Fréttablaðið - 28.01.2021, Blaðsíða 20
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Ólafía er í áskrift að vörum frá KeyNatura og hefur verið það í nokkur ár. Upp-
haflega ákvað hún að prófa vör-
urnar vegna þess að þær innihalda
astaxanthin. Efni sem þörungar
framleiða og rannsóknir hafa sýnt
að hafa jákvæð áhrif á húð.
„Ég hafði heyrt að astaxanthin
hefði góð áhrif á húðina, hjarta,
æðakerfið og ónæmiskerfið, það
var það sem heillaði mig fyrst. Ég
tók fyrst inn Astaxanthin frá Key-
Natura en skipti ég yfir í AstaSkin
þar sem það inniheldur astaxant-
hin plús seramíð, kollagen og
vítamín. Ég fann mjög f ljótlega
gríðarlegan mun á húðinni á mér.
Ég var oft að glíma við þurrkbletti í
andlitinu og var þurr á kroppnum
og fótleggjunum, það er bara alveg
horfið,“ segir Ólafía.
Ólafía starfar á skurðstofu
sem hjúkrunarfræðingur en
vegna starfsins þarf hún að þvo
og skrúbba sér um hendurnar og
spritta mörgum sinnum á dag.
Hún var því oft að glíma við
sprungna húð á hnúunum.
„Það er ekki vandamál lengur,
en það skiptir mig miklu máli sem
hjúkrunarfræðingur að vera ekki
með sár á höndunum,“ segir hún.
„Ég er mikið í alls konar útivist
og hleyp reglulega og mér finnst
AstaSkin verja og eða styrkja húð-
ina fyrir sól og kulda. Áður varð ég
rauð og bleik eftir útivist og sólina
en núna verð ég útitekin og verð
meira að segja brún. Ég er venju-
lega með það ljósa húð að fólk
sem sér mig núna verður hissa og
segist aldrei hafa séð mig brúna.
Mér finnst húðin á mér vera miklu
sterkari og hafa meiri ljóma en
áður og þola útivistina betur.
Nærir húðina innan frá
Ólafía tekur inn tvö hylki á dag
af AstaSkin og skammturinn sem
hún fær sendan heim til sín dugar
því í mánuð.
„Þessi áskriftarleið er tiltölu-
lega ný hjá þeim. En hún er mjög
sniðug og umhverfisvæn. Ég fæ þá
ekki senda nýja dollu í hvert sinn
heldur bara áfyllingu. Ég held það
sé mjög mikilvægt að nota ekki
einungis krem heldur næra húðina
líka innan frá. Ég trúi því að það
sem maður borðar og drekkur
skipti miklu máli fyrir almennt
hreysti og sjáist á húðinni. Maður
þarf að hugsa vel um sig ekki síst
húðina því hún er jú stærsta líf-
færið,“ segir hún.
Ólafía notar líka AstaEnergy
frá KeyNatura fyrir æfingar. „Ég
tek það að vísu ekki inn ef ég
æfi seinni partinn af því það er
koffín í því og það truflar svefninn
minn að fá koffín í kroppinn
eftir hádegi. En AstaEnergy hefur
Ólafía er mjög ánægð með AstaSkin, en eftir að hún byrjaði að taka hylkin inn finnur hún mikinn mun á húðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Páll er rannsókna- og þróunarstjóri hjá SagaNatura og hefur meðal annars
unnið við að þróa AstaSkin svo varan hafi góð áhrif á húðina. MYND/AÐSEND
Framhald af forsíðu ➛
virkað vel fyrir mig finnst mér. Það
flýtir fyrir endurheimt og gefur
auka orku og úthald á æfingu.“
Ólafía hafði notað astaxanthin
frá erlendum framleiðanda áður
en það var framleitt hér.
„Þegar ég byrjaði á því þá var
Astaxanthin ekki byrjað í fram-
leiðslu á Íslandi, en ég skipti svo
yfir í vörurnar frá KeyNatura
þegar byrjað var að framleiða þær.
Ég bý í Hafnarfirði og fyrirtækið
er þar og ég vildi styrkja íslenska
framleiðslu. Mér finnst vörurnar
frá þeim líka miklu öflugri og
húðin á mér er bara allt önnur en
hún var.“
AstaSkin hylkin eru unnin úr
íslenskum smáþörungum
Páll Arnar Hauksson er rann-
sókna- og þróunarstjóri hjá
SagaNatura sem framleiðir Key-
Natura vörurnar. Hann hefur
meðal annars unnið við að þróa
AstaSkin.
„Grunnurinn að vörunni er
astaxanthin. Það hefur marga
þekkta eiginleika sem hafa áhrif á
heilsu húðarinnar. Það helsta sem
má nefna er vernd gegn útfjólu-
bláum geislum, hrukkur verða
grynnri og það getur komið í veg
fyrir myndun á öldrunarblettum,“
segir Páll.
Astaxanthinið í AstaSkin kemur
frá smáþörungum sem rækt-
aðir eru í Hafnarfirði í sérstökum
innanhússræktunareiningum.
Smáþörungar í náttúrunni fram-
leiða astaxanthin til að verja
sig gegn óæskilegum áhrifum
sólarinnar. Smáþörungarnir sem
SagaNatura ræktar eru látnir
framleiða astaxanthin með því að
lýsa á þá með raflýsingu.
„Þegar smáþörungarnir verða
fyrir ljósálagi þá hefst náttúru-
legt ferli. Þörungarnir fara í
dvalaástand og mynda um leið
astaxanthin. Þörungarnir geta
svo snúið aftur úr þessu ástandi
ef aðstæðurnar verða hagstæðar á
ný,“ útskýrir Páll.
Innihaldsefnin eru með stað-
festa virkni og vandlega valin
„Þegar við þróuðum AstaSkin
þá vildum við búa til vöru sem
inniheldur astaxanthin en er líka
með fleiri innihaldsefnum sem
hafa góð áhrif á húðina. Helstu
innihaldsefnin í AstaSkin, eru auk
astaxanthins, seramíð og kolla-
gen,“ segir Páll.
„Seramíðið er frá Japan og er
unnið úr hrísgrjónum, en seramíð
er mikilvægur hluti af húðfitunni.
Eftir því sem við eldumst verður
breyting á útliti, samsetningu og
uppbyggingu húðarinnar. Ein
helsta breytingin sem verður er
hægfara minnkun á seramíði í
húðinni sem dregur úr vatns-
heldni hennar og gerir hana næm-
ari fyrir ertingu og roða. Seramíð
er nauðsynlegt fyrir húðina til að
koma í veg fyrir vatnstap úr ysta
húðlaginu. Við notum seramíð
í okkar vörur sem eru klínískt
rannsökuð og það hefur verið sýnt
fram á að þau draga úr vatnstapi í
húðinni,“ útskýrir hann.
„Þriðja mikilvæga innihalds-
efnið í AstaSkin er kollagen sem
gefur okkur nauðsynleg uppbygg-
ingarefni fyrir húð. Auk þess inni-
heldur AstaSkin öfluga fjölvíta-
mínblöndu. Það eru sjö vítamín í
vörunni, meðal annars C-vítamín
sem er nauðsynlegt fyrir kolla-
genmyndun í húðinni. Við veljum
vandlega innihaldsefni í vörurnar
sem við vitum að hafa staðfesta
virkni.“
AstaSkin inniheldur náttúruleg efni
sem hafa staðfesta virkni á húð.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 8 . JA N ÚA R 2 0 2 1 F I M MT U DAG U R