Morgunblaðið - 28.11.2020, Blaðsíða 51
MENNING 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2020
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ég er alltaf til í að tala um nær-
buxur,“ segir Arndís Þórarinsdóttir
kát þegar blaðamaður falast eftir
viðtali við hana um nýjustu bók
hennar sem nefnist Nærbuxna-
vélmennið. Um er að ræða lokahluta
þríleiks sem hófst með Nærbuxna-
verksmiðjunni en í kjölfarið fylgdu
Nærbuxnanjósnararnir.
Innt eftir því hvers vegna nær-
buxur hafi orðið fyrir valinu sem
þema rifjar Arndís upp að hún hafi
einfaldlega spurt leikskólabarnið
sitt um hvað mamma ætti að skrifa
ef sagan væri ætluð barninu. „Við
vorum þá búin að vera að lesa bæk-
urnar um Kaftein Ofurbrók þar sem
mikið fer fyrir nærbuxum. Hann
langaði því í sögu um vélmenni sem
gæti skotið nærbuxum. Þríleikurinn
varð þannig til sem bein ósk frá les-
anda,“ segir Arndís og rifjar upp að
ritstjóri hennar beri mesta ábyrgð á
því að bækurnar urðu þrjár.
Flókið að eignast vini
„Strax við vinnslu fyrstu bókar-
innar nefndi Sigþrúður Gunnars-
dóttir, ritstjóri minn, orðið brókar-
flokkur sem fangaði mig umsvifa-
laust. Þá var einfaldlega orðið of
freistandi að skrifa fleiri,“ segir Arn-
dís kímin.
Vináttan er leiðarstefið í Nær-
buxnavélmenninu, en í upphafi bók-
ar er Ólína orðin aðalstjarnan í
íþróttaliði bæjarins og hefur ekki
lengur neinn tíma fyrir Gutta, sem
þarf þar af leiðandi aleinn að glíma
við það þegar vélmennið Blúndu-
RASS 3000 gengur af göflunum um
svipað leyti og von er á konung-
bornum gesti til Brókarenda.
„Ég held það standi okkur öllum
nærri að velta vináttunni fyrir okk-
ur, því samskiptin við annað fólk eru
eitt það flóknasta í lífinu. Þetta snýst
meðal annars um það að hversu
miklu leyti maður getur sett sig í
spor annarra og skilið annað fólk.
Gutti og Ólína eru bæði gjörsamlega
úti á þekju með tilfinningar hins,
sem er svo sammannleg lífsreynsla.
Það er bara mjög flókið að eignast
vini og vera vinir, hvort sem er í
skóla, á frístundaheimili eða í lífinu
yfirleitt þegar við eldumst. Það er
svo oft sem samskipti fara úrskeiðis
þrátt fyrir að báðir aðilar vilji hinum
allt það besta.“
Skemmtileg hvatning
Sem fyrr myndlýsir Sigmundur
Breiðfjörð Þorgeirsson brókarbæk-
urnar. „Við Simmi þekktumst ekki
neitt þegar Forlagið paraði okkur
saman, en höfum náð góðri listrænni
tengingu. Áður en hann byrjar að
teikna ræðum við yfirleitt um hvaða
atriði í hverjum kafla séu myndræn-
ust, en svo hefur hann auðvitað
frjálsar hendur. Stundum stýra
myndirnar því sem gerist síðar,“
segir Arndís og nefnir sem dæmi að
strax í fyrstu bók hafi Sigmundur
teiknað kanínurnar í nærbuxum þótt
þess hafi hvergi verið getið í text-
anum. „Þetta varð mér skemmtileg
hvatning til að nota kanínurnar enn
meira í bók tvö og þrjú.“
Næsta bók kemur í apríl
Nærbuxnavélmennið er þriðja
bókin sem Arndís sendir frá sér á
árinu, en hinar eru ljóðabókin Inn-
ræti og verðlaunabókin Blokkin á
heimsenda sem Arndís skrifaði í
samvinnu við Huldu Sigrúnu
Bjarnadóttur. „Næsta bók er síðan
væntanleg snemma á næsta ári,“
segir Arndís og upplýsir að Sig-
mundur muni einnig myndlýsa hana.
„Þar er um er að ræða „ævisögu“
Möðruvallabókar. Ég fylgi handrit-
inu frá því það var skrifað og til
dagsins í dag, þar sem það fer í
gegnum hendurnar á Árna Magnús-
syni, Jóni Sigurðssyni og Jónasi
Hallgrímssyni,“ segir Arndís, en
bókin, sem skrifuð er að frumkvæði
Árnastofnunar, verður gefin út 21.
apríl þegar 50 ár eru liðin frá því að
fyrstu handritin komu til baka frá
Danmörku.
Finnst hún ekki gera neitt
„Þar með lýkur þessari brjálæðis-
legu törn hjá mér í bili,“ segir Arn-
dís og tekur fram að í raun hafi það
verið tilviljun að fjórar bækur eftir
hana komi á svona stuttum tíma.
„Ég er alltaf með nokkur skjöl í
vinnslu í tölvunni hverju sinni, þann-
ig að það var bara tilviljun að þetta
kemur allt út á svona stuttum tíma
og ekki endilega til marks um af-
köstin á einu ári,“ segir Arndís og
upplýsir að sér finnist hún reyndar
aldrei vera að gera neitt þar sem
hún sé oft að skrifa fyrir skúffuna
þar sem sum skrifin fá að meltast í
mánuði og jafnvel ár.
„En svo mjatlast þetta stöðugt hjá
mér nánast án þess að ég taki eftir
því, þar sem ég er að garfa í ýmsu.
Þannig getur ein stílæfing allt í einu
orðið grunnurinn að einhverju öðru
seinna,“ segir Arndís og tekur fram
að enn sé of snemmt að svara því
hvort Möðruvallabókin verði hennar
eina bók á næsta ári.
Morgunblaðið/Eggert
Tortryggni Sigmundur Breiðfjörð Þorgeirsson myndlýsir brókarbækurnar.
Gutti er tortrygginn þegar Ársæll kynnir hann fyrir nýjum krökkum.
„Alltaf til í að tala um nærbuxur
Arndís Þórarinsdóttir fjallar um vanda vináttunnar í þriðju og síðustu bókinni í brókarflokki
sínum Sendir frá sér fjórar bækur á rétt rúmu ári Næsta bók er „ævisaga“ Möðruvallabókar
Freistandi „Það var einfald-
lega of freistandi að skrifa
slíkan flokk,“ segir Arndís
Þórarinsdóttir og vísar þar
til brókarflokksins.
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir opnar
sýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu
á Siglufirði í dag, laugardag, kl. 14.
Um er að ræða árlegan viðburð hjá
Aðalheiði sem ávallt sýnir það nýj-
asta sem hún er að fást við í list
sinni og hefur um leið opið í and-
dyrinu þar sem sjá má ýmis smá-
verk sem ratað gætu í jólapakka.
„Aðalheiður er athafnasamur
myndlistarmaður sem einnig miðl-
ar list annarra listamanna og
menningu ýmiskonar í Alþýðuhús-
inu. Hún hefur vakið athygli fyrir
tréskúlptúra sína á undanförnum
20 árum, en einnig lágmyndir, inn-
setningar og gjörninga. Nú eftir að
hafa starfað að myndlist síðan 1993
hafa aðferðir og hugmyndir náð
heilum hring, og má nú merkja
samsvörun við fyrri tíma í verkum
hennar. Á sýningunni í Kompunni
leggur Aðalheiður áherslu á flæði
lita og samtal við efnið sem málað
er á,“ segir í tilkynningu. Þar kem-
ur fram að Aðalheiður hefur hlotið
ýmsar viðurkenningar og styrki
fyrir eigið liststarf, meðal annars
menningarverðlaun DV og viður-
kenningar frá Eyrarrósinni fyrir
starfið í Alþýðuhúsinu á Siglufirði.
Sýningin verður opin til jóla dag-
lega milli kl. 14 og 17. Vegna
aðstæðna í samfélaginu eru gestir
beðnir að vera með grímu og
spritta hendur. Jafnframt er minnt
á að í mesta lagi fimm gestir geta
verið inni í sýningarrýminu í einu.
Aðalheiður opnar sýningu í Kompunni
Hrafnar Eitt verkanna á sýningunni.
Þriðju og síðustu tónleikar Önnu Jónsdóttur í svokall-
aðri þjóðlagaþrennu fara fram í streymi á morgun,
sunnudag, kl. 15. Drykkja, dauði og trú er þema tón-
leikanna á morgun. „Þjóðlögin lýsa tilfinningum, ástinni,
náttúru, lífi, dauða, vonum og væntingum. Tímaflakk til
mannlífsins eins og það kemur fram í sögum, ljóðum og
lögum. Fáein erlend þjóðlög, sem hæfa hverju þema,
verða á boðstólum í boðinu og krydda tilveruna og gefa
okkur örlitla innsýn í hvernig aðrar þjóðir tjáðu sig með
þjóðlögunum. Sumt er kunnuglegt, annað er nýtt, allt
eins og það á að vera,“ segir í tilkynningu. Tónleikunum
er streymt á facebooksíðu Önnu sem heitir Anna Jónsdóttir, soprano.
Syngur þjóðlög í beinu streymi
Anna Jónsdóttir