Fréttablaðið - 28.01.2021, Page 24

Fréttablaðið - 28.01.2021, Page 24
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Ný þáttaröð af lífsstíls-þáttunum Sir Arnar Gauti verður frumsýnd í kvöld klukkan 21.30 á sjónvarps- stöðinni Hringbraut. Efst í huga mínum er þakklæti fyrir áhorfið og viðtökurnar á líðandi hausti. Það var ótrúlega gaman að taka viðtöl við allt það skapandi og skemmtilega fólk sem við hittum og fengum að fylgjast með. Í þessu lífsstílsblaði sem fylgir Fréttablaðinu, Sir Arnar Gauti, fáum við að kynnast áhrifaríku og kraftmiklu fólki í máli og mynd- um ásamt öðru lífsstílstengdu efni. Meðal annars eru í blaðinu innlit á heimili sem gaman er að kynna fyrir lesendum. Inga Tinna gleymir ekki draumum sínum og framkvæmir þá með góðum árangri. Hún hefur nostrað við heimilið og mýktin svífur þar yfir ásamt vel völdum listaverkum. Anna Marta er ótrúlega kraft- mikil kona sem býr ásamt eigin- manni sínum, vöruhönnuðinum Ingólfi Erni Guðmundssyni, og börnum í Garðabæ. Heimilið er stórbrotið og húsið fallegt en það teiknaði Gunnar Hansson árið 1967. Arkitektaparið Rebekka og Ellert býr í fallegu Sigvaldahúsi í Kópavogi. Heimili þeirra er fágað og fallegt. Þau stofnuðu hönn- unarfyrirtækið Former sem hefur vakið verðskuldaða athygli. Vera er fyrsta vörulínan sem gefin var út af íslenska hönnunarstúdíóinu Former og er seld í einum bestu hönnunarverslunum Reykjavíkur. Við gerð lífsstílsblaðsins Sir Arnar Gauti skoðum við nýjar áherslur fyrir komandi vetur. Það var mat okkar að þær þyrfu að vera í stíl Sir Arnars Gauta. Við ákváðum að fara bresku leiðina í anda þess sem nafnið Sir Arnar Gauti gefur til kynna. Forsíðumyndina tók Pétur Fjeldsted við Laxnes í Mosfells- dal. Við vorum svo heppin að fá prinsessu Töru, dásamlega fallegan hund, með á myndina til að undirstrika þessa ímynd Sir Arnars Gauta sem hefur alltaf fallið fyrir f lestu bresku í hönnun eins og Barbour, Land Rover og f leiru. Fram undan er dýrmætur en vandasamur tími sem við ætlum að njóta og kynna fyrir lesendum áhugaverðar og skapandi per- sónur en það er alltaf markmið Sir Arnars Gauta, hvort sem það er fyrir lesendur Fréttablaðsins eða áhorfendur Hringbrautar. Gerum þetta saman, sagði ein- hver. Sir Arnar Gauti Nýir lífsstílsþættir Arnar Gauti heldur áfram að sýna áhorfendum falleg heimili á Hringbraut. Akademias er nýr skóli, staðsettur í Borgartúni 23. Skólinn er einn tæknilegasti skóli landsins. Þar er fjölbreytt nám í boði, meðal annars svokallað mini MBA, en auk þess býður skólinn upp á fjölbreytt úrval nám- skeiða. Ég tók að mér það verkefni að hanna endurbætur í skólanum. Það magnaðasta við verkefnið út frá hönnun og framkvæmdum er að eigendur skólans, Guðmundur Arnar og Eyþór, skrifuðu undir leigusamning á húsnæðinu eftir töluverða leit kl. 11.00 á miðviku- degi og verktakinn, Bestverk, var kominn í framkvæmdir klukku- tíma síðar. Skólinn var fullgerður á sjö dögum og átti ég ótrúlega gott samstarf við Björgvin, verktakann minn. Húsnæðið var eins og tómur rammi fyrir mig til að vinna með. Það var ekki mikið niðurrif og gekk fljótt að hefjast handa við að leggja gólfefni, sem var grásprengt vínylparket frá Húsasmiðjunni. Að því loknu var málað og hugmyndir vöknuðu. Aðalhugsunin við hönnun skólans var að gera hann klassískan í útliti en með tvisti, þannig að upp- lifunin yrði að hann tæki utan um nemendur á hlýjan hátt, auk þess að hafa svo stællegt útlit sem myndi lifa með skólanum í nokkur ár. Guðmundur og Eyþór vildu skapa afslappaða stemningu við skólann. Við ákváðum að setja upp lítið kaffihús og stúka það af með léttum vegg sem við klæddum með hljóðeinangrandi plötum sem eru ótrúlega klassískar og fallegar. Pælingin var að þegar nemendur kæmu í tíma gætu þeir safnast saman fyrir tímann með öll helstu blöðin, fengið sér gott Nespressokaffi og spjallað. Þetta rými er einnig vinsælt í kaffihléum á námskeiðum. Í raun eru hópar með svipað áhugasvið sem sækja þennan skóla en góð tækifæri til að stofna góð tengslanet. Ég elska að vinna með Nespresso og fjárfestu þeir Akademias bræður í stórri vél sem getur keyrt sem flesta kaffibolla á sem stystum tíma til þess að flestir geti notið þess að fá sér gott kaffi í pásum á milli tíma. Þá er fatahengi og bar- Klassísk hönnun Akademias skólinn var hannaður með það fyrir augum að húsnæðið henti vel nemendum og kennurum. Skólinn á að vera góður staður fyrir nemendur. Hægt er að setjast niður með kaffi og mynda gott tengslanet. Það tók aðeins sjö daga að breyta húsnæð- inu og gera það vistlegt fyrir nemendur. borð með stólum, þar sem hægt er að njóta þess að horfa á stórfeng- legt útsýnið og taka spjall saman. Ég nota alltaf grænt í hönnun minni, en það gerir ótrúlega mikið fyrir rými og skapar notalega stemningu. Síðan er bara spurning hvernig ég útfæri það. Í þessu tilviki nota ég blómamottur sem ég kaupi í Blómavali og ramma þær inn í fal- lega sérsmíðaða tréramma ásamt lifandi, háum plöntum á gólfi. Við barborðin ákváðum við, út frá því ótrúlega magni af persónu- legum bókum sem þeir Akademias bræður Guðmundur og Eyþór hafa lesið, að setja upp lítið bókasafns- horn. Ég sótti sjálfur námslínu í skólan- um og sat þar til að fá upplifunina og velta fyrir mér hvort það væri eitthvað sem betur mætti fara. Ég verð að segja að námskeiðið var „mind blowing“ og skemmtilegt að sjá hvernig þeir Akademias bræður setja upp öll sín námskeið. Gæðin voru stórfengileg! Námskeiðið sem ég sat heitir „Leiðtogi í upplifunar- hönnun“. Fyrirlesarar voru allt frá því að vera Páll Óskar í snilling eins og Sigurjón Sighvatsson. Að kynnast samnemendum mínum og mynda tengslanet til framtíðar var ómetanlegt. 2 KYNNINGARBLAÐ 2 8 . JA N ÚA R 2 0 2 1 F I M MT U DAG U RSIR ARNAR GAUTI - LÍFSSTÍLSBLAÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.