Málfríður - 15.05.2001, Side 25

Málfríður - 15.05.2001, Side 25
lenskir vesturfarar til Kanada eins og kunn- ugt er. Halldór Briem guðfræðingur, sem samdi ýmsar kennslubækur m. a. í íslenskri málfræði, gaf út kennslubók í ensku árið 1873. Hún hét fullu nafni Kennslubók í enskri tungu. Vasabók fyrir vestufara og aðra, er eiga viðskipti við Englendinga eða vilja læra ensku. I eftirfarandi kafla er Islending- ur nýkominn til Ameríku að ræða við mann sem hefur verið þar í nokkur ár. Bókin vísar til sjálfrar sín: Above all things I shall advise you to be dilig- ent in studying the English language. I began to read English two months ago. Have you any book with you? Yes, I have theVasabók. What book is that? A new pocket-book that contains a grammar, vocabulary, some dialogues, stories and so on. Well, read it diligently, and you wih soon be able to help yourself. Bók þessi er nefnd í skáldsögu J. Magnús- ar Bjarnasonar um Eirík Hansson, sem segir sögu ungs drengs sem flyst með afa sínum og ömmu til Ameríku. Þau fá far með erlendu skipi en kunna ekki orð í er- lendum tungum. Drengurinn segir svo frá: AUir farþegarnir töluðu enska tungu, eftir því, sem afi minn gat komizt næst. Hér kom bók HaUdórs Briem afa mínum að góðu haldi, þegar við þurftum einhvers sérstaks við. Hann var aUtaf með þá bók í höndunum, og var aUtaf að leita í orðasafninu, og þegar hann fann orð- ið, sem við átti í það og það skiptið, þá benti hann einhvetjum á það, og æfinlega varð það að tilætluðum notum. Tilgangur bókar Halldórs Briem var ekki einungis að sinna þörfum vesturfara, hann hafði einnig í huga þarfir þeirra sem höfðu áhuga á að skipta við Breta sem komu hingað að kaupa kvikfénað á fæti. Utflutningur á hrossum til Englands hafði hafist á seinni hluta 19. aldar og um 1870 voru um það bil 2500 hross seld breskum kaupmönnum á ári. Þörfm fýrir einhverja enskukunnáttu fór því vaxandi meðal al- mennings. Hér er dæmi um hagnýta ensku úr bók Halldórs Briein: Icel. 2. Here are 12 horses that I’U seh you al- together. Engl. How old are they? Icel. two are one yer (sic) old and the others are elder. Engl. How old are the others? Icel. Three are three years old, and seven are two years old. Engl. Are aU the ponies horses? Icel. Three of them are mares, one two years old and two one year old. Engl. What do they cost that are three years old? Icel. I seU them aU in a crowd each for 60 rix- doUars. Engl. It is exceedingly dear, I wiU not give more than 50 for them. Icel. No, I do not seU them for less than 60. Engl. I wiU not buy the mares, but I take the nine horses. Icel. WeU then, but you must pay directly. Þessi fýrsta enskubók Halldórs var 228 blaðsíður í smáu broti, hentug sem vasa- bók. Síðar gaf Halldór út enskubækur 1875, sem hann kallaði aðra útgáfu endur- samda en er í raun ný bók. Enn gaf hann út bók 1889 sem á lítið sameiginlegt með þeirri fýrstu. Síðari bækur Halldórs byggja meira á erlendum kennslubókum svo sem f 00 Timer í Engelsk eftir N. Jul. Eibe. Við það hverfa hnökrar sem vissulega er á þeim enska texta sem hann hefur í fyrstu bókinni. Hins vegar er fyrsta bókin skemmtilegust og á það sammerkt með bók Odds V Gíslasonar að hún endur- speglar sína samtíð. Alþýðufræðsla Almenningur á Islandi var farinn að læra ensku og nýtti sér bækur íslensku höfund- anna. Dæmi um það er að árið 1873 kom Handiðnamannafélagið í Reykjavík upp sunnudagaskóla fýrir fullorðna þar sem enska varð vinsælasta námsgreinin. Kenn- ari í ensku var OddurV. Gíslason og hann notaði bók Halldórs Briem. Jón Jónsson Borgfirðingur, bóksali í Reykjavík, segir frá gangi viðskiptanna í bréfi til séra Egg- erts Ó. Briem: Útflutningur á hrossum til Englands hafði hafist á seinni hluta 19. aldar og um 1870 voru um það bil 2500 hross seld breskum kaup- mönnum á ári. Þörfin fyrir ein- hverja ensku- kunnáttu fór því vaxandi meðal almennings. 25

x

Málfríður

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.