Fréttablaðið - 28.01.2021, Blaðsíða 42
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
Edda M. Hjaltested
Hraunbrún 51, Hafnarfirði,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði
þ. 17. janúar sl.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
þriðjudaginn 2. febrúar kl. 13. Í ljósi aðstæðna verða
aðeins nánustu ættingjar og vinir viðstaddir.
Athöfninni verður streymt. Hlekk á streymi má nálgast á
mbl.is/andlat
Sveinn Þráinn Jóhannesson
Magnús Þór Sveinsson Jórunn Guðmundsdóttir
Arnar Sveinsson Sveindís Anna
Jóhannsdóttir
Guðm. Ingvar Sveinsson Brynhildur Hauksdóttir
Sunna Sveinsdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum
þeim sem sýndu okkur samúð, vináttu
og hlýhug við andlát okkar ástkæra
eiginmanns, föður, tengdaföður,
afa og sonar,
Þórðar Hauks Ásgeirssonar
Árbraut 10, Blönduósi,
sem lést á krabbameinsdeild Landspítalans
sunnudaginn 10. janúar.
Þorbjörg Kristín Jónsdóttir
Ásgeir Hauksson Þorbjörg Sveinsdóttir
Þórdís Hauksdóttir Gunnar Tryggvi Halldórsson
Guðrún E. Hartmannsdóttir Alexander Freyr Tamimi
Stefán Haukur Ásgeirsson Halldór Smári Gunnarsson
Torfi Sveinn Ásgeirsson Elísabet Kristín Gunnarsdóttir
Skírnir Eldjárn Gunnarsson Haukur Eldjárn Gunnarsson
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð,
kveðjur og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
systur og ömmu,
Dóru Lydíu Haraldsdóttur
Geitlandi 3, Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
Arinbjörn Árnason Joanne Árnason
Pálína Árnadóttir
Margrét Árnadóttir Þórður Mar Sigurðsson
Haraldur Haraldsson
Páll Haraldsson
Aron James og Joshua Ben
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Haraldur Guðnason
Hörðalandi 14,
lést á líknardeild Landspítalans
sunnudaginn 17. janúar 2021.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju,
mánudaginn 1. febrúar 2021, klukkan 13. Í ljósi aðstæðna
verða eingöngu nánustu ættingjar og vinir viðstaddir
útförina. Útförinni verður streymt og nálgast má streymið
á slóðinni: facebook.com/groups/1632622050243809
Ragnhildur Guðrún Pálsdóttir
Páll Haraldsson Björg Sigurðardóttir
Gunnar Haraldsson Kristín Ögmundsdóttir
barnabörn og langafabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
María Áslaug
Guðmundsdóttir
Hvassaleiti 58 í Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli í
Reykjavík þann 22. janúar.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn
4. febrúar klukkan 15. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu
takmarkast fjöldi í kirkjunni við 100 manns og eru
ættingjar og nánir vinir velkomnir á meðan húsrúm
leyfir. Streymt verður frá athöfninni á slóð sem birtist í
vefútgáfum og Facebook-síðum aðstandenda.
Áslaug Haraldsdóttir Stefán Haraldsson
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát elskulegs föður,
afa og langafa okkar,
Guðmundar Valdimarssonar
Stangarholti 9, Reykjavík,
sem lést 16. janúar sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar
2E á Sóltúni.
Rut Guðmundsdóttir,
afabörn og langafabörn.
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Hilmar Kristinn Adolfsson
bifreiðasmiður frá Patreksfirði,
Boðaþingi 5, Kópavogi,
lést á heimili sínu Boðaþingi 5 þann
22. janúar. Útförin fer fram þann 1. febrúar
kl. 13.00 frá Lindakirkju. Í ljósi aðstæðna verða aðeins
nánustu ættingjar og vinir viðstaddir. Streymt verður frá
athöfninni á slóðinni: beint.is/streymi/hiddidolla
Hjartans þakkir fær starfsfólk á hjúkrunarheimilinu
Boðaþingi fyrir alúð og hlýju.
Anna Björg Hilmarsdóttir Páll Skúlason
Berglind Hulda Hilmarsdóttir Kristinn S. Gunnarsson
Haukur Hilmarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Sigurlína Helgadóttir
Geiteyjarströnd 2, Mývatnssveit,
lést þann 12. janúar síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Reykjahlíðarkirkju
laugardaginn 30. janúar kl. 14.
Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu er
takmörkun á fjölda kirkjugesta.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir
en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Fuglasafn
Sigurgeirs Stefánssonar í Neslöndum.
Helgi Aðalsteinn Þorsteinsson
Guðrún Sigríður Þorsteinsdóttir
Karl Sigþór Þorsteinsson
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýhug við
andlát og útför ástkærs föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Kristjáns Þorlákssonar
frá Veiðileysu,
sem andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði
10. janúar. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Bylgjuhrauni á
Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Gunnar Kristjánsson María Guðmundsdóttir Gígja
Ólafur Bjarnason Jóhanna Norlund
barnabörn og barnabarnabörn.
Allt verður í lágum gír út af COVID, annars er ég veisluglöð kona,“ segir Þórhildur Líndal lög-fræðingur, um viðbúnað vegna sjötugsafmælis
hennar í dag. „En þetta er afmælisár
og þess vegna hægt að gera eitthvað
skemmtilegt í hverjum mánuði. Mér
finnst dýrmætt að lifa lífinu lifandi og
njóta þess með fjölskyldu og vinum.“
Þórhildur heitir svo eftir föðurömmu
en kveðst ekki hafa verið sérlega ánægð
með nafnið á yngri árum. „Pabbi, Páll
Líndal, spurði hvort ég hefði heldur
viljað heita Bóthildur því Þórhildar-
nafnið væri sett saman úr nöfnum ætt-
menna okkar, Þórðar og Bóthildar. Nei,
þá fannst mér Þórhildur skárra! Líndal
er úr Húnavatnssýslu, forfaðir minn,
Björn Líndal Jóhannesson, tók það upp
sem ættarnafn, hann var frá Sporði í
Línakradal.“ Lögspeki er Þórhildi í blóð
borin og eiginmaðurinn, Eiríkur Tóm-
asson, þrír synir þeirra og tvær tengda-
dætur hafa náð í slíka afleggjara líka.
Fyrst man Þórhildur eftir sér á Berg-
staðastræti 69. „Við f luttum svo á Laug-
arásveg og ég fór í Langholtsskóla.“ Hún
minnist fjölskyldustunda á síðkvöldum
þar sem allir hlustuðu á spennandi
leikrit og skemmtiþætti Svavars Gests
í útvarpinu. „Ég átti plötuspilara sem
unglingur og keypti mér bítlaplötur um
leið og þær komu. Ég spila þessa tónlist
fyrir barnabörnin og þeim finnst hún
f lott. En ég ólst líka upp við að hlusta á
Kurt Weill, Mario Lanza og óperettur og
er óperuaðdáandi.“
Þórhildur hefur starfað hjá Borgar-
dómi, í tveimur ráðuneytum, við
kennslu í HÍ og sem forstöðumaður
Rannsóknastofu sem kennd er við
Ármann Snævarr.
Þekktust er hún sem fyrsti umboðs-
maður barna hér á landi, frá 1995 til
2005. „Eitt af mínum fyrstu verkum
var að fara í grunnskóla um allt land
að heyra raddir umbjóðenda minna,
barnanna og hvað á þeim brynni. Það
skilaði mörgum ábendingum til emb-
ættisins. Baráttan fyrir mannréttindum
barna var hafin og ekki aftur snúið.“
gun@frettabladid.is
Er lögspekin í blóð borin
Þórhildur Líndal lögfræðingur hefur víða látið muna um sig, ekki síst sem umboðs-
maður barna. En opinber störf eru að baki enda segja kirkjubækur hana sjötuga í dag.
„Eldmóðurinn var til staðar,“ segir Þórhildur þegar hún minnist starfs síns fyrir börnin. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
2 8 . J A N Ú A R 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R22 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT