Fréttablaðið - 28.01.2021, Qupperneq 15
Netapótek Lyavers
–Apótekið heim til þín
Kaupaukifylgir*
lyaver.is Suðurlandsbraut 22
Í Netapóteki Ly avers á lyaver.is
getur þú fundið þína lyfseðla, valið
samheitalyf og séð ly averðið þitt.
Mikið úrval af vítamínum og bætiefnum.
Lágt vöruverð og heimsending um land allt.
Gerðu verðsamanburð!
*Ef verslað er fyrir meira en 5.000 kr.
AF KÖGUNARHÓLI
Þorsteinn
Pálsson
Eftir samtöl forsætisráðherra í þrjú ár við formenn annarra f lokka stendur VG eitt að
f lutningi stjórnarskrárfrumvarps.
Forsætisráðherra fékk í byrjun
samstöðu um það verklag að ræða
afmörkuð svið stjórnarskrárinnar
og að f lutt yrðu sérstök frumvörp
um hvert og eitt þeirra. Jafnframt
var sagt að frumvörpin yrðu
annað hvort f lutt í sátt eða með
auknum meirihluta.
Þegar formaður Viðreisnar lýsti
yfir því á liðnu hausti að f lokkur
hennar gæti stutt þrjú af frum-
vörpunum fjórum, en ekki óvirkt
auðlindaákvæði, virðist VG hafa
brugðið á það ráð að breyta áður
umsömdu verklagi.
Þá var afráðið að hafna með-
f lutningi annarra f lokka og f lytja
breytingatillögurnar í einu frum-
varpi. Þingmönnum er þannig
stillt upp við vegg: Annað hvort
að samþykkja alla efnisþættina
eða engan.
Samstarfsf lokkar VG virðast
styðja frumvarpið en vilja ekki
eða fá ekki að f lytja það. Meðan
VG vill ekki heldur mynda meiri-
hluta um breytingarnar án annars
þeirra eða beggja, lítur þetta allt
út eins og leikaraskapur.
Hvers vegna?
Hvers vegna vill VG ekki fá með-
f lutningsmenn?
Hvers vegna notar VG þing-
skapatækni til að útiloka þá, sem
ekki geta stutt óvirka þjóðareign
auðlinda, frá því að styðja aðra
þætti tillagnanna?
Hvers vegna stendur VG ekki
við upphaf legt samkomulag um
að fjölþjóðasamvinna og úrslita-
vald kjósenda í þeim efnum verði
einn af efnisþáttum breyting-
anna?
Hvers vegna sniðgengur VG
víðtækt og vandað almennings-
samráð að mestu?
Hvers vegna lætur VG enda-
taf lið um sjálfa stjórnarskrána
líta út eins og refskák?
Geirnegla óvirka þjóðareign
Breytingatillögurnar um fram-
kvæmdavaldið og forsetann eru
hófsamar og til bóta. Afnám
Landsdóms er mikilvægt upp-
gjör við pólitíska misbeitingu.
Kaf larnir um íslenska tungu og
umhverfis- og náttúruvernd eru
þarfir og til ítrekunar á viðhorf-
um, sem almenn sátt er um.
Pólitíkin snýst fyrst og fremst
um auðlindaákvæðið. VG segir að
hugtakið þjóðareign komist nú í
stjórnarskrá. Það er rétt. Efnislega
er þetta bara sama ákvæðið og
staðið hefur í fyrstu grein fisk-
veiðistjórnarlaganna í þrjátíu ár.
Það breytir því engu.
Um sjálft hugtakið hefur aldrei
verið ágreiningur. Deilurnar hafa
staðið um inntak þess. Á það að
vera virkt eða óvirkt?
Í dag er nýtingarrétturinn
afturkallanlegur að formi til en
gildir í reynd í ótakmarkaðan
tíma. Lilja Rafney Magnúsdóttir
þingmaður VG hefur lýst því svo
að hann erfist til eilífðar.
Nú ætlar hún og VG að geir-
negla þessa óvirku þjóðareign í
stjórnarskrá.
Engar breytingar um fyrirsjáan-
lega framtíð
Fjórir stjórnarandstöðuf lokkar,
Samfylking, Viðreisn, Píratar
Virk eða óvirk þjóðareign
og Flokkur fólksins hafa á hinn
bóginn talið nauðsynlegt að
inntak ákvæðis um þjóðareign
í stjórnarskrá verði að fela í sér
gjaldtöku fyrir tímabundin afnot
auðlinda.
Í tillögu auðlindanefndar
Jóhannesar Nordals árið 2000
náðist sátt allra f lokka um slíkt
inntak þjóðareignarhugtaksins.
Sjálfstæðisf lokkurinn hljóp
fyrstur frá þeirri sátt. Stjórnlaga-
ráð endurspeglaði síðar grund-
vallarhugsunina í tillögu auð-
lindanefndarinnar.
Með því að festa óbreytt ástand
í stjórnarskrá stefnir VG að því að
viðhalda óvirkri þjóðareign auð-
linda um fyrirsjáanlega framtíð
andstætt sáttinni í auðlindanefnd
og gegn efnislegum stuðningi
þjóðarinnar við tillögu stjórn-
lagaráðs.
Síðasti möguleiki kjósenda
Atkvæðagreiðsla á Alþingi um
stjórnarskrárfrumvarpið verður
mánuði fyrir kosningar. Það
verður hins vegar ekki að stjórn-
skipunarlögum nema það hljóti
samþykki aftur eftir kosningar.
Þegar stjórnarskrárbreytingar
eru samþykktar á Alþingi í ágrein-
ingi verða þingkosningarnar að
þjóðaratkvæði um þær. Virk eða
óvirk þjóðareign á auðlindum
getur þannig orðið heitasta mál
kosninganna.
Með þessu frumvarpi gjör-
breytast líka gamlar víglínur.
Þannig blasir við að VG og Sam-
fylking verða á andstæðum pólum
í lokauppgjöri þjóðarinnar um
prinsippmál aldarinnar.
Þetta galopnar fyrir sókn Sam-
fylkingarinnar í fylgi VG og ætti
einnig að styrkja Viðreisn gagn-
vart jaðarfylgi Framsóknar og
Sjálfstæðisf lokks. Miðf lokkurinn
hefur ekki andmælt frumvarpinu
en þó varað við því að afgreiða
stjórnarskrá í ágreiningi.
Standi VG fast á sínu er ljóst að
þetta verður síðasti möguleiki
kjósenda til að hafa áhrif á það
hvort þjóðareign auðlinda verður
virk eða óvirk.
Með þessu frumvarpi gjör-
breytast líka gamlar víg-
línur. Þannig blasir við að
VG og Samfylking verða á
andstæðum pólum í loka-
uppgjöri þjóðarinnar um
prinsippmál aldarinnar.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15F I M M T U D A G U R 2 8 . J A N Ú A R 2 0 2 1