Fréttablaðið - 28.01.2021, Page 2

Fréttablaðið - 28.01.2021, Page 2
24 eru á hjúkrunarheimilinu og sex á dvalarheimilinu. Grímur út um allar trissur Starfsmenn frá Hreinsitækni í gríð og erg að klófesta grímur í þúsundavís við vindasama Reykjanesbraut í Kópavogi. Þótt andlitsgrímur séu bjarg- vættir í baráttunni við faraldurinn, reynast þær skaðvaldar í náttúrunni ef þær rata ekki í rétta tunnu að loknum starfsaldri. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN COVID-19 „Þetta er skref fram á við, stórt skref,“ segir Jóhanna Sigríður Sveinsdóttir, hjúkrunarstjóri Skjól- garðs á Höfn í Hornafirði, en hjúkr- unar- og dvalarheimilið slakaði á COVID-hömlum fyrir aðstandend- ur þótt enn séu í gildi aðrar minna strangar reglur. Búið er að bólusetja alla íbúa Skjólgarðs í tvígang og var því hægt að rýmka heimsóknarreglur frá og með þriðjudeginum. Jóhanna segir að ættingjar og vinir þeirra sem dvelja á Skjólgarði hafi tekið þessu fagnandi. Áður hafi þurft að panta tíma, heimsóknin fór fram í sólstofu Skjólgarðs og aðeins einn mátti koma. Það er þó vel passað upp á fjöldatakmarkanir og reglur sóttvarnalæknis. Nú mega tveir koma í einu, heimsóknirnar geta farið fram inni á herbergjum og þarf að bóka tíma. „Þetta er töluverður munur. Það er þó enn grímuskylda til að verja starfsfólkið mitt en nú er hægt að heimsækja viðkomandi í sínu her- bergi. Við vorum smá smeyk við að það myndi koma hér hópur aðstandenda en það var enginn mættur á húninn klukkan átta um morguninn. Þetta gekk vel en ég finn að fólk er ennþá að passa sig.“ Jóhanna segir að enginn heimilis- maður Skjólgarðs hafi fengið auka- verkanir af bóluefninu og bólusetn- ingin hafi gengið vel. „Þetta er töluvert mikill léttir og maður finnur það hjá öllum. Að geta hitt fólkið sitt þó það sé með grímu. Þetta léttir líka á starfsfólkinu mínu því það þurfti að vera við símann og bóka heimsóknir. Athuga hvenær síðasti tími væri laus og svo fram- vegis. Þetta er gott fyrir alla.“ Jóhanna sem tók við starfinu í júní í fyrra segir að ótrúlega margt við þessa fyrstu mánuði hafi verið gefandi. Hún hafi lengi rætt um það við manninn sinn að flytja og upp- lifa ævintýri landsbyggðarinnar. „Við fengum ekki neitt smit á heimilisfólki, við vorum vel undir- búin og vorum í samstarfi við önnur hjúkrunarheimili á Suðurlandi. Við reyndum að gera okkar besta og hugsa vel um okkar fólk, nýttum okkur tæknina og alls konar,“ segir Jóhanna sem bjó á Höfn í tvö ár í æsku og á þar ættingja. „Okkur langaði að prófa eitt- hvað nýtt og ég sé ekki eftir því. Hér er ég alltaf að græða tíma enda minna skutl og minna vesen,“ segir Jóhanna. benediktboas@frettabladid.is Léttir að geta slakað á sóttvarnaaðgerðum Slakað hefur verið á sóttvarnaaðgerðum á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Skjólgarði á Höfn enda allir íbúar bólusettir. Hjúkrunarstjórinn segir að öllum sé létt og það sé bjartara yfir. Gott sé að taka skref fram á við í faraldrinum. Fyrsti Hornfirðingurinn sem fékk COVID-bólusetningu var Ingibjörg Zoph- aníasardóttir, 97 ára íbúi á Skjólgarði, rétt eftir jól. MYND/HSU HORNAFIRÐI MENNING Fulltrúar frá vinnings- skólum í Lestrarkeppni grunnskól- anna heimsóttu Bessastaði í gær. Þar veittu forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reed þeim verðlaun fyrir frábæra frammi- stöðu. Keppnin stóð yfir frá 18. - 25. janú- ar. Veitt voru verðlaun til skólanna sem voru í fyrsta sæti í sínum flokki, auk þess að þeir skólar sem lásu mest þvert á flokka þar á eftir fengu viður- kenningu fyrir frábæran árangur. Skólarnir sem sigruðu sína flokka voru Setbergsskóli, Smáraskóli og Grenivíkurskóli. Skólarnir sem fengu viðkenningu fyrir framúr- skarandi árangur voru Höfðaskóli, Gerðaskóli og Myllubakkaskóli. Í gögnum frá orðabanka Samróms kemur fram að á meðan keppninni stóð voru lesnar  um 790 þúsund setningar frá 6.172 manns fyrir 136 skóla. – atv Bókaormar á Bessastöðum Fulltrúar vinningsskólanna heimsóttu forsetahjónin. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN C O V I D - 1 9 E v r ó p u s a m b a n d - ið hefur krafið AstraZeneca um að fá af henta þá  bóluefnisskammta sem samningar segja til um. Lyfja- fyrirtækið tilkynnti sambandinu nýlega að því yrðu afhentir 60 pró- sentum færri skammtar en til stóð á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Að sögn AstraZeneca hafa fram- leiðsluörðugleikar í verksmiðjum fyrirtækisins í Evrópu orðið til þess að eftirspurn verði ekki annað. Þá segir Evrópusambandið að Astra- Zeneca eigi að geta nýtt sér verk- smiðjur sínar á Bretlandseyjum til að sporna gegn skortinum. Fleiri fyrirtæki hafa lent í erfið- leikum í framleiðslu. Pfizer og BioNTech frestuðu einnig afhend- ingu á bóluefnum sínum. Lyfja- fyrirtækið Sanofi hefur hins vegar boðið þeim verksmiðju sína í Þýska- landi til afnota svo eftirspurn verði annað. Evrópusambandið og Astra- Zeneca munu funda á næstu dögum vegna málsins. – atv ESB ýtir á eftir AstraZeneca AstraZeneca segjast ekki geta upp- fyllt samninga. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY 2 8 . J A N Ú A R 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.