Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.11.2020, Page 4
FRÉTTIR VIKUNNAR
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.11. 2020
Myndband bandarískufréttastofunnar Bloom-berg kom Íslendingum
gleðilega á óvart, en þar sagði Mike
Bloomberg, stofnandi hennar og
fyrrv. borgarstjóri New York-
borgar, að undraverðan árangur
Reykvíkinga í baráttunni við kór-
ónuveiruna mætti þakka hinum
snjalla og læknismenntaða vini sín-
um Degi B. Eggertssyni, sem einn
síns liðs hefði svo gott sem lagt
hana að velli. Nú vissu borgarbúar
að Dagur boðaði fagnaðarerindið
með lærisveinum sínum og litprent-
uðum bæklingum á kostnað út-
svarsgreiðenda, en ekki er verra að
vita að hann gengi líka þurrum fót-
um yfir Tjörnina og læknaði sjúka.
Á aukalandsþingi Miðflokksins var
samþykkt að leggja varaformanns-
embættið niður, en áður hafði Vig-
dís Hauksdóttir borgarfulltrúi ein
lýst yfir framboði til þess. Sumir
vilja túlka það sem gagnrýni á Vig-
dísi, sem nokkuð getur gustað af,
en aðrir telja það fremur stefnu-
yfirlýsingu um að formaðurinn sé
ekki í hópi dauðlegra.
Annarri umræðu fjárlagafrum-
varpsins þurfti að fresta, enda kalla
nýkynntar aðgerðir ríkisstjórn-
arinnar vegna áhrifa kórónuveir-
unnar á frekari vinnu og yfirlegu
fjárlaganefndar þingsins. Vonast er
til að að hún fari af stað í vikunni
sem er að hefjast.
Halldór Grönvold, aðstoð-
arframkvæmdastjóri Alþýðu-
sambands Íslands, lést eftir stutt
veikindi, 66 ára að aldri.
Þrátt fyrir að fregnir af bóluefnum
gefi góðar vonir vilja sóttvarna-
yfirvöld halda nýjum takmörk-
unum út árið. Eins og margir í erf-
iðri stöðu kvíða þau jólunum og telja
að allur sé varinn góður.
Verslunareigendur fóru í gírinn í vik-
unni, enda forsala jólavarnings að
hefjast. Víða voru sérstök tilboð í að-
draganda föstudagsins svarta, en
fyrir vikið mátti sjá langar biðraðir
utan við búðir, enda strangar sótt-
varnarreglur og fjöldatakmarkanir í
þeim. Æ fleiri notfæra sér enda net-
verslun.
Af bílamarkaðnum fréttist einnig af
líflegri sölu notaðra bíla, en þar er
mest horft til nýlegra og dýrra bíla.
Segja bílasalar að margir tæmi
ferðasjóð heimilisins til þess, en lágir
vextir spilla ekki heldur fyrir.
Icelandair hefur til athugunar að
fella niður langa nafnið á innanlands-
fluginu sem enginn man og kalla það
bara Icelandair líka.
Reykjavíkurborg var gagnrýnd fyrir
að semja við Ríkisútvarpið um kaup
á þjónustu án útboðs, en þó ekki síð-
ur fyrir að kalla endurgjaldið styrk.
Þannig kemst hún hjá greiðslu virð-
isaukaskatts.
Framhaldsskólanemar hafa miklar
áhyggjur af því að raskanir á skóla-
starfi komi niður á menntun þeirra
og skilningi á námsefni. Júlíus Viggó
Ólafsson, formaður Sambands ís-
lenskra framhaldsskólanema, segir
að þegar nemar séu heima svo mán-
uðum skiptir verði aðhald í námi og
leiðbeining kennara í engri líkingu
við það sem gerist í reglulegu skóla-
haldi.
Páll Pétursson á Höllustöðum,
bóndi, fyrrverandi þingmaður Fram-
sóknarflokksins, ráðherra og eft-
irminnilegur maður í alla staði, lést á
mánudag, 83 ára að aldri.
Samkvæmt tölum Hagstofu hélt
launavísitalan áfram að hækka í
október, en undanfarna 12 mánuði
hefur hún hækkað um 7,1%. Þær töl-
ur ríma illa við áhrif kórónuveir-
unnar, sem hafa leitt til mikils tekju-
falls fyrirtækja og atvinnuleysis
almennings. Við blasir að laun hafa
ekki aðlagast aðstæðum í efnahags-
lífi, sem kann að draga dilk á eftir sér
í atvinnulífi fyrr en varir.
Sama dag var sagt frá því að á þriðja
hundrað fjölskyldur hefðu þegið
matargjafir frá Mæðrastyrksnefnd
og útlit fyrir að þeim fjölgaði veru-
lega næstu daga og vikur. Hjálp-
arstofnun kirkjunnar tekur í sama
streng, að aðsókn hafi aukist mikið
frá sama tíma í fyrra.
Nokkuð hefur miðað í viðræðum
Landsvirkjunar og Rio Tinto, eig-
anda álversins í Straumsvík. Þar er
raforkuverð aðalþrætuefnið, en að
sögn kunnugra er veruleg verðlækk-
un þess til umræðu. Hafa forsvars-
menn Rio Tinto enda verið ómyrkir í
máli um að sjoppunni verði einfald-
lega lokað lækki það ekki.
Íslenskt tónlistarlíf getur ekki kvart-
að undan athyglisskorti umheimsins.
Tilkynnt var að Sinfóníuhljóm-
sveitin og Daníel Bjarnason hefðu
verið tilnefnd til Grammy-
verðlaunanna bandarísku fyrir besta
klassískan hljómsveitarflutning.
Eins var Hildur Guðnadóttir, sem
hlaut Grammy-verðlaun fyrr á þessu
ári fyrir tónlistina í sjónvarpsþátt-
unum Chernobyl, tilnefnd til tvennra
verðlauna að þessu sinni, fyrir kvik-
myndatónlistina í Jókernum og verk-
ið „Bathroom Dance“ úr sömu mynd.
Stjórnvöld kynntu áform um að allir
landsmenn fengju sitt stafræna póst-
hólf, en þangað eiga öll opinber er-
indi að berast frekar en með bréf-
pósti. Ekki er ólíklegt að ef vel tekst
til muni annar póstur frá fyr-
irtækjum og félagasamtökum berast
með sama hætti.
Samtök ferðaþjónustunnar hafa trú
á því að erlendir ferðamenn taki að
koma aftur til landsins í einhverjum
mæli þegar í apríl, sem gefur vonir
um bærilegt ferðasumar. Þessar
áætlanir eru miðaðar við að dreifing
bóluefnis gangi vel og vona samtökin
að í lok næsta árs geti fjöldi ferða-
manna verið orðinn um 80% af því
sem var árið 2019.
Atvinnuástandið er víða erfitt um
þessar mundir, en óvíða meira en hjá
jólasveinum. Nær engin jólaböll og
hefðbundnar jólaskemmtanir verða
haldin hjá fyrirtækjum og stofn-
unum fyrir þessi jól. Jólasveinarnir
heita því þó að láta sitt ekki eftir
liggja við að setja í skó barna og að
aðfangadagur verði ekki minni í snið-
um en endranær.
Viðbúið er að skógjafir verði með
mesta móti, enda kom fram í nýrri
skýrslu Húsnæðis- og mannvirkj-
astofnunar að frá því kórónuveiran
kom hafi ungt fólk flutt í miklum
mæli aftur í foreldrahús og leigu-
markaður rýmkað eftir því.
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn
almannavarna greindist með kór-
ónuveirusmit í vikunni. Á fé-
lagsmiðlum vöknuðu þegar í stað
spurningar um hvernig Dagur B.
Eggertsson hefði getað látið þetta
gerast með myllumerkinu #vanhæf-
urborgarstjóri
Meirihluti borgarstjórnar var gagn-
rýndur fyrir að hafa ekki farið að
eigin samþykktum og stefnu um
aukna tíðni strætóferða á ann-
atímum. Hjálmar Sveinsson, borg-
arfulltrúi Samfylkingarinnar og
stjórnarformaður Strætó ohf., segir
það hafa farist fyrir þar sem það
hefði reynst kosta peninga að fjölga
ferðum og þar fyrir myndu vagn-
arnir bara sitja fastir í umferðinni.
Vegagerðin áformar að bjóða út tvö-
földun Reykjanesbrautar við
Straumsvík á komandi ári. Það er
einn síðasti kafli brautarinnar, sem
ekki hefur verið tvöfaldaður, en þar
hafa orðið mörg alvarleg slys und-
anfarin ár.
Starfshópur heilbrigðisráðherra
lagði nákvæmlega engum að óvörum
til sykurskatt með það fyrir augum
að hækka sætindi um 20% í verði.
Þetta vill hópurinn gera í nafni
bættrar lýðheilsu, þó sams konar til-
raunir erlendis hafi ekki borið þann
árangur.
Páll Magnússon, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, kynnti frumvarp
sem miðar að því að girða fyrir meiri
samþjöppun í sjávarútvegi.
Reykjavíkurborg undirbýr byggingu
fjölda íþróttamannvirkja næstu ár,
en heildarskipulag Laugardalsins
verður endurskoðað með það fyrir
augum. Þar verður miðað við þarfir
sem flestra íþróttagreina, ekki að-
eins hinna vinsælustu.
Upp úr samningaviðræðum slitnaði
við flugvirkja Landhelgisgæslunnar
og ákvað ríkisstjórnin þá að setja lög
á verkfallið.
Fregnir voru sagðar af kór-
ónuveirusmitum í verslanamiðstöð-
inni Kringlunni, sem reyndust rang-
ar, smitið kom fram í tengdri
skrifstofubyggingu. Samt virtist
sóttvarnayfirvöldum ekki liggja á að
leiðrétta rangfærsluna og þrátt fyrir
mikinn viðbúnað og skipulegar sótt-
varnir sátu búðareigendur uppi með
tjónið af þessari upplýsingaóreiðu
hins opinbera.
Allir fá þá
eitthvað fallegt
Aðventan er hafin og kaupmenn komnir í ham fyrir jólin. Viðskiptavinirnir líka, svo varla fara margir í jólaköttinn í ár.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
22.11.-27.11.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar