Víðförli - 15.12.1987, Side 10

Víðförli - 15.12.1987, Side 10
Kirkjuþingsmenn 1987 í Bústaðakirkju. Forsetiþingsinssr. Sigurður Guðmundsson er fyrir miðju. Af kirkjuþingi Hið 18. kirkjuþing íslensku þjóðkirkjunnar var haldið í Bú- staðarkirkju 6.—15. október 1987. Alls voru 28 mál lögð fyrir þingið. Allir kjörnir þingmenn sátu þetta þing, sem settur biskup ís- lands, séra Sigurður Guðmundsson stýrði. Varaforsetar þingsins voru kjörnir þeir sr. Jón Einarsson prófastur í Saurbæ og Gunn- laugur Finnsson kaupfélagsstjóri á Hvilft í Önundarfirði. Gerðir kirkjuþings 1987 verða fáanlegar á Biskupsstofu innan tíðar. Auk þess hefur nokkuð ítarleg umfjöllun um mál þingsins birst í fjölmiðlum. En hver hinna 28 mála þingsins voru mikilvægust? Víðförli leitaði til fjögurra þingmanna, hver úr sínum landsfjórðungi og fara svör þeirra hér á eftir. Sr. Jón Bjarman. Sr. Jón Bjarman, Kópavogi, situr sitt fimmta Kirkjuþing sem fulltrúi presta í sérþjónustu: „Frumvörpin um sóknargjald og kirkjugarðsgjald eru stórmál þessa Kirkjuþings og munu valda skilum í starfi kirkjunnar. Nú mun kirkjan hafa fastan tekjustofn og einföldun í innheimtu er og mikils virði. Hins vegar gæti þetta fyrirkomulag rýrt frumkvæði og sjálfstæði sóknar- nefndanna, því að algjört forræði þeirra um ákvörðun sóknargjalda er nú orðið að fastri skipan. Stofnun Jöfnunarsjóðs sókna sem felst i frumvarpinu er markverð- ur áfangi. Með honum fær Kirkju- ráð miklu meiri möguleika til þess að efla og styðja kirkjulegt starf í sókn- um um landið allt. Önnur mál sem fram komu eru lík því sem áður hefur verið fjallað um og mér finnst nokkuð áberandi að þingsályktanir sem beint er til Kirkjuráðs til framkvæmda eru fleiri en áður. Kirkjuþingsmenn hafa í minnkandi mæli beint frumkvæði til umbreytingar á lögum. Það eru gerð- ar æ meiri kröfur til ráðherra og Kirkjuráðs. Mér finst stundum vinnubrögðin ekki nógu markviss, þingmenn fría sig að taka afstöðu og mæta álagi. Það er athyglisvert að þingið skoðar ekki sinn eigin kostnað og væri þess virði að spyrja hvort nýta mætti betur það fé. Það er hluti af sjálfstæðisbaráttu kirkjunnar að hafa betri reiðu á eigin fjármálum.“ 10 — VÍÐFÖRLI

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.