Fréttablaðið - 28.01.2021, Blaðsíða 40
Hann er hærra
skrifaður hjá kolleg-
unum innan deildarinnar en
fjölmiðlamönnunum, þrátt
fyrir að hafa sett niður eitt af
stærstu skotum NBA-sög-
unnar í úrslitunum 2016
þegar Cleveland vann
titilinn.
Sigurður Orri Kristjánsson, hlað-
varpsstjóri Boltinn lýgur ekki
FÓTBOLTI Að lestin fari af teinunum
er ef til vill ekki nægilega sterk lýs-
ing á frammistöðu Liverpool undan-
farnar vikur og þegar tímabilið er
hálfnað þarf Jürgen Klopp að vera
fljótur að finna lausn á vandræðum
liðsins fyrir komandi verkefni.
Fimm leikir á næstu sextán dögum
koma til með að ráða úrslitum um
í hvaða baráttu Englandsmeistar-
arnir verða í vor. Seinni hluti tíma-
bils Liverpool hefst í kvöld gegn Tot-
tenham, en fari svo að Liverpool tapi
í kvöld gæti liðið verið að berjast um
miðja deild innan skamms. Fimm
stig skilja að Liverpool og neðri
hluta deildarinnar, en fara þarf aftur
til haustsins 2016 til að finna verstu
stöðu Liverpool-liðsins undir stjórn
Jürgens Klopp, þegar Liverpool var
í tíunda sæti eftir þrjár umferðir.
Rúmur mánuður er liðinn síðan
Liverpool og Tottenham mætt-
ust síðast þar sem Liverpool vann
dramatískan 2-1 sigur á Anfield.
Þremur dögum seinna léku læri-
sveinar Klopps sinn besta leik
á tímabilinu í 7-0 sigri á Crystal
Palace en síðan kom babb í bátinn.
Í næstu fimm leikjum er uppskeran
aðeins þrjú stig af fimmtán og eitt
mark skorað á 450 mínútum. Fyrir
vikið er Liverpool skyndilega komið
í eltingarleik við Manchester-liðin
tvö á toppnum og hin fjögur liðin
sem virðast ætla að gera sig gildandi
í baráttunni um sæti í Meistaradeild
Evrópu á næsta ári.
Fari svo að Tottenham vinni í
kvöld gætu liðin fyrir neðan Liver-
pool sem eiga leiki til góða sent
Liverpool í miðja deild en um leið
væri Liverpool þá búið að tapa jafn
mörgum stigum í sex leikjum og
allt síðasta tímabil, þar sem aðeins
fimmtán stig fóru forgörðum og
tveimur stigum minna en tímabilið
þar áður. Handan hornsins bíða
Liverpool leikir gegn spútnikliði
West Ham, Leicester og Manches-
ter City sem er í toppbaráttunni og
leikur gegn Brighton sem berst fyrir
lífi sínu í deild þeirra bestu. – kpt
Komið að örlagastundu í titilvörn Liverpool-manna
Titilvörn Liverpool gengur illa þessa dagana. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Liverpool er ekki búið
að skora í síðustu 87 skottil-
raunum í ensku úrvalsdeild-
inni.
ÓLYMPÍULEIKAR Ljóst er að fresta
þarf alþjóðlegri keppni í listsundi
sem átti að fara fram í Tókýó í byrj-
un mars, en mótið var hugsað sem
generalprufa fyrir Ólympíuleikana
þar í landi. Stjórnvöld í Japan fram-
lengdu útgöngubann þar í landi
vegna útbreiðslu kórónaveirunnar
en vonast er til þess að mótið geti
farið fram í vor.
Von var á keppendum frá tíu
löndum og átti mótið um leið að
vera lokaúrtökumót fyrir Ólymp-
íuleikana, en Alþjóðlega sund-
sambandið og japanska sundsam-
bandið sammæltust um að það yrði
nánast ómögulegt að skipuleggja
mótið í byrjun mars.
Búið er að útbúa sérstakar 53
blaðsíðna leiðbeiningar fyrir þátt-
takendur á Ólympíuleikunum í von
um að hægt sé að forðast útbreiðslu
kórónaveirunnar ef veiran verður
enn til staðar í Japan síðar á þessu
ári. – kpt.
Fresta fyrstu
prófrauninni
fyrir leikana
2 8 . J A N Ú A R 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R20 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
NBA Kyrie Irving gæti átt yfir höfði
sér refsingu frá NBA deildinni í
körfubolta fyrir að hafa tekist að
gefa Bam Adebayo treyju sína í lok
leiks Brooklyn Nets og Miami Heat
í vikunni. Þetta var annar leikur
liðanna á tveimur dögum, en í fyrri
leiknum birtist myndband af því
þegar öryggisvörður stöðvaði þá í
treyjuskiptum. Strangar reglur
NBA-deildarinnar til að hemja
útbreiðslu kórónaveirunnar banna
leikmönnum þessa iðju. Þetta er
ekki í fyrsta sinn sem Kyrie fer á
svig við kröfur deildarinnar um
sóttvarnir, en hann var sektaður
um fimmtíu þúsund dollara fyrir að
mæta grímulaus í afmælispartí hjá
systur sinni fyrr í þessum mánuði
og gæti deildin reynt að setja for-
dæmi fyrir veturinn með leikbanni
eða hárri fjársekt.
Það fer ekki á milli mála að Irv-
ing er meðal betri bakvarða NBA-
deildarinnar og átti stóran hlut
í fyrsta meistaratitli Cleveland
Cavaliers árið 2016. Þegar hann
samdi við Brooklyn Nets með
Kevin Durant, var beðið með eftir-
væntingu á meðan Durant náði sér
af meiðslunum enda áttu þeir tveir
að geta myndað kjarna liðs sem
gæti gert atlögu að meistaratitli.
Meistarakandídatarnir urðu svo
að sigurstranglegasta liðinu þegar
Nets bætti James Harden við leik-
mannahópinn og eiga þeir þrír að
gera atlögu að fyrsta meistaratitl-
inum í sögu félagsins.
Sá gallinn er hins vegar á Kyrie
Irving að það getur verið erfitt að
lesa í hann, eins og sást bersýni-
lega fyrr í þessum mánuði þegar
hann ákvað skyndilega að gefa
ekki kost á sér í tæpar tvær vikur
og missti fyrir vikið af sjö leikjum. Í
viðtölum baðst Kyrie undan því að
útskýra fjarveruna en var fljótur að
hrista af sér ryðið og hefur leikið vel
í undanförnum leikjum. Þá er frægt
þegar hann fór skyndilega að ræða
möguleikann á því að jörðin væri
f löt eftir að hafa horft á myndir um
kenninguna og þegar hann dreifði
salvíu yfir parketið á heimavelli
Boston Celtics í fyrsta leik sínum á
gömlum heimavelli til að hreinsa út
neikvæðu orkuna.
Minna heyrist af góðverkum hans
utan vallar þar sem Irving virðist
vera mikill öðlingur. Irving er dug-
legur að leggja til peninga og nauð-
synjavörur fyrir fjölskylduhjálpar-
stöðvar í Bandaríkjunum og keypti
hús fyrir fjölskyldu George Floyd
eftir að Floyd var myrtur af lög-
regluþjóni á síðasta ári. Þá var hann
tilbúinn að borga leikmönnum í
WNBA, sterkustu kvennakörfu-
boltadeild heims, laun sín, ef þær
gáfu ekki kost á sér vegna kóróna-
veirufaraldursins en sú upphæð
taldi 1,5 milljónir dala.
Sigurður Orri Kristjánsson, einn
af ritstjórum Karfan.is og hlað-
varpsstjóri Boltinn lýgur ekki, hlað-
varps um innlendan og erlendan
körfubolta, tók undir að Kyrie virt-
ist oft vera misskilinn snillingur.
„Kyrie er ótrúlega vinsæll hjá
öðrum leikmönnum deildarinnar.
Hann er hærra skrifaður hjá kolleg-
unum innan deildarinnar en fjöl-
miðlamönnunum, þrátt fyrir að
hafa sett niður eitt af stærstu skot-
um NBA-sögunnar í úrslitunum
2016 þegar Cleveland vann titilinn.
Hann getur gert hluti með boltann
sem enginn annar kann að gera.“
Sigurður tók undir að það væri
sérkennileg staða fyrir þjálfara að
vera með leikmann í slíkum gæða-
flokki sem erfitt væri fyrir þjálfar-
ann að lesa.
„Þetta var mjög sérkennilegt
atvik, þegar hann hvarf bara í viku,
þarf svo að taka út tíma í sóttkví og
missir fyrir vikið af átta leikjum.
Eins og tímabilið er í NBA skiptir
miklu máli að skapa liðsanda í
þessum leikjum,“ segir Sigurður
um Kyrie, sem virðist eyða miklum
tíma í að skoða samsæriskenningar.
„Það kæmi mér ekkert brjálæðis-
lega á óvart ef hann kaupir ekki
þennan heimsfaraldur. Hann er
mikið í því að fylgjast með sam-
særiskenningum og að mörgu leyti
einkennilegur maður. Ég hafði mjög
gaman af þessu og hef fjallað um
þetta í hlaðvarpinu, hann virðist
vera mjög andlega þenkjandi og
það kæmi manni ekkert á óvart að
sjá hann í kakóseremóníum.“
Hann tók undir að á sama tíma
væri Kyrie, sem er varaforseti leik-
mannasamtakanna, mikill öðl-
ingur.
„Hann virðist á sama tíma vera
mikill öðlingur og góður maður.
Þegar NBA-deildin hófst aftur í
búbblunni var hann gagnrýninn á
að vera að nýta kórónaveirupróf frá
öðrum í þetta. Það getur verið erfitt
að lesa þess á milli, stundum virðist
hann hálf áhugalaus innan vallar
og stundum í stríði við fjölmiðlana
en svo er hann frábær þess á milli.“
kristinnpall@frettabladid.is
Öðlingur sem fer eigin leiðir
Körfuboltamaðurinn Kyrie Irving var tekinn við að brjóta sóttvarnareglur NBA-deildarinnar í annað
sinn í vikunni. Irving fer yfirleitt sínar eigin leiðir, en enginn efast um hæfileikana inni á vellinum.
Irving, James Harden og Kevin Durant, mynda ógnarsterkt þríeyki hjá Brooklyn Nets. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
FÓTBOLTI Evrópska knattspyrnu-
sambandið, UEFA, ítrekaði í gær
að áætlanir stæðu enn yfir um að
Evrópumótið í sumar færi fram í
tólf löndum í Evrópu. Mótið hefst
þann 11. júní og stendur yfir í einn
mánuð.
Í tilefni 60 ára afmælis Evrópu-
mótsins var ákveðið að halda mótið
í tólf mismunandi borgum í tólf
mismunandi ríkjum. Kallað hefur
verið eftir því að mótafyrirkomu-
laginu verði breytt og það fari fram
í lokaðra rými vegna kórónaveiru-
faraldursins en UEFA sagði í yfir-
lýsingu í gær að enn væri stefnt að
því að mótið fari fram með óbreyttu
sniði. Stjórn mótsins hafi fundað
með fulltrúum borganna tólf þar
sem þetta hafi verið rætt. – kpt
Stefna enn að
12 þjóða EM
Aleksander Ceferin, forseti UEFA.