Víðförli - 15.06.1988, Síða 15

Víðförli - 15.06.1988, Síða 15
Sr. Torfi K. Stefánsson Hjaltalín Fermingarstarfaköimumn Kynning á „Hann varðveiti þig“, könnun á fermingarstörfum og við- horfum fermingarfræðara á vegum fermingarstarfanefndar þj óðkirkj - unnar. Samantekt og úrvinnsla í höndum dr. Péturs Péturssonar. Inngangur. Markmiðið með þessari könnun var að afla upplýsinga um stöðu fermingarmála innan þjóðkirkjunn- ar. Vitað var fyrir að staða ferming- arinnar er enn mjög sterk hér á landi miðað við það sem gerist og gengur á hinum Norðurlöndunum (97% barna fermist hér en frá 70-92% hjá frændum okkar. Flest fermast hjá Finnum en fæst hjá Svium). Ekki er fyrirsjáanlegt að nein breyting verði á þessu á næstunni hér á Iandi, því að félagsleg staða fermingarhefðarinn- ar er mjög sterk. Markmið þessarar könnunar var að rannsaka sjálfa framkvæmd fermingarfræðslunnar og leita eftir því hvar menn teldu úrbóta þörf. Á niðurstöðum hennar er síðan fyrir- hugað að gera nýja námsskrá og nýtt kver til fermingarfræðslu. Ég mun hér að neðan gera grein fyrir helstu niðurstöðum og legg þar inn mínar athugasemdir til að forð- ast þurra upptalningu. Fylgt er upp- byggingu bókarinnar. Tekið skal fram að hér verður ekki rædd sú guð- fræðilega afstaða sem dr. Pétur Pétursson hefur til fermingarfræðsl- unnar, enda er hún ekki byggð á niðurstöðum sjálfrar könnunarinn- ar. Höfundurinn tekur sjálfur fram í inngangi, að ekki verði hjá því komist að „sá sem vinnur úr svör- unum, flokkar þau, greinir og túlkar styðjist við sína eigin viðmiðunar- ramma“. Ytri umgjörð fermingar- starfanna. Að loknum inngangskafla þar sem greint er frá aðdraganda þessa verks og vinnutilhögun, er fjallað um tímafjölda þann sem ætlaður er i uppfræðsluna, fræðslustað (kirkju, safnaðarheimili, skóla), þátttöku og mætingu barna (í guðs- þjónusturnar). Ljóst er af þeim lestri að mikil þörf er á lágmarks námsskrá fyrir fermingarundirbúninginn, þ.e. hvað varðar tímafjölda fræðslutíma, því ekki er farið eftir námsskránni sem samþykkt var á Prestastefnu 1965 og ítrekuð á Kirkjuþingi 1972. Þar er skýrt tekið fram að tímafjöldi fyrir fermingu eigi að vera minnst 30-40 stundir (1967) eða í það minnsta 30 stundir (1972). Samkvæmt könnuninni er algeng- asti tímafjöldinn frá 23-34 tímum (hjá 60% fræðaranna) en 52% fræð- aranna hafa færri en 30 tíma með fermingarbörnunum. Fræðslutímar sem hvert barn fékk vorið 1987 eftir fræðurum Tímar fjöldi fræðara % 17-22 16 15 23-28 40 37 29-33 25 23 34 og fleiri 26 24 Til samanburðar má geta þess að í Svíþjóð og Danmörku er gert ráð fyrir 60 kennslustundum (oftast 30 tvöfaldir tímar), í Noregi minnst 45 samverustundum (sem flestar ættu helst að vera tvöfaldar að áliti nám- skrármanna) og í Finnlandi 80 kennslustundir. Ljóst er því að íslenskir fræðarar hafa það mun náðugra en kollegar þeirra á hinum Norðurlöndunum. Hinsvegar liggur fyrir vilji þeirra til að taka á sig rögg því að í könn- uninni kemur fram að 77% fræðar- anna vill að ákveðinn sé lágmarks- tímafjöldi fermingarundirbúnings og hve mikið námsefni skuli tekið fyrir (s. 74). Dr. Pétur leggur því til að fermingarundirbúningstímum yrði fjölgað í 50-60 stundir með hlið- sjón af því sem viðgengst á hinum Norðurlöndunum (s. 86). Tengsl kirkju og fermingar- fræðslu. Athygli vekur ennfremur hve lítil tengsl virðast þar á milli. Einungis hjá 28% fræðaranna er kirkjusókn- in skylda og ekki eru til neinar lág- marks reglur um hve oft sé skylda að mæta. Þó eru 65% þeirra ánægðir með mætingu fermingarbarnanna en ekki er ljóst af spurningunni hvort átt sé við mætingu í fræðslu- tímana eða í guðsþjónusturnar. í Danmörku er það aftur á móti sett sem skilyrði fyrir fermingu að ungmennin séu handgengin guðs- þjónustunnl. í konunglegri tilskipun frá árinu 1968 er tekið fram að það sé hluti af fermingarundirbúningn- um að börn mæti reglulega í guðs- þjónustur safnaðarins. Þar í landi er guðsþjónustan jafn mikilvæg sjálfri uppfræðslunni. Ofangreind staða mála hér á landi gefur vísbendingu um að ein mikil- vægasta hlið fræðslunnar sé van- rækt, þ.e. sú að tengja fræðsluna helgihaldinu, tilbeiðslunni og þjón- ustunni (s. 11). Úr þessu má bæta með löggjöf um lágmarks kirkju- sókn. Hægt er að fara að dæmi Norðmanna með því að hafa minnst 8 skyldutíma allan veturinn og getur slíkt ekki talist mikið. Hér er undir- VÍÐFÖRLI — 15

x

Víðförli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.