Fréttablaðið - 28.01.2021, Síða 56

Fréttablaðið - 28.01.2021, Síða 56
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 550 5000 Thomasar Möller BAKÞANKAR Nú keppast fjölmiðlar við að gera upp forsetatíð Trumps. Miðillinn Fact Checker sem hefur fylgst með honum allt kjörtímabilið hefur fundið út að 30.573 sinnum sagði hann ósatt eða var með villandi fullyrðingar, sem þýðir að hann hafi farið með rangt mál 21 sinni á dag í þann 1.461 dag sem hann var forseti. Og það á aðeins við um það sem hann sagði opinberlega. Þetta er góð áminning fyrir leið- toga í stjórnmálum, stofnunum og fyrirtækjum, að það verður æ erfiðara að fara með rangt mál. Réttmæti fullyrðinga má kanna á Google og fjölmargir miðlar sérhæfa sig í sannreyningu eins og fyrrnefndur Fact Checker. Að mínu mati er það einn mikilvægasti eiginleiki stjórn- málamanna og stjórnenda að segja satt og rétt frá málum. Ýkjur eða ósannindi komast upp um síðir. Það kemur þeim fyrr eða síðar í koll ef þeir verða uppvísir að því að segja ósatt. Það sannaðist til dæmis í hruninu, þegar almenn- ingi var sagt að bankarnir væru fjárhagslega sterkir fram á síðasta dag. Þegar ég var að skrifa þessa bakþanka las ég tvö viðtöl við utanríkisráðherra okkar, sem full- yrti að „vöruverð í landinu muni hækka tilfinnanlega við hugsan- lega inngöngu Íslands í ESB“. Með einföldu gúgli fann ég ábendingu Hagstofunnar um að verðlag á Íslandi er nú þegar það hæsta í Evrópu eða um 20-66% hærra en að meðaltali í Evrópu. Mér finnst að ráðherrann þurfi að færa rök fyrir sínu máli, en það er ákveðin mótsögn falin í því að fullyrða að verðlag hér á landi muni hækka við það að ganga í samband þjóða þar sem verðlagið er þegar mun lægra fyrir. Stjórnmálamenn!... hættið að plata okkur, það er svo auðvelt að afsanna rangar fullyrðingar. 30.573 Fréttablaðið 2x5 99mm x 50mm FRÉTTABLAÐIÐ SÝNDU KRAFT Í VERKI Á LIFIDERNUNA.IS STUÐNINGSFÉLAG FYRIR UNGT FÓLK SEM GREINST HEFUR MEÐ KRABBAMEIN OG AÐSTANDENDUR Nýjasta stjarnan frá Samsung! www.nova.is Samsung Galaxy S21 128GB 149.990 kr. Samsung Galaxy S21+ 128GB 185.990 kr. Samsung Galaxy S21 Ultra 128GB 219.990 kr. Samsung Galaxy Buds Live og SmartTag fylgja í forsölu Samsung Galaxy Buds Live og SmartTag fylgja í forsölu Samsung Galaxy Buds Pro og SmartTag fylgja í forsölu Hafðu hraða fingur og nældu í Samsung Galaxy S21, S21+ og Ultra. Glæsilegir kaupaukar fylgja með, aðeins í forsölu! Forsalan klárast í dag á nova.is!

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.