samtali við Morgunblaðið.
Er eitt þriggja bestu
landsliða í Asíu
Halldór Jóhann mættur til Barein Stýrir liðinu á HM í Egyptalandi
46 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2020
Valencia vann góðan sigur gegn
tyrkneska liðinu Fenerbahce í
Euroleague, sterkustu Evr-
ópukeppni félagsliða í körfuknatt-
leik karla, í Istanbúl í gærkvöldi.
Hafði Valencia betur, 90:86, í
hörkuleik.
Martin Hermannsson skoraði 3
stig fyrir Valencia. Auk þess gaf
hann 3 stoðsendingar á samherja
sína og tók 4 fráköst.
Valencia er eftir sigurinn í 4. sæti
deildarinnar og hefur unnið sjö
leiki af 10. Fenerbahce er í 13. sæti
og hefur unnið fjóra leiki af 11.
Valencia með
góðan sigur
Ljósmynd/@YarisahaBasket
Öflugur Martin Hermannsson í leik
með Valencia í Euroleague.
Newcastle United vann góðan 2:0
sigur gegn Crystal Palace í ensku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla
í gærkvöldi. Callum Wilson og Jo-
elinton skoruðu mörkin.
Það virtist stefna í markalaust
jafntefli á Selhurst Park eftir
heldur bragðdaufan leik en fram-
herjar Newcastle voru á öðru
máli.
Á 88. mínútu skoraði Wilson eft-
ir frábæran undirbúning Joelinton.
Tveimur mínútum síðar launaði
Wilson greiðann þegar hann lagði
upp mark fyrir Joelinton.
AFP
Markaskorari Callum Wilson og
Joelinton fagna marki Wilson.
Skoruðu tvö
mörk í blálokinUndankeppni EM kvenna
A-RIÐILL:
Eistland – Tyrkland ................................. 0:4
Rússland – Kósóvó ................................... 3:0
Holland 27 stig, Rússland 21 stig, Slóven-
ía 12 stig, Kósóvó 10 stig, Tyrkland 5 stig,
Eistland 1 stig.
C-RIÐILL:
N-Írland – Hvíta-Rússland ..................... 3:2
Noregur 18 stig, Wales 11 stig, N-Írland
8 stig, Hvíta-Rússland 6 stig, Færeyjar 0
stig.
D-RIÐILL:
Spánn – Moldóva .................................... 10:0
Spánn 16 stig, Pólland 14 stig, Tékkland
13 stig, Moldóva 3 stig, Aserbaídsjan 0 stig.
E-RIÐILL:
Albanía – Kýpur ....................................... 4:0
Portúgal – Skotland ................................. 1:0
Finnland 13 stig, Portúgal 13 stig, Skot-
land 9 stig, Albanía 6 stig, Kýpur 0 stig.
G-RIÐILL:
Kasakstan – N-Makedónía...................... 0:3
Frakkland – Austurríki ........................... 3:0
Frakkland 19 stig, Austurríki 16 stig,
Serbía 12 stig, N-Makedónía 6 stig, Ka-
sakstan 0 stig..
H-RIÐILL:
Króatía – Litháen ..................................... 1:0
Sviss 19 stig, Belgía 18 stig, Rúmenía 9
stig, Króatía 7 stig, Litháen 0 stig.
I-RIÐILL:
Þýskaland – Grikkland ............................ 6:0
Þýskaland 21 stig, Írland 13 stig, Úkra-
ína 12 stig, Grikkland 7 stig, Svartfjallaland
0 stig.
Vináttulandsleikur kvenna
Holland – Bandaríkin............................... 0:2
England
Crystal Palace – Newcastle..................... 0:2
Þýskaland
B-deild:
Darmstadt – Braunschweig ................... 4:0
Guðlaugur Victor Pálsson var ekki í leik-
mannahópi Darmstadt.
Holland
B-deild:
Helmond Sport – Jong PSV.................... 1:0
Kristófer Ingi Kristinsson kom inn á
sem varamaður á 63. mínútu hjá Jong PSV.
Kasakstan
Zhetysu Taldykorgan – Astana ............. 1:2
Rúnar Már Sigurjónsson var á vara-
mannabekknum hjá Astana.
Danmörk
Randers – OB ........................................... 2:1
Sveinn Aron Guðjohnsen kom inn á sem
varamaður á 63. mínútu og Aron Elís
Þrándarson kom inn á sem varamaður á 71.
mínútu hjá OB.
Frakkland
B-deild:
Saran – Nice ......................................... 29:23
Grétar Ari Guðjónsson varði 11 skot í
marki Nice.
Danmörk
Skjern – Mors....................................... 24:23
Elvar Örn Jónsson skoraði 1 mark og gaf
3 stoðsendingar fyrir Skjern.
Svíþjóð
Alingsås – Sävehof .............................. 29:27
Aron Dagur Pálsson skoraði 7 mörk og
gaf 1 stoðsendingu fyrir Alingsås.
Evrópudeildin
Fenerbahce – Valencia ....................... 86:90
Martin Hermannsson skoraði 3 stig, gaf
3 stoðsendingar og tók 4 fráköst hjá Val-
encia.
Snorri Einarsson
keppir í 15 kíló-
metra göngu með
hefðbundinni að-
ferð í dag þegar
heimsbikarinn í
skíðagöngu fer af
stað þennan vet-
urinn. Fyrsta
keppnishelgin er í
Ruka í Finnlandi
venju samkvæmt
og á morgun verður keppt í sömu
vegalengd en með frjálsri aðferð.
Enginn Íslendingur hefur náð betri
árangri en Snorri á heimsbikarmóti.
Fyrsta mótið
hjá Snorra
Snorri
Einarsson