Morgunblaðið - 14.12.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2020
Vegna umfjöllunar Alþingis umfrumvarp um breytingu á
ýmsum lögum um skatta og gjöld
sendi Samband íslenskra sveitar-
félaga þinginu um-
sögn sína og fór
fram á að fá auk-
inn aðgang að
álagningarskrám
almennings. Í
nefndaráliti meiri-
hluta efnahags- og
viðskiptanefndar
er þessu hafnað og
þar segir: „Álagningarskrár og
skattskrár hafa að geyma per-
sónugreinanlegar upplýsingar um
einstaklinga og lögaðila og fjár-
hagsmálefni þeirra … Meiri hlut-
inn telur þarft að sveitarfélög
geti fylgst með tekjustofnum sín-
um. Þó verður að gæta að hags-
munum skattaðila og að miðlunin
gangi ekki lengra en nauðsyn
krefur. Telur meiri hlutinn vand-
séð að hagsmunir sveitarfélaga af
varanlegri miðlun persónugrein-
anlegra upplýsinga um fjárhags-
málefni skattaðila til sveitarfé-
laga geti vegið þyngra en
hagsmunir þeirra sem gögnin
fjalla um.“
Þetta er áhugavert nefndarálitog vissulega er það svo að
upplýsingar um álagningu skatta
á einstaklinga eru viðkvæmar
upplýsingar. Þrátt fyrir þetta eru
slíkar upplýsingar birtar opin-
berlega á hverju ári og verða þá
að umfjöllunarefni fjölmiðla, sem
von er enda vekur skráargatið
jafnan áhuga þó að fáir mundu
vilja kannast við að gægjast þar
inn.
Hlýtur næsta skref ekki aðvera að verja almenning
fyrir þessari árlegu og óhóflegu
miðlun persónuupplýsinga með
því að afnema heimild skattsins
til að opna upp á gátt inn í einka-
líf almennings?
Óli Björn
Kárason
Áhugavert álit
um persónuvernd
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
L augarnar í Rey k javí k
w w w. i t r. i s
Höldumbilinu og sýnum
hvert öðru tillitssemi
2m
Velkomin
aftur
Nútími og klassík eru, að mati dóm-
nefndar, einkennandi í nýju byggð-
armerki Múlaþings sem sveitar-
stjórn samþykkti á fundi sínum í sl.
viku. Alls 70 tillögur bárust um
merkið í samkeppni sem auglýst var
í lok október. Vinningstillagan er eft-
ir Grétu V. Guðmundsdóttur hönnuð.
Byggðarmerkið nýja er í fjórskipt-
um skildi með sterkum, einföldum,
táknrænum línum. Einn fjórðungur
merkisins er útlínur Múlakolls, sem
er fremsti hluti Þingmúla sem var
einn helsti samkomustaður Austfirð-
inga til forna og eru Múlasýslurnar
nefndar eftir honum. Annar fjórð-
ungur er framtíðartákn hringrásar.
Horft er til dagsbrúnar frá Héraðs-
flóa og Borgarfirði eystri, þar sem
sólin rís. Þriðji fjórðungurinn er
horn hreindýrsins og á þeim fjórða
eru tindar og útverðir fjalla.
„Þrátt fyrir skiptar skoðanir sem
vörðuðu meira tilfinningar og smekk
var nefndin ásátt um að hið útvalda
merki gætum við öll staðið á bak við,
og að það þjónaði tilgangi sínum á
sterkan hátt,“ segir á vef Múlaþings.
Sveitarfélagið, sem er afar víð-
feðmt, varð til í haust með samein-
ingu Fljótsdalshéraðs, Borgarfjarð-
arhrepps, Seyðisfjarðarkaupstaðar
og Djúpavogshrepps. Íbúar eru lið-
lega 5.000. sbs@mbl.is
Hreindýrshorn og útlínur fjalla
Byggðarmerki Múlaþings er nú kom-
ið fram Nútíminn og sígildu táknin
Múlaþing Merkið góða er eftir
Grétu V. Guðmundsdóttur hönnuð.
„Þefvísi blóðhunda er einstök og
þeir eru flestum lagnari að leita uppi
það sem fyrir þá er lagt. Við bindum
því miklar vonir við Pílu,“ segir Þór-
ir Sigurhansson, hundaþjálfari hjá
Björgunarsveit Hafnarfjarðar. Þann
10. janúar fær sveitin frá Alicante á
Spáni nýjan leitarhund af tegund-
inni Blood-hound. Upp á íslensku
heita þeir blóðhundar en fyrir er
sveitin með tvær tíkur af þeim
stofni.
Tíkurnar Urta og Perla hafa
reynst vel í starfi björgunarsveit-
arinnar, sem taldi nauðsynlegt að fá
nýjan hund í stað Perlu sem farin er
að eldast og því ekki jafn spræk og
hún var á yngri árum. Boð voru látin
út ganga á samfélagsmiðlum og víð-
ar og þannig leitað að farþega á
heimleið með flugi Icelendair frá
Alicante umræddan dag í janúar.
Fleiri en einn gáfu sig fram. Verður
hundurinn í fylgd með viðkomandi,
en þannig sparast björgunarsveit-
inni talsvert fé því ella hefði þurft að
senda mann út til að nálgast dýrið og
fylgja því heim.
„Nýr hundur kostar okkar 1,2-1,4
milljónir króna og fyrst eftir heim-
komuna er hann í tveggja vikna
sóttkví. Svo tekur við þjálfun í að
minnsta kosti eitt og hálft ár og fyrst
að því loknu kemst Píla í útkallsliðið
okkar,“ segir Þórir Sigurhansson.
sbs@mbl.is
Píla blóðhundur
er væntanleg senn
í Hafnarfjörðinn
Tík frá Alicante
þjálfuð til leitar- og
björgunarstarfa
Ljósmynd/Aðsend
Björgunarsveit Þórir Sigurhansson
þjálfari með tíkurnar Urtu og Perlu.