Fréttablaðið - 28.01.2021, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 8 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 2 8 . J A N Ú A R 2 0 2 1
STJÓRNSÝSLA Sigið hefur á ógæfu-
hliðina fyrir Ísland, sem er nú í
sautjánda sæti á lista Transparency
International (TI) yfir spillingu og
spillingarvitund í 180 ríkjum.
Á árunum fyrir efnahagshrunið
trónaði Ísland jafnan á toppi listans
ásamt hinum Norðurlöndunum, en
lengst hefur mjög á milli Íslands og
annarra norrænna ríkja á undan-
förnum árum og Ísland þokast hægt
og bítandi niður á við. Í fyrra var
Ísland í ellefta sæti og fellur niður
um sex sæti milli ára.
Íslandi eru gefin 75 stig í úttekt TI
en Danmörk og Nýja-Sjáland, sem
tróna á toppi listans, eru með 88
stig. Í þriðja til sjötta sæti eru Finn-
land, Singapúr, Svíþjóð og Sviss með
85 stig. Noregur er í sjöunda sæti
með 84 stig.
Þess er sérstaklega getið að við-
brögð íslenskra stjórnvalda við
COVID-faraldrinum hafi vakið
athygli erlendis. Þá hafi verið tekin
framfaraskref í löggjöf, meðal ann-
ars um vernd uppljóstrara og gegn
hagsmunaárekstrum í Stjórnarráði
Íslands. Hins vegar hafi mál Sam-
herja í Namibíu varpað skugga og
athugasemdir við meðferð mútu-
brotamála á Íslandi einnig haft áhrif
á frammistöðuna.
„Vísitalan mælir huglægt mat á
spillingu þannig að það þarf ekki
að vera algjört samasemmerki milli
hennar og raunverulegrar spillingar,
enda vandasamt að mæla hana. Það
gæti því vel verið að það sé fyrst og
fremst meðvitund fólks um spill-
ingu sem hefur verið að breytast frá
hruni,“ segir Halldór Auðar Svans-
son, stjórnarmaður í Íslandsdeild TI.
Lögð er töluverð áhersla á heims-
faraldurinn í skýrslu samtakanna
nú. Spilling hamli skilvirkum við-
brögðum við COVID-19. Í spilltum
ríkjum sé einnig aukin hætta á að
mannréttindi séu brotin samhliða
þeim aðgerðum sem gripið er til. – aá
Ísland niður spillingarlistann
Ísland fellur um sex sæti á lista Transparency International um spillingu og spillingarvitund í 180 ríkj-
um og dregst enn aftur úr öðrum Norðurlandaþjóðum. Mál Samherja í Namibíu eru sögð varpa skugga.
Meira á frettabladid.is
Halldór Auðar
Svansson,
stjórnarmaður í
Íslandsdeild TI
Skreið er þurrkuð í miklu magni við Krísuvíkurveg. Þessi gamalgróna afurð hefur ekki staðist tímans tönn að ástæðulausu því skreiðin er næringarrík og geymist vel. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
UMHVERFISMÁL „Við hörmum þetta
og gerum ráð fyrir að bærinn taki
þá á sig áhættuna,“ segir Jón Helgi
Björnsson á Laxamýri, sem óttast
riðu smit vegna dreifingar gors í
Ærvíkurhöfða.
„Þegar var búið að veita Kolviði
leyfi til skógræktar á Ærvíkur-
höfða. Við sáum samlegð í því að
nota gorinn frá Norðlenska í því
verkefni í samstarfi við Kolvið,“
segir Silja Jóhannesdóttir, formaður
framkvæmdaráðs Norðurþings.
– khg / sjá síðu 4
Óttast smit úr
sláturúrgangi
Silja
Jóhannesdóttir,
formaður fram-
kvæmdaráðs
Norðurþings
Svansvottaðar!
Krónuverslanir
Nú eru allar
Pssst ...
kynntu þér
málið betur á
kronan.is