Fréttablaðið - 28.01.2021, Blaðsíða 56
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Thomasar
Möller
BAKÞANKAR
Nú keppast fjölmiðlar við að gera upp forsetatíð Trumps. Miðillinn Fact
Checker sem hefur fylgst með
honum allt kjörtímabilið hefur
fundið út að 30.573 sinnum sagði
hann ósatt eða var með villandi
fullyrðingar, sem þýðir að hann
hafi farið með rangt mál 21 sinni
á dag í þann 1.461 dag sem hann
var forseti. Og það á aðeins við um
það sem hann sagði opinberlega.
Þetta er góð áminning fyrir leið-
toga í stjórnmálum, stofnunum
og fyrirtækjum, að það verður æ
erfiðara að fara með rangt mál.
Réttmæti fullyrðinga má kanna
á Google og fjölmargir miðlar
sérhæfa sig í sannreyningu eins og
fyrrnefndur Fact Checker.
Að mínu mati er það einn
mikilvægasti eiginleiki stjórn-
málamanna og stjórnenda að segja
satt og rétt frá málum. Ýkjur eða
ósannindi komast upp um síðir.
Það kemur þeim fyrr eða síðar í
koll ef þeir verða uppvísir að því
að segja ósatt. Það sannaðist til
dæmis í hruninu, þegar almenn-
ingi var sagt að bankarnir væru
fjárhagslega sterkir fram á síðasta
dag.
Þegar ég var að skrifa þessa
bakþanka las ég tvö viðtöl við
utanríkisráðherra okkar, sem full-
yrti að „vöruverð í landinu muni
hækka tilfinnanlega við hugsan-
lega inngöngu Íslands í ESB“.
Með einföldu gúgli fann ég
ábendingu Hagstofunnar um að
verðlag á Íslandi er nú þegar það
hæsta í Evrópu eða um 20-66%
hærra en að meðaltali í Evrópu.
Mér finnst að ráðherrann þurfi
að færa rök fyrir sínu máli, en það
er ákveðin mótsögn falin í því
að fullyrða að verðlag hér á landi
muni hækka við það að ganga í
samband þjóða þar sem verðlagið
er þegar mun lægra fyrir.
Stjórnmálamenn!... hættið að
plata okkur, það er svo auðvelt að
afsanna rangar fullyrðingar.
30.573
Fréttablaðið
2x5
99mm x 50mm
FRÉTTABLAÐIÐ
SÝNDU KRAFT Í VERKI
Á LIFIDERNUNA.IS
STUÐNINGSFÉLAG FYRIR UNGT FÓLK SEM GREINST
HEFUR MEÐ KRABBAMEIN OG AÐSTANDENDUR
Nýjasta stjarnan
frá Samsung!
www.nova.is
Samsung Galaxy
S21 128GB
149.990 kr.
Samsung Galaxy
S21+ 128GB
185.990 kr.
Samsung Galaxy
S21 Ultra 128GB
219.990 kr.
Samsung Galaxy Buds Live
og SmartTag fylgja
í forsölu
Samsung Galaxy Buds Live
og SmartTag fylgja
í forsölu
Samsung Galaxy Buds Pro
og SmartTag fylgja
í forsölu
Hafðu hraða fingur og nældu í Samsung Galaxy S21, S21+
og Ultra. Glæsilegir kaupaukar fylgja með, aðeins í forsölu!
Forsalan klárast í dag á nova.is!