Málfríður - 15.05.2001, Side 12

Málfríður - 15.05.2001, Side 12
enskudeildinni voru fyrir tveir mjög áhugasamir kennarar sem höfðu gengið í gegnum nokkuð átakamikið fyrsta ár skólans og voru fullir áhuga á að reyna að vinna kennsluefni sem höfðaði rneira til nemenda þeirra en það sem fyrir var. Það varð úr að við lögðum á okkur mikla vinnu yfir sumarið til þess að setja saman þölbreytta kennslubók fyrir nemdur okk- ar. I þeirri vinnu nýttist mér til dæmis vel efni sem ég hafði þegar unnið í kennslu- fræðum erlendra mála í tengslum við æf- ingakennsluna. Það var ánægjulegt fyrir mig sem nýjan kennara að fá tækifæri og traust til þess að hafa eitthvað að segja um hvað yrði kennt og hvernig. En þrátt fyrir þennað undirbúning um sumarið, Lundúnadvölina og jafnvel kennslufræðina fann ég að ég átti ýmislegt eftir ólært og á svo sannarlega enn. A fyrsta starfsári mínu var margt sem kom á óvart og margar spurningar vöknuðu. Hvernig gat ég komið til móts við lesblinda nem- endur? Hvernig fékk ég nemendur til þess að læra alltaf heima? Hvers vegna gátu sumir nemendur ekki byrjað ritgerð öðruvísi en: “In this essay I arn going to write about ...?” Gera þessar málfræðiæf- ingar nokkurt gagn? Það munu alltaf vakna nýjar spurningar og vonandi heldur maður áfram að reyna að leita svara. Fyrir mér er lykillinn að árangursríku starfi gott samstarf innan deildarinnar. I Borgarholts- skóla hef ég fengið góðan stuðning frá upphafi og hugmyndir allra hafa fengið að njóta sín. Enskudeildin fer smám saman stækkandi og þar hafa meðal annarra bæst við tveir nýútskrifaðir kennarar úr kennslufræðinni sem með sanni má segja að séu eins og ferskur andblær fyrir skól- ann okkar og deildina. Þeir minna okkur á að við megum ekki gleyma því, í amstri hversdagsins, að alltaf er tími til að reyna að endurskoða og bæta okkar starf í þágu nemenda. Sólrún Inga Ólafsdóttir, enskukennari við Borgarholtsskóla Laugarvegur 18 • Pósthólf 902 • IS-121 Reykjavík Sími: 551-6061 • Fax: 552-7570 E-mail: goethe@simnet.is ÖfFnungszeiten/Opnunartímar Dienstag bis Freitag 15-18 Samstag 14-17 Ab dem 20.August 2001 liegen die Informationen zu den Sprachkursen vor, die im Herbst im Goethe- Zentrum stattfmden werden. HERZLICH WILLKOMMEN

x

Málfríður

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.