Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.11.2020, Page 21
Leið strax betur
Davíð Karlsson leið strax betur eftir að
hann byrjaði að taka inn góðgerlablönduna
Prógastró, eftir áralanga baráttu við loft og
önnur óþægindi eftir máltíðir.
„Ég fann strax hvað mér leið betur eftir
að ég byrjaði á Prógastró. Ég varð yfirleitt
alltaf útþaninn ef ég fékk mér kjöt, bjór eða
gosdrykki, en eftir að ég byrjaði á Prógastró
hef ég ekki verið að finna fyrir þessum
einkennum. Magaverkir sem ég var vanur að
finna reglulega fyrir heyra nú sögunni til. Ég
er búin að taka Prógastró daglega í mörg ár
og er ekki að fara að breyta því.“
Veikindi vegna lífsstíls
Þarmaflóran í venjulegri manneskju
inniheldur yfir þúsund mismunandi
tegundir gerla og baktería. Jafnvægi þessara
baktería getur auðveldlega raskast vegna
veikinda, inntöku sýklalyfja, mikillar
kaffidrykkju og ýmissa lífsstílstengdra þátta
eins og mikils álags eða streitu, neyslu
næringarsnauðrar fæðu og fæðu sem er
mikið unnin. Fjölmargir eru líka að borða
á hlaupum og á óreglulegum tímum sem
er ekki síður slæmt. Við þessar aðstæður
raskast jafnvægi þarmaflórunnar og
getur fólk þá farið að finna fyrir ýmsum
óþægindum og jafnvel veikindi farið að gera
vart við sig.
Líkamlegir og andlegir kvillar
Það er fjölmargt sem einkennir lélega
þarmaflóru eða að hún sé í ójafnvægi.
Rannsóknir síðari ára hafa rennt styrkum
stoðum undir það hversu gríðarlega
mikilvægt það sé að þarmaflóran okkar sé í
góðu standi bæði hvað varðar líkamlega sem
og andlega heilsu. Það kannast sennilega
flestir við ýmiskonar ónot sem við tengjum
beint við meltinguna. Það getur t.d. verið:
Uppþemba eftir máltíðir
Óreglulegar hægðir
Vindverkir
Gyllinæð (tengist oft harðlífi)
Sveppasýkingar
Húðvandamál
Tengsl þarmaflóru og heilsunnar
Síðastliðin ár hafa vísindamenn verið að
rannsaka þarmaflóru með tilliti til síþreytu
og ýmissa andlegra kvilla. Í ljós hefur komið
að þarmaflóra þessara hópa er ekki eins
og hjá þeim sem eru hraustir, sem gefur
til kynna hversu mikilvæg þarmaflóran er.
Að auki er stór hluti ónæmiskerfis okkar
staðsettur í meltingarveginum og því er
mjög mikilvægt að huga að heilbrigði
þarmaflórunnar. Virkni og almennt
heilbrigði meltingarvegarins ræðst meðal
annars af samsetningu örveiruflóru í
þarmaflórunni. Ein leið til þess að huga
að heilbrigði meltingarvegs er að taka inn
mjólkursýrugerla á hverjum degi.
Góðgerlar semmargfalda sig í
þörmunum
Prógastró Gull mjólkursýrugerlarnir eru afar
öflugir, en í hverju hylki eru 15 milljarðar
af gall- og sýruþolnum gerlastofnum. Einn
af þeim er L. acidophilus DDS®-1, en þetta
er nafn á mjög áhrifaríkum gerlastofni sem
margfaldar sig í þörmunum.
*L. acidophilus DDS®-1 er talinn gagnlegur fyrir alla
aldurshópa.
Fæst í apótekum, heilsubúðum og
heilsuhillum verslana.
Tími til að hlúa að okkur sjálfum
Á tímum sem þessum þar sem mikil
óvissa ríkir í umhverfi okkar sem hefur
tekið miklum breytingum með tilheyrandi
takmörkunum, hefur líklega aldrei verið
jafn mikilvægt fyrir okkur að hlúa vel að
okkur sjálfum. Öll gerum við okkar besta
við að fylgja fyrirmælum sérfræðinga til að
verja okkur og þá sem eru viðkvæmir gegn
þessari nýju veiru sem hefur breytt okkar
daglega lífi frá því sem áður var.
Í þessum streytuvaldandi aðstæðum er
lykilatriði að missa ekki dampinn og
reyna að viðhalda heilsusamlegu líferni og
styrkja með því varnir líkamans.
Nægur svefn, hollur matur og dagleg
hreyfing eru gríðarlega mikilvægir
þættir í að byggja upp og viðhalda sterku
ónæmiskerfi, en andleg næring spilar
einnig stærra hlutverk en marga grunar.
Uppbyggileg samskipti og allt það sem
nærir okkur andlega eins og umhyggja,
virðing, skilningur, stuðningur, þakklæti
og traust hefur jákvæð áhrif á heilsuna. Öll
þurfum við að upplifa það að við skiptum
máli og að okkur sé sýnd virðing og einnig
er nærandi að gefa af sér til annara.
Iðkun hugleiðslu eykur andlega vellíðan og
um leið viðnám gegn streitu.
Við berum ábyrgð á heilsu okkar og getum
gert ýmislegt til efla okkur:
Veldu fjölbreytt og hreint mataræði
Hreyfðu þig reglulega
Njóttu þess að vera úti í dagsbirtunni
Hugaðu að andlegri næringu
Passaðu upp á góðan nætursvefn
Taktu inn mikilvæg bætiefni
Beta glúkan styður við ónæmiskerfið á
náttúrulegan hátt
Heilbrigður lífsstíll og góð næring eru
mikilvægustu þættirnir fyrir heilsuna og
varnir líkamans. Við þurfum fjölbreyttan
og næringarríkan mat til að líkaminn fái
öll þau næringarefni sem hann þarf á að
halda en einnig er hægt að tryggja það með
því að taka inn bætiefni. Jurtir og önnur
náttúruefni hafa verið notuð í gegnum
aldirnar til að bæta heilsu okkar og efla
varnir líkamans og hafa mörg af þessum
náttúruefnum verið rannsökuð og virkni
þeirra staðfest.
Beta Glucan Immune support+ er dæmi
um háþróað bætiefni frá Natures Aid sem
inniheldur afar öfluga blöndu af jurtum,
vítamínum og steinefnum sem efla varnir
og ónæmiskerfi líkamans.
Beta glúkan er í aðalhlutverki í þessari
ónæmisstyrkjandi blöndu en það er tegund
af uppleysanlegum trefjum sem geta haft
jákvæð áhrif ónæmiskerfið og einnig á
kólesteról og hjartaheilsu. Beta glúkan
finnst m.a. í heilkorni, höfrum, byggi og
sumum sveppategundum eins og maitake
og reishi sveppum.
Beta Glucan Immune support inniheldur
einnig aðrar þekktar lækningajurtir eins og
hvítlauk sem er þekktur fyrir að efla varnir
líkamans og yllir sem hefur öldum saman
verið notuð til að styrkja ónæmiskerfið.
Önnur virk innihaldsefni eru til að mynda
steinefnin Selen og Sínk, ásamt A-, D-, og
C vítamínum sem öll eiga það sameiginlegt
að vera mikilvæg fyrir varnir líkamans.
Fæst í apótekum, heilsubúðum og
heilsuhillum verslana.
Settu heilsuna í forgang
Ávallt er mikilvægt er að huga að heilsunni og sérstaklega núna
á tímum kórónaveirunnar. Svefn, hreyfing, mataræði og andleg
heilsa skipta þar mestu máli, ásamt því að huga vel að því
hvernig styrkja ónæmiskerfið.
2ja
mánaða
skammtur
Meltingaróþægindi
úr sögunni
Davíð Karlsson var alltaf útþaninn eftir máltíðir, sérstaklega ef hann
borðaði þungar máltíðir eða fékk sér sykraða eða gerjaða drykki. Hann
fannmikinn mun á sér eftir að hann byrjaði að taka Prógastró góðgerla.
Stór hluti ónæmiskerfis okkar er
staðsettur í meltingarveginum
og því er mjögmikilvægt að
huga að heilbrigði
þarmaflórunnar.
„Upplifi ekki lengur magaverki eða
önnur óþægindi tengdmeltingunni.“
Segir Davíð Karlsson.
Beta glúkan Immune support+ inniheldur steinefnin Selen og
Sínk, ásamt A-,D-, og C vítamínum sem öll eiga það
sameiginlegt að vera mikilvæg fyrir varnir líkamans.