Víðförli - 15.06.1988, Síða 6

Víðförli - 15.06.1988, Síða 6
Eru ekkjur fimmta flokks þegnar? Áhrifa kirkjunnar á stofnun og slit hjúskapar gætti furðu lítið lengi framan af og má nokkuð af því ráða að hjúskapar er að engu getið í Kristnirétti hinum forna frá 1123. Þegar líða tók á 13. öldina gerði kirkjan í æ ríkara mæli tilkall til yfir- ráða á vettvangi andlegra mála, sem svo voru nefnd, en þeirra á meðal voru hjúskaparmál, sem sjá má af því að í Kristnirétti Árna biskups Þorlákssonar frá 1275 má finna ítar- leg ákvæði um stofnun og slit hjú- skapar». Kirkjan hefur í gegnum aldirnar viljað veg hjónabandsins sem mest- an og leynt og Ijóst hvatt og stuðlað að því að löggerningur hjónavígsl- unnar væri sá rammi sem innsiglaði sambúð karls og konu og legði grundvöll að farsælu fjölskyldulífi, en fjölskyldan hefur löngum verið talin einn af máttarstólpum þjóð- félagsins. Hjónabandið sem stofnun hefur því snemma öðlast ákveðna stöðu innan samfélagsins, n.k. ríki í ríkinu stutt af kirkju og ríki. Þar af leiðandi hafa einstaklingarnir fengið við stofnun hjúskapar nýja þjóðfélags- stöðu og nýja sjálfsmynd. Sú menningarlega þróun sem hefur gert hjónabandið að svo mikil- vægum þætti innan samfélgsins, hefur þó gert fátt til að tryggja ein- staklingnum eftir að hjónaband hans hefur leyst upp fjárhagslegt, félagslegt og tilfinningalegt öryggi — sem er ætlunarverk hjónabands- ins. Hvað gerist við lok hjóna- bands? Hjónabönd líða undir lok eins og aðrar mannlegar stofnanir — hvort sem þar er sjálfur dauðinn að verki eða önnur óviðráðanleg öfl. Furðu hljótt hefur verið um málefni ein- staklingsins þegar svo er komið — hvernig hann bregst við á örlaga stundu í lífi sínu og hvernig honum Höfundur og eitt ömmubarnið. farnast í samfélaginu. Má ætla að fáar aðstæður gefist betri sem rann- sóknarefni fyrir þá aðila sem láta sig líf mannsins og samfélagið varða en staða einstaklings við hjúskaparslit. Þegar hann stendur frammi fyrir e.t.v. gjörbyltingu allra sinna lífs- hátta, upplausn heimilis og fjöl- skyldu, fjárhagsvanda, missi vina og félagslegra tengsla og á yfir höfði sér stimplun og tilfinninga- og félags- lega einangrun. Biblíunni verður tiðrætt um ekkjuna í samfélaginu. Úr textum hennar má ráða í þjóðfélagslega uppbyggingu þess tíma sem þeir eru sprottnir úr. Ekkjan, munaðar- leysinginn og útlendingurinn (þ.e. hinn landlausi) eru hið sígilda þrí- stirni fátæklinga, sem gengur sem rauður þráður í gegnum hina helgu bók. Hvernig er staða ekkjunnar í velferðarþjóðfélagi nútímans? Dr. Colin Murray Parkes forstjóri Cruse bresku samtakanna uih sorg og sorgarviðbrögð hefur staðið að fjölda rannsókna í Bretlandi og Bandaríkjunum og ritað bækur um sorg og sorgarviðbrögð. Umfangs- miklar kannanir hafa verið gerðar á makamissi og afleiðingum hans á eftirlifandi maka, bæði heilsufars- legar, félagslegar og tilfinningalegar. Lokaritgerð mín s.l. vor fjallaði um þetta efni og kynnti ég mér sér- staklega niðurstöður úr þessum rannsóknum. Missir ástvinar hefur fleira í för með sér en sjálft álagið sem fylgir dauðsfallinu. C.M.Parkes hefur þetta að segja um missi ekkjunnar. Lát eiginmanns felur í sér missi sem nær til bæði tilfinninga- legra og félagslegra þátta2>. í kjölfar makamissis og sorgar kemur annars konar missir, sem ekkjan þarf að horfast í augu við. Tekjumissir er í flestum tilfellum óhjákvæmilegur og hefur í för með sér umtalsverðar breytingar á högum ekkjunnar. Hún neyðist því oft til.að selja hús sitt eða íbúð. (í íslensku samfélagi er það algengt, vegna krafna barna um föðurarf). Umhverfisbreyting er því algeng. 6 — VÍÐFÖRLI

x

Víðförli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.