Fréttablaðið - 28.01.2021, Page 22

Fréttablaðið - 28.01.2021, Page 22
Mikilvægt er að ræna ekki starfs- mann vel unnu verkefni heldur fagna sigrinum með honum. Það er minn sigur að sjá fólk ná árangri í sínu starfi. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is LÍTTU VIÐ Á BELLADONNA.IS Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna ERUM AÐ TAKA UPP NÝJAR VÖRUR VOR 2021 Viðurkenningin kom sannar-lega á óvart. Fyrst hugsaði ég: „Af hverju ég?“ því það koma svo margar aðrar konur til greina, en svo hugsaði ég: „Af hverju ekki ég?““, segir María Fjóla Harðardóttir, forstjóri Hrafnistu. María Fjóla er handhafi FKA- viðurkenningarinnar sem er veitt fyrir vel unnin störf í þágu atvinnureksturs kvenna, eða þeim sem hafa verið konum í atvinnu- lífinu sérstök hvatning eða fyrir- mynd. Hún segir viðurkenninguna gefa sér aukið sjálfstraust í starfi forstjóra. „Í vinkvennahópnum heyrir maður stundum að konur séu oft haldnar einhvers konar full- komnunaráráttu og því tregari til að taka að sér verkefni nema að þekkja alla þætti þess aftur á bak og áfram, en svo áttar maður sig á að það er ekki nauðsynlegt og að við getum þetta alveg. Ég er því auðmjúk og þakklát fyrir viður- kenningu FKA og ekki síður fyrir stjórn Sjómannadagsráðs fyrir að hafa trú á mér. Ég hef oft dáðst að FKA því við konur þurfum að örva tengslanet okkar því það skilar tækifærum og góðu starfi. Ég er svo auðvitað ekki ein í mínu starfi, ég er heppin að hafa með mér sterkan, stóran og kraftmikinn hóp starfsfólks sem gengur í takt og brennur fyrir starfi sínu.“ Forstjóri sem er jafningi María Fjóla er fyrsta konan sem gegnir starfi forstjóra Hrafnistu- heimilanna, en frá árinu 2015 var hún framkvæmdastjóri heil- brigðissviðs Hrafnistu. „Hér áður fyrr hugsaði ég stundum með mér hvort ég gæti mögulega orðið forstjóri, en gerði mér þó aldrei í hugarlund að það yrði að veruleika. Það er mikilvægt að konur telji sér ekki trú um að bara karlar geti stýrt fyrirtækjum og stofnunum, við getum það líka, jafnvel þótt við kunnum ekki öll störfin um borð. Ég er meðvituð um að hafa afar hæft fólk með mér og ég veit að ég hef ekki sömu hæfileika og til dæmis fjármála- stjórinn, mannauðsstjórinn, rekstrarstjórinn, forstöðumenn eða aðrir stjórnendur Hrafnistu. Ég get hins vegar látið fólkið mitt fá úlpu, vettlinga og húfu til að stýra þessu í höfn með mér. Það er enda mikilvægt að treysta fólkinu sem maður starfar með og ég vona að ég hafi rutt svolitla braut til að fleiri konur sjái sér fært að starfa við stjórnvölinn, en því miður virðast færri konur en karlar fá að stíga upp sem stjórnendur. Ég get samt ekki sagt það um Hrafnistu þar sem konur eru í meirihluta í stjórnun, en mikilvægt er að viðhafa jafnvægi og ekki gott að hafa of fáa karlmenn heldur. Við þurfum að hjálpast að við að laga það. Konur eiga hiklaust að sækja í stjórnunarstörf en þau snúast um að velja með sér rétta fólkið; ekki að kunna allt sjálfar.“ Fær starfsfólk til að blómstra Sem stjórnandi segist María Fjóla líta á sig sem jafningja. „Ég trúi á þjónandi leiðsögn. Mitt hlutverk er að sjá til þess að þessi f lotti hópur geti unnið sín sértæku störf, með því að ryðja veginn með tólum og tækjum og hverju sem til þarf. Þar er ég. Ég trúi ekki á gagnsemi þess að stjórna yfir öxlina á fólki, heldur er mitt hlutverk að greina hæfni, áhuga og styrkleika og vera ekki að setja sérfræðing í verkefni sem hann hefur litla þekkingu á, eða áhuga, það er ekki sanngjarnt. Mitt hlutverk er einnig að skapa sýn með hópnum um hvert við viljum fara og halda stefnunni ásamt því að velja inn hæft fólk og gefa því vald, ábyrgð og traust til að vinna verkefnin. Mikilvægt er svo í fram- haldi að ræna ekki starfsmann vel unnu verkefni heldur fagna sigrinum með honum. Það er minn sigur að sjá fólk ná árangri í sínu starfi. Með því nærðu að virkja frumkvæðið og metnaðinn til að gera betur og fylgja eftir góðum hugmyndum. Þannig græða þeir sem þurfa á þjónustunni að halda en einnig fyrirtækið sjálft. Þetta er svo mikið „common sense“,“ segir María Fjóla. Hún hefur þá framtíðarsýn að skapa vinnuvænt umhverfi og jákvæðan, kraftmikinn vinnustað á Hrafnistuheimilunum. „Hrafnista er mjög góður vinnu- staður í dag en mig langar að gera enn betur. Markmiðið er ekkert óraunhæft að mínu mati en stjórn- völd verða þá líka að taka þátt; við viljum að íbúarnir fái þá þjónustu sem þeir þurfa og að starfsfólkinu líði vel, því ég veit að líði starfs- fólkinu illa getum við ekki veitt góða þjónustu. Ég legg mig fram við að skilja starfsemina og hlusta, þannig að ég geri ekki óraunhæfar kröfur til starfsfólksins. Ég legg áherslu á jafnvægi milli einka- lífs og vinnu, gott umhverfi og að störf þess séu metin. Þannig fær maður starfsfólk til blómstra og skila árangri. Mitt markmið er að fyrirtækið sigli áfram þó svo að eitthvað kæmi fyrir mig. Að mínu mati er það góður stjórnandi.“ Eiga skilið góða umönnun Sem forstjóri ætlar María Fjóla að halda áfram að berjast fyrir bættri þjónustu fyrir þá sem þurfa á sólarhringsþjónustu að halda og fyrir því að stjórnvöld tryggi fjármagn fyrir þeirri þjónustu sem ríkið óskar eftir að kaupa. Þannig sé staðan því miður ekki í dag. „Því ég veit að það er skakkt gefið, það eru gerðar meiri kröfur á þjónustu en er greitt fyrir og það er brýnt að leiðrétta það því sá sem líður fyrir það er sá sem þarf á þjónustunni að halda. Starfsfólkið líður fyrir að geta oft og tíðum ekki veitt þá þjónustu sem krafa er um. Við þurfum að koma þessu á rétt ról og finna jafnvægið. Þetta er kynslóðin sem er að afhenda okkur landið og hún á skilið að við hugsum vel um þau.“ Langar að gera enn betur María Fjóla Harðardóttir, forstjóri Hrafnistu, er handhafi FKA-viðurkenningarinnar 2021. Hún segir hana gefa sér aukið sjálfstraust í starfi forstjóra og að FKA veiti konum tengsl og tækifæri. María Fjóla vissi alltaf að hún vildi vinna við hjúkrun. Hún er fyrsti kvenkyns forstjóri Hrafnistu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Kannski er það að þakka vin-sælum sjónvarpsþætti þar sem taflborð kemur víða við sögu, eða kannski leitumst við öll eftir því að komast í návígi við aukinn stöðugleika á fordæma- lausum tímum. Köflótt er það sem koma skal, en tískupallarnir í Kína, Mílanó, Barcelona og víðar síðasta haust, sem segja til um vor og sumartískuna 2021, einkenndust af þessu kunnuglega mynstri og mátti sjá það í ýmsum útfærslum, hvort heldur er í jökkum, frökkum, peysum, prjónavestum, kjólum, pilsum, buxum og hvað eina. Þá er hið klassíska köflótta mynstur með svörtu og hvítu mjög móðins, en hönnuðir voru heldur ekki feimnir við að setja fram áhugaverðar og djarfar litasam- setningar með sterkum gulum, rauðum og bláum tónum. Rauðar og hvítar köflóttar flíkur í anda lautarferða voru þá einkar algengar. Mildari samsetningar með drapplituðu, kremlituðu, hvítu og brúnu voru þar að auki áberandi og munu líklegast verða vinsælli eftir því sem fram líður á sumarið og á hlýrri áfangastöðum. Klassískt og köflótt skal það vera Köflóttar flíkur voru áberandi á tískupöllunum í Mílanó í haust. Hér má sjá kápu og samfesting með mynstrinu góða, úr smiðju Daniela Gregis. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY. 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 8 . JA N ÚA R 2 0 2 1 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.