Morgunblaðið - 14.12.2020, Side 13

Morgunblaðið - 14.12.2020, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2020 DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum. Það væri vanvirðing og Bretum „ósæmandi“ að senda varðskip hennar hátignar til gæslu í bresku efnahagslögsögunni hverfi þeir úr Evrópusambandinu án samninga um framtíðarsamskipti Evrópusam- bandsins (ESB) og Bretlands. Þetta er mat Íhaldsþingmannsins Tobias Ellwood sem sagði yfirlýs- ingar um slíkt bera vott um „ábyrgðarleysi“ eftir að varn- armálaráðuneytið í London sagði að fjögur varðskip væru sjóklár og tilbúin til „kröftugs eftirlits“ þegar líður að lokum aðlögunartíma út- göngu Breta úr ESB. Ráðuneytið sagði skipin und- irbúin undir „margskonar atburða- rásir“ eftir gamlársdag, 31. desem- ber. Skip úr breska flotanum sinna nú þegar veiðieftirliti mestan part ársins fyrir ESB og Bretland í lög- sögu ESB. Fiskveiðimál hafa verið erfiðasti þröskuldurinn í viðræðunum yfir að stíga en samningatilraunum var enn haldið áfram þegar Morg- unblaðið fór í prentun í gærkvöldi. Bretum þótti kröfur ESB um kvóta alltof háar en lokist lögsagan hótaði ESB að svipta breskan sjávarútveg sérstöku aðgengi að mörkuðum fyrir fisk. Ellwood, sem er formaður varnarmálanefndar neðri deildar breska þingsins, sagði við Rás 4 hjá BBC að hótanir í fyrirsögnum fjölmiðla um að beita skipum væru til þess fallnar að afvegaleiða samningamenn og því „algjörlega óábyrgar“. Humza Yousaf, dómsmálaráð- herra skosku heimastjórnarinnar, sagðist ekki vilja sjá „byssubáta- stefnu“ stjórnar Boris Johnsons í skoskri lögsögu. Skotar myndu sinna eftirliti sjálfir ef þörf krefði. agas@mbl.is Fjögur varðskip tilbúin til eftirlits  Þingmaður ósáttur við yfirlýsingu Umdeild Bresk varðskip eru klár til eftirlits og gæslu með veiðum. Umfangsmikil bólusetning við kórónuveirunni hefst í Bandaríkj- unum í dag, en bandaríska lyfja- eftirlitið gaf í vikulok út bráða- birgðaleyfi til notkunar Pfizer/ BioNTech- bóluefnisins. Fyrstu þremur milljónum skammtanna verður flogið til 145 áfangastaða víðs vegar um Banda- ríkin í dag. Á morgun og miðvikudag stendur til að klára dreifinguna með því að færa 636 bólusetningar- stöðum bóluefni. Yfirumsjón með flutningunum hefur Gustave Perna, hershöfðingi í landher Bandaríkj- anna. Bóluefni Pfizer/BioNTech veitir 95% vörn gegn kórónuveirusmiti og hefur hlotið öryggisstimpil Mat- væla- og lyfjaeftirlits (FDA) Banda- ríkjanna. Ekkert lát er á veirunni og sókn hennar hefur verið stíf allan nóv- ember og það sem af er jólamán- uðinum. Sl. laugardag dró hún 3.309 manns til dauða í Bandaríkjunum. Að sögn Johns Hopkins-háskólans er það mesta manntjón á einum degi í heiminum. Er FDA veitti leyfi fyrir bólusetn- ingunni á föstudag sagði stofnunin að um tímamót væri að ræða í bar- áttunni við kórónuveirufaraldurinn. Hafði hún sætt hörðum kröfum Do- nalds Trumps um að bóluefnið yrði leyft. Bólusetning er hafin með sama bóluefni á landsvísu í Bretlandi. Nú þegar hefur verið veitt leyfi til bólusetninga með Pfizer/BioNTech Covid-19-efninu í Bretlandi, Kan- ada, Barein og Sádi-Arabíu. Eins og annars staðar er búist við að starfs- fólk heilbrigðisþjónustunnar og vist- menn öldrunarheimila gangi fyrir í fyrstu. Áætlað er að í janúar verði byrjað að bólusetja fólk sem ekki telst í hópi mest þurfandi í Banda- ríkjunum, þ.e.a.s. þorra lands- manna. agas@mbl.is Loftbrú með bólu- efnið Tímamót Bólu- efninu dreift. Bretar annars vegar og Evrópusam- bandið (ESB) hins vegar samþykktu síðdegis í gær að stíga lengra fram á veginn og þrautreyna enn frekar að ná samningum fyrir áramót, þegar úr- sögn Breta úr ESB kemur að fullu til framkvæmda. Þetta tilkynntu þau Boris Johnson, forsætisráðherra Breta, og Ursula von der Leyen, for- seti framkvæmdastjórnar ESB, í gær. Leiðtogarnir tveir áttu símasamtal um stöðuna í samningaviðræðunum og sögðu þar að á þessu stigi hvíldi sú ábyrgð á herðum þeirra að „þrauka frekar“. Í samtalinu skiptust þau á skoðunum varðandi óleyst viðræðu- efni. Áður sömdu þau um að reyna samninga til sunnudags, í gær. Það hefði þýtt að Bretar færu samnings- lausir úr sambandinu. Johnson og Von der Leyen gáfu viðræðunefndum sínum fyrirmæli um að funda áfram í Brussel þar sem þær höfðu setið stíft við samninga síðustu daga. Þau sögðust vilja sjá hvort ein- hver möguleiki væri enn fyrir hendi á að semja svo seint. Ekki fylgdi sög- unni hvenær nýr lokafrestur rynni út en í síðasta lagi verður að semja 31. desember og þing Breta og ESB- landanna þurfa að fá tíma til að stað- festa samning sem næðist. Von der Leyen lýsti samtali þeirra Johnsons sem „uppbyggjandi og gagnlegu“. Breski forsætisráð- herrann endurtók viðvaranir frá því fyrr í vikunni og sagði að „líklegasta“ niðurstaðan væri að Bretar yfirgæfu ESB án samkomulags. Bretar og ESB hafa frá í mars sl. átt í viðræðum um samninga um sam- skiptin eftir útgöngu þeirra fyrr- nefndu úr sambandinu, Brexit. Ljúki þeim ekki farsællega á gamlársdag gilda reglur Heimsviðskiptastofnun- arinnar (WTO) um viðskipti Bret- lands og ESB. Án gagnkvæms samnings viðræðu- aðila gætu tollar og gjöld lagst á vörur sem verslað verður með milli aðila. Gæti það þýtt verðhækkanir á ein- stökum vörum. Er hún kynnti sameiginlega yfir- lýsingu þeirra Johnsons sagði Von der Leyen að þrátt fyrir „lúa eftir nær árslangar samningatilraunir og þrátt fyrir að hver lokafresturinn á fætur öðrum hafi ekki leitt til niðurstöðu teljum við okkur sýna ábyrgð að halda lengur áfram“. agas@mbl.is Þrauka meðan einhver von er  Samningaviðræður Breta og Evrópusambandsins um viðskilnað halda áfram  Þrátt fyrir lúa segjast samningsaðilar ætla að sýna ábyrgð og reyna til þrautar Rekstur farþegaflugfélaga sem og annarra fyr- irtækja hefur verið einstaklega erfiður á tímum kórónuveirufaraldursins. Hafa þau meðal ann- ars brugðist við minni umsvifum og fækkun flug- ferða með aðhaldsaðgerðum. Hefur það þó ekki dugað í mörgum tilfellum og er frekari björg- unaraðgerða þörf, eigi að halda í þeim lífi. Starfsmenn portúgalska félagsins TAP mót- mæltu hremmingum félagsins í Lissabon í fyrra- dag. Portúgalska ríkið leggur senn fyrir ESB áætlun um uppstokkun á starfsemi TAP sem fékk 1,2 milljarða evra björgunarlán í júlí sl. AFP „Munum fljúga aftur“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.