Bæjarins besta - 22.12.1999, Síða 8
Guðsþjónustur
um jól og áramót
Hólskirkja í Bolungarvík
Si: Agnes M. Sigurðardóttir
Aðfangadagur jóla
Hátíðarguðsþjónusta kl. 18.00
Jóladagur
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.00
Gamlársdagur
Hátíðarguðsþjónusta kl. 18.00
Sjúkrahúsið í Bolungarvík
Sr. Agnes M. Sigurðardóttir
Jóladagur
Helgistund kl. 15.15
Melgraseyri eða Nauteyri
(fer eftir færð og öðrum atvikum)
Sr. Baldur Vilhelmsson
Annar dagur jóla
Hátíðarmessa kl. 14.00
V atnsfj arðarkirkj a
Sr. Baldur Vilhelmsson
Jóladagur
Hátíðarmessa kl. 14.00
Súðavíkurkirkja
Sr. Magnús Erlingsson
Jóladagur
Hátíðarmessa kl. 14.00
Hnífsdalskapella
Sr. Skúli Ólafsson
Aðfangadagur jóla
Aftansöngur kl. 18.00
ísafjarðarkirkja
Aðfangadagskvöld jóla
Sr. Magnús Erlingsson
Miðnæturmessa kl. 23.30
Jóladagur
Sr. Skúli Ólafsson
Hátíðarmessa kl. 14.00
Gamlársdagur
Sr. Magnús Erlingsson
Aftansöngur kl. 18.00
Fjórðungssjúkrahúsið
á Isafirði
Sr. Skúli Ólafsson
Jóladagur
Helgistund kl. 15.30
Suðureyrarkirkja
Si: Valdimar Hreiðarsson
Aðfangadagur jóla
Aftansöngur kl. 18.00
Jóladagur
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.00
Staðarkirkja í Súgandafirði
Sr. Valdimar Hreiðarsson
Gamlársdagur
Aftansöngur kl. 18.00 Blysför til
kirkju frá Brekkukoti kl. 17.15
Flateyrarkirkja
Sr. Agnes M. Sigurðardóttir
Aðfangadagskvöld jóla
Hátíðarguðsþjónusta kl. 22.30
Annar dagur jóla
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.00
Sunnudagur 2. janúar
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.00
Sólborg á Flateyri
Sr. Agnes M. Sigurðardóttir
Annar dagur jóla
Helgistund kl. 14.00
Holtskirkja í Önundarfirði
Sr. Guðrún Edda Gunnarsdóttir
Annar dagur jóla
Hátíðarmessa kl. 14.00
Nýársdagur
Hátíðarmessa kl. 14.00
Mýrakirkja í Dýrafirði
Sr. Guðrún Edda Gunnarsdóttir
Jóladagur
Hátíðarmessa kl. 16.00
Sæbólskirkja á
Ingjaldssandi
Sr. Guðrún Edda Gunnarsdóttir
Tími jólamessu ákveðinn síðar
Þingey rarkirkj a
Sr. Guðrún Edda Gunnarsdóttir
Aðfangadagur jóla
Aftansöngur kl. 18.00
Jóladagur
Hátíðarmessa kl. 14.00
Gamlársdagur
Aftansöngur kl. 16.00
gert upp
og litið til framtíðarinnar
Nú þegar líður að áramótum leitaði blaðið til nokkurra
einstaklinga og bað þá að líta yfír árið sem er að kveðja og
gera það upp. Og jafnframt að horfa til komandi árs eða ára
og aðgæta hvað þeir telji að framtíðin kunni að bera í skauti
sér. Svörin fara hér á eftir.
•• r
Onundur Jónsson, yfirlögregluþjónn á Isafirði
Mttúra ísluttds
minmrásif/
Áramót, aldamóteðaárþús-
undamót eru framundan og
því rétt að líta um öxl og rifja
upp það sem minnisstæðast
er frá líðandi ári. Þetta ár var
mér gott og ég mun minnast
þess með þakklæti að hafa
fengið að lifa það.
Atvik úr einkalífmu koma
fyrst upp í hugann. Við hjónin
erum nýbúin að kaupa okkur
einbýlishús í Firðinum og
selja fbúð sem við áttum á
Eyrinni. Þá finnst mér bera
hátt í minningunni fráfall
kærrar frænku minnar, Elísa-
betar Öldu Kristjánsdóttur.
Af heimamálum er ekki vafi
á því, að atvinnuástandið hér
á Vestfjörðum mun lengi
verða í minnum haft. Þetta
árið er kannski ekki svo nijög
frábrugðið öðrum að þessu
leyti, en ég held að við séum á
vendipunkti núna. Atvinnu-
mál okkar fara smám saman
batnandi. Það á eftir að stofna
ný fyrirtæki og ferðamanna-
straumur á eftir að aukast til
rnuna hingað vestur. Vegakerf-
ið batnar með hverju árinu og
veðurathugunarstöð er komin
á ísafirði, þó að hún hafí verið
sett hér upp á röngum stað.
Enn eitt snjóflóðið skemmdi
skíðaparadísina okkar á Selja-
landsdal, rétt þegar skíða-
landsmótið átti að byrja. Það
kom þó ekki í veg fyrir að
rnótið færi frani með glæsi-
brag. Starf sjálfboðaliða
skíðaunnenda er virðingar-
vert. Þeir ætla enn af stað að
laga eftir flóðið. Ég dáist að
þeim.
Af landsmálunum eru mér
minnisstæðust umbrot nátt-
úrunnaráSuðurlandinu. Nátt-
úran okkar er að minna á sig,
hún ætlar að hrista upp í okkur
á komandi ári. Þá er ekki hægt
að líta hjá deilunum um Eyja-
bakkana og stöðu landsmanna
gagnvart eign okkar, landinu
og auðlindum þess. Hvað leyf-
ist okkur Islendingum að nýta
af þessum auðlindum okkar?
Ekki hvalina. Fiskurinn er
kominn á lista „umhverfis-
sinna" yfir dýr í útrýmingar-
hættu. Náttúra Islands komin
undir yfirráð sjálfskipaðra er-
lendra hópa manna, sem finna
köllun sína í að gera landið að
einumallsherjarþjóðgarði.Af
hverju á svo landinn að lifa?
Heimsmálin eru hörmungar
og aftur hörmungar. Mönnum
kennt þar um flest- með réttu.
Styrjaldir, þar sem óvopnfærir
menn eru helsti skotspónninn
og náttúruhamfarir þar sem
þúsundir farast vegna lélegra
bygginga, svika verktakanna.
Ég bið fyrir þessu fólki og
kvölurum þess. Megi nýtt ár
fara mildari höndum um íbúa
Jarðarinnar en fyrri ár hafa
gert. Gleðilegt ár.
Sendum okkar bestu óskir
©
Efnalaugin Albert ehf
Pollgötu 4 - ísafirði
gleðilega jóla- og nýárshátíð
Suðurgötu 9 - Isafirði
sími 456 4580
þökkum árið sem er að líða.
Mjólkursamlag Isfirðinga
*
Wardstúni - Isafirði
rc^ |> BÍLAVERRSTÆÐI VC y ÍSAFJARÐAR t
Seljalandsvegi i
V sími 456 4444
" v
ÍGarða^) smJB m m m w 1 Brautarholt 8 • 400 Isafjörður mwm Wm \ Símar 852 3956 og 8461213 HÁR'&AHITT
Guðbjörg Hannesdóttir
Brautarholti 8 - Isafirði Pollgötu 4 - ísafirði
8
MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1999