Morgunblaðið - 14.12.2020, Side 32
Dúettinn Ylja verður með streymistónleika í beinni frá
Röntgen fimmtudagskvöldið 17. desember kl. 20 og eru
miðar seldir á tix.is. Ylja hefur verið starfandi frá árinu
2008 og á þeim tíma sent frá sér þrjár breiðskífur og
hlotið tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna.
Dúettinn skipa þær Gígja Skjaldardóttir og Bjartey
Sveinsdóttir. Segjast þær vita fátt skemmtilegra en að
vekja jólaandann á aðventunni. Á dagskrá tónleikanna
verða lög úr íslenska þjóðararfinum í bland við popp-
aða smelli.
Ylja með aðventustreymistónleika
Noregur mun leika um verðlaun á Evrópumóti kvenna í
handknattleik í Danmörku undir stjórn Þóris Hergeirs-
sonar. Liðið hefur unnið alla leiki sína í keppninni til
þessa og stórsigur gegn Króatíu á laugardaginn, 36:25,
þýddi að norska liðið er öruggt um sæti í undan-
úrslitum.
Þórir hefur því unnið enn eitt afrekið sem landsliðs-
þjálfari Noregs og verður þetta í tólfta sinn sem liðið
leikur til verðlauna á stórmóti undir stjórn Þóris en
hann tók við liðinu árið 2009. »27
Þórir Hergeirsson keppir um
verðlaun á stórmóti í tólfta sinn
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Hallbera Fríður Jóhannesdóttir
sendi nýlega frá sér barnabókina Á
ferð og flugi með ömmu: í Akrafjalli,
sem er sjálfstætt framhald bók-
arinnar Á ferð og flugi með ömmu.
„Bækurnar eru hugsaðar til að
fræða börn og fullorðna um Akranes
með hæfilegri blöndu af skáldskap
og ævintýrum,“ segir Hallbera, sem
starfaði við grunnskólana á Akra-
nesi í 32 ár og síðustu 19 árin sem
skólasafnskennari við Brekkubæjar-
skóla.
Fyrri bókin kom út 2012. Hallbera
segir að þá hafi vantað efni um
heimabyggð barnanna í yngsta bekk
Brekkubæjarskóla, hún hafi skrifað
söguna, fengið Bjarna Þór Bjarna-
son listamann til þess að mynd-
skreyta hana og gefið sjálf út hjá
HFJ forlaginu. „Bókin seldist upp,
ég gaf hana aftur út í fyrra ásamt út-
gáfu á ensku en fannst það ekki nóg,
því mig langaði til þess að skrifa um
Akrafjallið og það varð úr.“
Nýja bókin skiptist í tvo megin-
kafla, ferð að Guðfinnuþúfu og
göngu á Háahnúk. „Ég rifja upp ör-
nefni á leiðinni enda er Akrafjallið
það sem það er þeirra vegna,“ segir
Hallbera. Munnmælasögur og þjóð-
sögur ber á góma, sagt er frá Arnesi
útilegumanni og Jóni Hreggviðs-
syni, sem bjó við rætur fjallsins.
„Hann fær heldur fegurri mynd hjá
mér en hjá Halldóri Laxness, en
þess ber að geta að hann var mjög
öflugur bóndi hér í sveit þrátt fyrir
að hafa lent í vandræðum.“
Tvö flugslys hafa orðið í Akrafjalli
og þau koma við sögu. Frásagnir af
ferðalöngum verða höfundi yrkis-
efni, gerð er grein fyrir Geirmundi
og Guðfinni, skessur, Grýla og jóla-
sveinarnir fá sitt rými og í lokin er
heimildaskrá.
Þekking mikilvæg
Foreldrar Hallberu voru Bjarn-
fríður Leósdóttir og Jóhannes
Finnsson. Hún segist hafa alist upp
við sögur og bækur en aldrei hugsað
um að skrifa sjálf fyrr, en varla hafi
verið hjá því komist. „Mamma var
mjög mikill náttúruunnandi og
pabbi var líka sérlegur sagnamaður.
Þegar við fórum eitthvað var stöð-
ugt verið að segja manni frá þessu
og hinu, því maður átti að þekkja
sína heimabyggð og sitt land. Ég hef
haft þetta í huga við samningu bók-
anna.“
Í fyrri bókinni fer amma með
Frey, sex ára, um Akranes og fræðir
hann um ýmislegt á leiðinni, en í
seinni bókinni er Smári, átta ára
bróðir hans, á ferð með ömmu. „Ég
varð að skipta um sögupersónu,“
segir Hallbera. Hún hafi haft Gísla
Frey, elsta barnabarnið, í huga við
skrif fyrri bókarinnar og tileinkað
honum hana sem og öllum börnum á
Akranesi, en komist að því síðar að
Theódóri Smára, yngri bróður hans,
hafi ekki þótt bókin skemmtileg, því
hans væri ekki getið. Seinni bókin sé
því með hann sem fyrirmynd og til-
einkuð honum ásamt öllum börnum
á Akranesi. „Ég á sjö barnabörn og
er því í smá klemmu, en bæti bara úr
því og held áfram að skrifa.“
Á ferð og flugi Hallbera Fríður Jóhannesdóttir og Bjarni Þór Bjarnason listamaður með bókina.
Örnefni og leyndardómar
Hallbera Jóhannesdóttir varðveitir sögurnar í barnabókum
MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 349. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
ÍÞRÓTTIR MENNING