Víðförli - 15.06.1988, Qupperneq 22

Víðförli - 15.06.1988, Qupperneq 22
Fra norrœnu œskulýðsstarfi: Við erum á réttri leið Höfundur til vinstri ásamt kollegum frá Noregi og Finnlandi í dönsku umhverfi. Sjö manna hópur frá íslandi á aldrinum 17-36 ára lagði land undir fót í lok maí og hélt á ráðstefnu til Suður-Jótlands. Ráðstefnan hófst á brautarstöðinni í Kaupmannahöfn því kjörið var að nota tímann í lest- inni til að hrista þátttakendur saman og tókst það með ágætum. Öll höfðum við það sameiginlegt að starfa að æskulýðsmálum í kirkju heimalanda okkar og var þessi ráð- stefna einmitt haldin fyrir æskulýðs- leiðtoga í kirkjulegu starfi. Allar norrænu kirkjurnar starfa að æskulýðsmálum en bæði mark- mið og leiðir virðast vera mismun- andi en þó virðist fara saman félags- leg og trúarleg markmið hjá flestum. í mínum augum var áberandi hversu skátastarf er algengt í kirkjulegu starfi bæði í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Eðlileg afleiðing af því er mikil áhersla á útijíf og þjálfun í að bjarga sér við frumstæð skilyrði. Þennan þátt þekkjum við ekki í æskulýðsstarfinu hérlendis þó svo að ferðalög og mót séu algeng. Ekkert formlegt æskulýðs- starf dönsku kirkjunnar sjálfrar. Danir héldu þetta mót og sam- kvæmt hefð í þessu samstarfi fengum við ítarlega fyrirlestra um sögu gestgjafanna og kirkjulíf þeirra. Það sem vakti undrun var að danska kirkjan rekur sjálf ekkert eiginlegt æskulýðsstarf heldur er það rekið af nokkrum félaga- samtökum sem vissulega eru í tengslum við kirkjuna. Okkur skild- ist þó að tengsl hverrar starfseiningar við þann söfnuð þar sem þau starfa séu afar mismunandi og mest háð áhuga viðkomandi prests og áliti hans/hennar á mikilvægi þess að tengja æskulýðsstarfið starfi safn- aðarins. Ósjálfrátt fer maður að bera starfið hér heima við það sem maður sér hjá öðrum og vissulega er það til- gangur ráðstefnu eins og þessarar að fá tækifæri til þess. Við íslending- arnir vorum sammála um að æsku- lýðsstarf okkar kirkju væri ekki svo illa á vegi statt eins og það danska og að við værum á réttri leið. Fyrir- myndir virtist okkur helst að sækja til Finna og Svia því þeirra æskulýðs- starf er byggt upp í mjög nánum tengslum við söfnuðina. Útgáfu- starfsemi er einnig mikil hjá þeim og maður fyllist alltaf aðdáun og dá- lítilli öfund þegar maður blaðar í gegnum langa lista af bókartitlum. Hvað verður um söngvana? í öllu æskulýðsstarfi er mikið sungið og það gerðum við líka. Inni- hald söngvanna sýnir dálítið hvað er verið að vinna með i hverju Iandi. Kærleikur Guðs er að sjálfsögðu tema sem gengur hjá öllum en mjög gaman var að taka þátt í sænskri guðsþjónustu með altarisgöngu sem um leið var drama um brauðundrið. Textar voru lesnir frá því þegar Jesú mettaði mannfjöldann og söngvarn- ir fjölluðu um neyð heimsins í dag og um leið voru þeir hvatning til að reyna að breyta neyðarástandinu með því að við hin ríku deildum með okkur af auði okkar. En hvað gerir maður með alla nýju söngvana sem maður lærir á svona ráðstefnu? Gætu þeir hugsanlega nýst í okkar starfi? Já, alveg örugg- lega. En hvar lenda og hvar hafa allir „nýir söngvar" lent í gegnum árin? Við kanski gætum gert eins og Sviar að allir sem læra nýja söngva á ferðum sínum senda þá til eins aðila sem síðan kemur þeim út í einföldu hefti með nokkurra ára millibili. Manni dettur bara í hug að æsku- lýðsstarfið ætti að fá sinn eigin söng- málastjóra, þvi að ekkert á eins greiðan aðgang að unglingum í dag og tónlist. En við erum svo sem ekki alveg á flæðiskeri stödd með söng- bókina í lífi og leik og ýmislegt fleira. 22 — VÍÐFÖRLI

x

Víðförli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.