Morgunblaðið - 14.12.2020, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Jólamarkaður Skógræktarfélags Reykjavíkur
við Elliðavatn var heitur reitur nú um helgina.
Þangað mæta fjölskyldurnar saman og fara svo
út á breiður Heiðmerkur og leita uppi jólatré
sem hæfir og hentar. Það var svo Guðfinna Mjöll
Magnúsdóttir sem er fyrir miðju á þessari mynd
sem mældi tréð og afhenti þessum viðskiptavin-
um sem völdu sér fallega vaxna furu sem prýdd
verður ljósum í stofunni heima.
Undirbúningur jólanna í algleymingi og gleði á markaði við Elliðavatn
Morgunblaðið/Íris
Völdu fallega furu úr Heiðmerkurskógi
Nokkur fjöldi fólks kom saman utan
við skemmtistaðinn Prikið í Banka-
stræti í Reykjavík í fyrradag til að
fylgjast með útitónleikum tónlistar-
mannsins Auðar. Sjálfur var Auður
í glugganum á Prikinu en hátölur-
um hafði verið komið fyrir utan við
staðinn. Margir báru grímu, en þó
ekki allir. Fleiri útisamkomur voru í
miðborginni um helgina, til að
mynda jólaleiksýning fyrir börn á
tröppum Þjóðleikhússins og jóla-
markaður í Hafnarfirði.
Í samtali við mbl.is segir Ásgeir
Þór Ásgeirsson yfirlögregluþjónn
að engin lög hafi verið brotin með
gjörningnum. „Það reynir á sótt-
varnir og skynsemi hvers og eins á
staðnum, að fólk reyni að dreifa sér
og nýta plássið,“ segir Ásgeir Þór
sem hefði viljað sjá passað betur
upp á persónubundnar sóttvarnir.
„Þar sem ekki er hægt að tryggja
tvo metra á að setja upp grímu. Ég
hefði viljað sjá öll sem þarna voru
með grímu,“ bætti Ásgeir við.
Lofar betra eftirliti næst
Gluggatónleikarnir voru hluti af
verkefninu Sköpum líf í lokun, sem
ætlað er að glæða menningarlíf
miðborgarinnar á þessum erfiðu
tímum. Verkefnið er hugarfóstur
Priks-manna en í samstarfi við tón-
listarborgina Reykjavík.
Þetta eru ekki fyrstu „gluggatón-
leikarnir“ á Prikinu, en í síðustu
viku tróð rapparinn Birnir þar upp.
Geoffrey Þór Huntington-Willi-
ams, framkvæmdastjóri Priksins,
segir í samtali við Morgunblaðið að
viðburðirnir hafi hingað til gengið
vel fyrir sig. Þegar hæst stóð á tón-
leikunum hafi hins vegar myndast
nokkur hópur á gatnamótunum
enda margt um manninn í bænum
og margir sem staldra við til að
fylgjast með. Geoffrey segir að
huga þurfi betur að sóttvörnum á
næstu gluggatónleikum sem verða
á miðvikudag þegar Bríet stígur á
svið. „Við ætlum að passa betur upp
á að hólfaskipta svæðinu fyrir fram-
an hjá okkur, vera með verði á
svæðinu og dreifa grímum,“ segir
hann. Staðurinn sé í góðu samstarfi
við lögregluna og hann eigi ekki von
á öðru en að þannig verði það
áfram.
Þá minnir hann á að tónleikunum
sé streymt og því einnig hægt að
fylgjast með heima.
Fjölmenni á útitónleikum í bænum
Hópur fólks fylgdist með tónleikum Auðar úr glugganum á Prikinu Yfirlögregluþjónn segir að
betur hefði mátt huga að sóttvörnum Hólfaskipting og gæsla næst, segir framkvæmdastjóri Priksins
Ásgeir Þór
Ásgeirsson
Morgunblaðið/Íris
Jól Margt var um manninn í miðbænum um helgina og tónleikar trekktu að.
Geoffrey Hunt-
ington-Williams
Alexander Kristjánsson
alexander@mbl.is
Neðri skerðingarmörk barnabóta
verða hækkuð um 8%, samkvæmt
breytingartillögu meirihluta efna-
hags- og viðskiptanefndar á frum-
varpi um skatta og gjöld, svoköll-
uðum bandormi.
Skerðingarmörkin eru í dag 3,9
milljónir króna hjá einstæðum for-
eldrum en 7,8 milljónir hjá sam-
búðarfólki. Fari tekjur yfir þau
mörk skerðast þær í hlutfalli við
tekjur umfram mörkin, mismikið
eftir fjölda barna. Verði breytingin
samþykkt verða mörkin 4,21 millj-
ón króna hjá einstaklingum og
8,42 milljónir króna hjá sambúð-
arfólki.
Breyting getur skilað allt að
18.600 króna hækkun á ársgrund-
velli hjá sambúðarfólki með tvö
börn, en 9.300 hjá einstæðingi með
tvö börn svo tekin séu dæmi af
handahófi. Aukningin er meiri eftir
því sem börnum fjölgar.
Engin breyting er þó gerð á efra
skerðingarhlutfallinu, 5,5 milljónir
króna hjá einstæðingum og 11
milljónir hjá sambúðarfólki, en fari
tekjur umfram þau mörk er skerð-
ingin enn skarpari. Mörkin eru
ekki uppfærð í samræmi við
launaþróun, ólíkt t.d. mörkum
skattþrepa. Því fær vísitölufjöl-
skyldan, hjón á meðallaunum með
tvö börn, eftir sem áður engar
barnabætur.
Útgjöld ríkisins til barnabóta
verða tæpir 14,2 milljarðar króna á
næsta ári, en þar af koma um 865
milljónir til vegna breytinganna.
Barnabætur munu hækka
Skerðingarmörk hækkuð um 8% Allt að 18.600 krónur á
ári fyrir hjón með tvö börn Kostnaður 865 milljónir
Morgunblaðið/Hari
Barnabætur Greiddir verða um 14
milljarðar í barnabætur á næsta ári.
Afkastageta
sýkla- og veiru-
fræðideildar
Landspítalans
eykst til muna
með nýju grein-
ingartæki sem
komið var með til
landsins í gær.
Tækisins hefur
verið beðið með
mikilli eftirvænt-
ingu, sér í lagi þar sem afhendingu
þess seinkaði talsvert. Þess var
upphaflega vænst í nóvember og
átti að gangsetja það fyrir jólin.
„Við erum í skýjunum með að hafa
fengið þetta tæki,“ sagði Karl G.
Kristinsson yfirlæknir í samtali við
mbl.is í gær.
Tækið mun geta greint á fjórða
þúsund veirusýni í einu og verður
þessi deild LSH að þessu fengnu nú
ekki lengur háð aðstoð Íslenskrar
erfðagreiningar sem aðstoðað hef-
ur við greiningu kórónuveirusýna.
Undirbúningur fyrir komu tæk-
isins hefur staðið yfir lengi og segir
Karl það fylla heilt herbergi í húsa-
kynnum sýkla- og veirufræðideild-
ar sem er við Barónsstíg í Reykja-
vík. Þannig hafi upphaflega staðið
til að flytja tækið í fraktflugvél Ice-
landair en hún ekki verið nógu stór.
Því ákvað framleiðandinn að leigja
Antonov, sem er af gerð rússneskra
herflugvéla.
Nýtt tæki marg-
faldar afköst við
greiningu sýkla
Karl G.
Kristinsson