Fréttablaðið - 28.01.2021, Page 36

Fréttablaðið - 28.01.2021, Page 36
Fida Abu Libdeh, stofnandi og framkvæmdastjóri GeoSilica, hlaut í gær Hvatningarviður­ kenningu FKA árið 2021 fyrir athyglisvert frumkvæði í atvinnu­ lífinu. Fida segir að viðurkenn­ ingin hafi komið skemmtilega á óvart og það sé gaman að vera fyrirmynd og til hvatningar fyrir aðrar konur. Fida stofnaði fyrirtækið Geo­ Silica árið 2012 út frá lokaverkefni sínu í orku­ og umhverfistækni­ fræði. „Í námi mínu lagði ég áherslu á sjálf bæra orkugjafa svo sem jarðvarma og f leira og í lokaverk­ efninu skoðaði ég möguleikana á nýtingu á affallsvatnsins sem fellur til við jarðvarmavirkjanir,“ segir Fida. „Eftir að ég skilaði ákvað ég svo að stofna fyrirtæki og fór svo f ljótlega í MBA­nám í Háskólanum í Reykjavík til að læra að reka fyrirtæki. Við fundum upp á aðferð til að taka verðmæt steinefni úr vatninu og erum að framleiða fæðu­ bótarefni úr þeim,“ segir Fida. „Aðalhráefnið er silica, eða kísill, en hann er ætlaður til inntöku og við erum með fimm vörur á markaði sem innihalda kísil sem aðalsteinefnið, en vörurnar inni­ halda einnig ýmis önnur gagnleg steinefni og vítamín. Við sjáum algerlega um framleiðsluna á hrá­ efni og erlenda markaðssetningu. Það tók okkur þrjú ár að þróa framleiðsluaðferðina sem er einkaleyfishæf,“ segir Fida. „Eftir það tók við vöruþróun þar sem lögð var áhersla á að búa til náttúrulegar vörur sem uppfylla þarfir markaðarins. Svo höfum við sinnt markaðssetningu og hægt og rólega hefur fyrirtækið vaxið og dafnað.“ Áhugasöm um sjálfbærni „Ég hef rosalega mikinn áhuga á að nýta allt í kringum mig. Hér á Íslandi notum við heitt vatn til að hita híbýli og framleiða rafmagn, en svo búið, en ég hef mestan áhuga á að nýta allt sem fellur til frá náttúruauðlindum og búa til eitthvað nýtt úr því,“ segir Fida. „Ég hef mjög mikinn áhuga á sjálf­ bærni í öllu. Hún snýst ekki bara um að f lokka rusl, ég legg áherslu á hana í öllu sem ég geri, sendi starfsfólkið mitt í endurmenntun og finna sjálf bærar leiðir til að koma vörum á markað og skapa sem mesta vinnu og sem f lest tækifæri.“ Fida segir að viðurkenningin hafi komið henni á óvart. „Svona nokkuð kemur manni alltaf á óvart, því maður veit ekki hver er að fylgjast með manni, en það er greinilegt að einhver hefur verið að fylgjast með því sem ég hef verið að gera,“ segir hún. „Það voru margar konur til­ nefndar, svo það er mikill heiður að fá þessa viðurkenningu og hún hefur rosa mikla þýðingu fyrir mig. Sérstaklega sem kona af erlendum uppruna í orku­ og umhverfistæknifræði,“ segir Fida. „Ég er stolt af árangrinum og þakklát og ánægð með að geta verið fyrirmynd fyrir aðrar konur og hvatt þær áfram. Það skiptir miklu máli fyrir framtíðina að ungar konur hafi góðar fyrir­ myndir.“ Fida hefur tekið þátt í starfi FKA af krafti og í tvö ár var hún í stjórn nýsköpunardeildar FKA. Hún segir að það hafi verið frá­ bært að kynnast þessum f lottu konum. „Maður fær kraft frá þeim og þetta er bæði skemmtilegur og hvetjandi félagsskapur,“ segir hún. „Það er staðreynd að konur fá færri tækifæri á markaði, í fjöl­ miðlum, nýsköpun og fjármögn­ un og þess vegna þurfum við að standa saman og vera áberandi og þá er auðvitað betra að vera f leiri saman. Það skiptir rosalega miklu máli að allir fái jöfn tækifæri á markaði.“ Ánægð með að vera fyrirmynd Fida Abu Libdeh hlaut í gær Hvatningarviðurkenningu FKA. Hún stofnaði fyrirtækið GeoSilica út frá lokaverkefni sínu í orku- og umhverfistæknifræði og leggur ríka áherslu á sjálfbærni í öllu. Bryndís opnaði verslunina árið 1974 og hefur hún því starfað í bráðum 47 ár. Bryndís er brautryðjandi í rekstri tískuverslana á landsbyggðinni. Á þeim tíma sem hún opnaði Lindina var lítið um sérvöruversl­ anir úti á landi að sögn Bryndísar. Lindin hlaut strax mjög góðar móttökur og sem dæmi nefnir Bryndís að aðeins fimm vikum eftir opnunina þurfti hún að fara aftur til útlanda til að fylla á lagerinn. „Á þessum tíma þóttu mikil nýmæli að opna tískuverslun úti á landi. Þar voru starfandi kaup­ félög og það þótti bara nóg. Það voru kannski einhverjar vefn­ aðarvöruverslanir og garnversl­ anir þannig að fólk gat bjargað sér, saumað og prjónað á fjölskyldu­ meðlimi, en það gat ekki farið út í búð að kaupa tískufatnað. Þetta voru svo ólíkir tímar,“ segir Bryn­ dís sem lét af störfum í verslun­ inni árið 1989 en dóttir hennar sér um reksturinn í dag. Bryndís segir að hún hafi farið sjálf út að velja vörur í búðina en einnig hafi hún keypt inn eitthvað af íslenskri framleiðslu. „Ég versl­ aði til dæmis við JMJ á Akureyri. Ég keypti af þeim herrafatnað á þeim tíma sem herrafatnaður var til sölu í búðinni. JMJ var íslensk framleiðsla. Það voru líka verk­ smiðjur í Reykjavík sem saumuðu buxur en annað keypti ég að utan að stórum hluta,“ útskýrir hún. Verslunin er enn í fullum blóma en Bryndís segist hafa orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa haft trygga viðskiptavini í gegnum tíðina. „Það hefur engin verslun opna í svona mörg ár nema hafa við­ skiptavini,“ segir hún. „Við höfum reynt að þjónusta okkar fólk vel og með aukinni umferð um Suðurland og mikilli uppbyggingu í landshlutanum þá hefur þetta gengið. Fólksfjölgunin hér á Selfossi frá því búðin var opnuð hefur verið gríðarleg.“ Bryndís segir að viðurkenning­ in hafi komið henni mjög á óvart en henni er þakklæti efst í huga. „Ég varð bara orðlaus þegar ég frétti af þessu, sérstaklega þegar ég áttaði mig á hvaða konur hafa verið á þessum lista,“ segir hún. Aðspurð hvaða þýðingu viður­ kenningin hafi fyrir hana segir Bryndís að hún voni að viður­ kenningar sem þessi verði til þess að hvetja ungar konur til dáða. „FKA vekur athygli landsmanna á þátttöku kvenna í atvinnulífinu. Það vona ég að verði til þess að ungar konur sem hafa tækifæri og löngun til að gera eitthvað stórkostlegt láti verða af því. Ungar vel menntaðar konur í dag, heimurinn bíður bara eftir þeim. Það er allt hægt að gera í dag, tækifærin eru alls staðar ef áhug­ inn og getan eru fyrir hendi.“ Tækifærin eru alls staðar Bryndís Brynjólfsdóttir, eigandi tískuvöruverslunarinnar Lindarinnar á Selfossi, hlaut í gær Þakkar- viðurkenningu FKA 2020 sem er veitt konu fyrir eftirtektarvert ævistarf stjórnanda í atvinnulífinu. Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is Fida Abu Libdeh, stofnandi og framkvæmdastjóri GeoSilica, segir að viður- kenningin hafi komið henni skemmtilega á óvart. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTONBRINK Ég er stolt af árangrinum og þakklát og ánægð með að geta verið fyrirmynd fyrir aðrar konur og hvatt þær áfram. Það skiptir miklu máli fyrir framtíðina að ungar konur hafi góðar fyrir- myndir. Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@frettabladid.is Bryndís vonar að viðurkenningin hvetjI ungar konur til dáða og að þær sem vilji gera eitthvað stórkostlegt láti verða af því. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Ungar vel mennt- aðar konur í dag, heimurinn bíður bara eftir þeim. Það er allt hægt að gera í dag, tæki- færin eru alls staðar ef áhuginn og getan eru fyrir hendi. 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 8 . JA N ÚA R 2 0 2 1 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.