Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.11.2020, Blaðsíða 15
sendur heim með skömm eftir aðeins tvo leiki.
Dapurleg kveðjustund hjá kónginum en á
þessum tíma var skrautlegt lífernið farið að
taka sinn toll. Ekki þarf að segja nokkrum
manni sem þetta les að Diego Maradona fór
ekki nægilega vel með sig. Og á endanum kom
að skuldaskilum.
Fyrir annan penna, annan pappír
En sú saga er fyrir annan penna, annan papp-
ír. Nú skal glaðst yfir öllum minningunum sem
goðið skilur eftir handa okkur hinum sem
botnum hvorki upp né niður í því hvernig þetta
allt saman var hægt. Fræg eru ummæli
Frakkans Michels Platinis, eins fremsta sam-
tímasparkanda Maradona: „Það sem ég gat
gert við knött gat hann gert við appelsínu.“
Félagsliðaferill Maradona var líka um
margt vel heppnaður. Hann hleypti heimdrag-
anum og gekk í raðir Börsunga á Spáni 1982.
Ekki varð hann meistari þar en vann spænska
bikarinn 1983. Snilligáfan var engum hulin,
frægt var þegar áhangendur Real Madríd
klöppuðu honum lof í lófa eftir undramark í El
Clásico. Nokkuð sem gerist nær aldrei. Samt
gekk ekki sem skyldi hjá Maradona í Katalón-
íu. Áfram var hann hundeltur af föntum þessa
heims og náði sú eftirför hámarki þegar
„Slátrarinn frá Bilbao“, Andoni Goikoetxea,
fótbraut hann haustið 1983. Vorið 1984 mætt-
ust þeir á ný í úrslitaleik bikarsins í ein-
hverjum alræmdasta kappleik sögunnar; þar
sem hópslagsmál brutust út eftir að þolinmæði
Maradona brast og hann missti stjórn á skapi
sínu. Jóhann Karl Spánarkonungur og aðrir
viðstaddur fylgdust agndofa með.
Napólitískur inn að beini
Þetta reyndist síðasti leikur Maradona fyrir
Börsunga en sumarið 1984 gekk hann í raðir
Napoli á Ítalíu, þar sem honum var tekið sem
hverjum öðrum Guðssyni. Við tóku sjö ár – þau
langbestu á ferli Maradona. Um var að ræða
lítið lið á Suður-Ítalíu með sviplausa sögu en
áður en Maradona kvaddi hafði hann skilað því
tveimur meistaratitlum, 1986-87 og 1989-90,
þeim fyrstu og einu í sögu Napoli. Þá lagði liðið
Ásgeir okkar Sigurvinsson og félaga í Stutt-
gart í úrslitaleik Evrópukeppni félagsliða
1989. Ítalíudvöl Maradona lauk með leikbanni,
eftir að hann féll á lyfjaprófi vegna kókaín-
neyslu. En hver nennir að muna eftir því í
stóra samhenginu? Alltént ekki nokkur maður
í Napoli, þar sem menn ræða það nú að nefna
leikvang félagsins eftir kempunni. Það yrði
virðingarvottur við hæfi. Fáir menn hafa lík-
lega gert meira fyrir mannlífið þar um slóðir.
Eftir að hafa kvatt Napoli sneri Maradona
aftur til Spánar en fór ekki sérlega mikinn með
Sevilla eina veturinn sem hann var þar. Neist-
inn var að miklu leyti horfinn. Ferlinum lauk
heima í Argentínu, fyrst með Newell’s Old
Boys og síðan Boca Juniors.
Því má ekki gleyma að Maradona spreytti
sig síðar sem knattspyrnustjóri, helst ber þar
að nefna að hann stýrði landsliði Argentínu í
tæp tvö ár, frá 2008 til 2010, meðal annars á
HM 2010 í Suður-Afríku, og náði glettilega
góðum árangri, vann 18 leiki af 26.
Hann var að sjálfsögðu á besta stað í stúk-
unni þegar Ísland gerði jafntefli við Argentínu
á HM í Rússlandi 2018.
Það var ekki bara snilldin sem hann færði
okkur á vellinum, almenn smitandi lífsgleði og
einlægni fylgdi Diego Armando Maradona alla
tíð, enda þótt hann drægi auðvitað sína djöfla.
Fyrir það ber að þakka að leiðarlokum þegar
þessi mikli snillingur hefur fengið sér sæti við
vinstri hönd Guðs föður almáttugs á himnum.
Plássið hægra megin er sem kunnugt er frá-
tekið – fyrir eldri bróður hans.
Maradona meðan hann var hjá Barcelona.
AFP
Diego Maradona í þann mund að skora mark (þús)aldarinnar eftir
ævintýralegan sprett gegn Englendingum á HM í Mexíkó 1986.
AFP
Vinátta Maradona við þjóðarleiðtoga eins og Hugo Chávez (sem heldur utan
um hann hér) og Fidel Castro var umdeild. José Zapatero fylgist með.
AP
Maradona kunni að njóta lífsins lystisemda. Hér
fær hann sér vindil úti fyrir Havana árið 2000.
Reuters
29.11. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Bæjarlind 4, Sími: 510 7900, www.fastlind.is
Byggingaraðili: Hönnun:
LIND FASTEIGNASALA KYNNIR NÝJAR OG GLÆSILEGAR ÍBÚÐIR
VIÐ SKÓGARVEG 6-8 Í FOSSVOGSDALNUM Í REYKJAVÍK
GLÆSILEGAR
NÝJAR ÍBÚÐIR
Vandaðar innréttingar, myndavéladyrasími,
gólfhiti. Sér þvottahús í flestum íbúðum.
Öll hjónaherbergi með fataherbergi.
Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna
en flísar verða á votrýmum.
Húsið er steinsteypt, einangrað að utan og
klætt með álklæðningu. Timbur-álgluggar.
Öllum íbúðum fylgir stæði í bílageymslu.
Stærð: 73,7-163,9 m2
Herbergi: 2-4
Verð frá: 47.900.000 kr.
Afhending er áætluð í
lok árs 2021 og vor 2022.
LÁRA ÞYRI
EGGERTSDÓTTIR
Löggiltur fasteignasali
B.A. í lögfræði
899 3335
lara@fastlind.is
Nánari upplýsingar veitir: