Bæjarins besta - 22.12.1999, Blaðsíða 10
- segir Grettir Engiibertsson frá Mýri í Snæfjaiiahreppi, kennari í
Uppsöium í Svíþjóð og fyrrum kennari við Menntaskóiann á ísafirði
„Við höfðum frá upphafí
þá áætlun að búa til skiptis
5 ár á Islandi og 5 ár í Sví-
þjóð“, sagði Grettir Engil-
bertsson í Uppsölum í
tölvuspjalli við Bæjarins
besta. „Sú áætlun hefur
raskast af ýmsum ástæðum.
Stína á ættingja sína hér.
Synir okkar eru hér í skóla
og hafa öll sín tengsl hér.
Við verðum hér þangað til
þeir ljúka námi. Það verður
dýrara með hverju ári að
flytja búslóð milli landa, bú-
slóðin vex og farmgjöldin
hækka.“
Dýrt að
skreppa heim
„A tímabili fórum við
þriðja hvert ár til íslands.
En efnahagurinn leyfir það
ekki lengur. ísland er eitt
dýrasta ferðamannaland
heims. Það er einokunar-
verð á flugfargjöldum til Is-
lands og það er óhjákvæmi-
legt að gista í Reykjavík ef
maður ætlar út á land. ís-
landsferðir okkar verða að
stjórnast af efnum og erind-
um. Margir Islendingar hér
fara til Islands á hverju ári.
En þá hafa þeir fórnað tíma
og peningum, sem hægt
væri að nota til þess að ferð-
ast til annarra landa. Við
fórum fyrir nokkrum árum
til Irlands. Maður fær þar
reglulega heimalandstil-
fmningu enda er ég kominn
af Auði djúpúðgu."
Grettir kenndi við Mennta-
skólann á ísafírði á dögum
Jóns Baldvins og Bryndísar.
Hann hefur nú verið búsettur
í Svíþjóð í fjölda ára. Stína
eiginkona hans, sem er sænsk,
kennir börnum innflytjenda
sænsku og sjálfur kennir hann
íslenskum börnunt íslensku.
Synir Stínu og Grettis eru
þrír. Sæmundur, sem ólst upp
á ísafirði til sex ára aldurs, er
að ljúka háskólanámi í tölvun-
arfræði en leggur aðallega
stund á tónlist. Hann er í tón-
listar- og skemmtunarflokk-
num Moder Jord Massiva,
sem hcfur komið víða fram á
rokkhátíðum og gefur út plöt-
ur. Snorri og Kolbeinn eru í
menntaskóla.
- Mikill munur á jólahald-
inu seinni árin og í gamla daga
fyrir vestan...
„Eftir því sem ég man frá
jólunum í æsku minni, var
mikil tilhlökkun og hátíða-
skap í tengslum við jólin. I
minningunni verðurlitlakotið
á Arbakka miklu stærra en
það var í raun og veru. Jóla-
skapið fékk aukna áherslu af
samanburðinum við vetrar-
veðrið úti. Eg man, að maður
átti ekki að fara í sparifötin og
ekki gera neitt hátíðlegt, fyrr
en kiukkan nákvæmlega 18 á
aðfangadag. HeimaáMýri var
mikilvægt að hlusta á jóla-
messuna í útvarpinu. I Svíþjóð
byrjar jólahaldið á aðfanga-
dagsmorgun. Eg vil nú orðið
miða mitt hátíðahald við nátt-
úruna og held upp á vetrarsól-
Grettir Engilbertsson.
stöðurnar."
Lútfiskurinn daufari
en hlandskatan
„Hér er haldið öðruvísi upp
á jólin, en það er mest vegna
þess að tímarnir hafa breyst.
Sjónvarpið skiptir miklu máli
í jólahaldinu. Hér er alltaf
sýnd klukkutíma syrpa af úr-
valsmyndum frá Disney á að-
fangadag. Það missir enginn
af því. I Svíþjóð er borðaður
lútfiskur á aðfangadag, með
jafningi og kryddpipar. Mér
finnsl hann bragðlaus, að
minnsta kosti samanborið við
hlandskötuna. En við borðum
líka bæði sænska skinku og
íslenskt hangikjöt á jólunum.
Það er Islendingur, sem lætur
reykja hangikjötið hér í Sví-
þjóð. Það má ekki flytja unnar
kjötvörur inn hingað frá Is-
landi, vegna Evrópubanda-
lagsins. Þegar komið er fram
á þriðja f jólum, er yngri kyn-
slóðin farin að þreytast á
baráttunni við jólamatinn. Þá
bökum við jólapizzu.“
ísfirskt þjóðfélag...
- Og fleira en jólahaldið er
væntanlega ólíkt...
„Það er munur á veðurfari,
landslagi og samgöngum. En
mestu máli skiptir munurinn
áþjóðfélagsháttum.Annar ís-
lendingur hér í Uppsölum
sagðist hafa flutt úr klíkuþjóð-
félagi í biðraðaþjóðfélag. A
Islandi virðist skipta mestu
máli, hverja maður þekkir. Ég
gat varla bjargað mér á Isa-
firði, ég gat ekki lærl utan-
bókar nöfnin á öllum einstakl-
ingum, brandarana um þá og
hvernig þetta fólk tengdist
hvert öðru. Isfirskt þjóðfélag
er heill köngulóavefur af
mannlegum tengslum, þar
sem einhver Kiddi Halla Gúm
er frændi Sigga Dúdda Kidd
og er að ganga á eftir Gunnu
Adda Pé. Það er varla hægt að
finna þetta fólk í símaskránni.
Ég var þó betur staddur en
aðkomufólk að sunnan, ég átti
ættingjaá Isafirði. Margir hafa
gefist upp eftir einn vetur, því
þeir komust ekki inn í samfé-
lagið.“
Staðlaðir Evrópu-
ráðherrarassar
„I Svíþjóð skiptir það miklu
máli að fylla út rétt eyðublöð
á réttum tíma. Mér hefur loks-
ins tekist að læra það. En
vegna Evrópubandalagsins er
þetta nú að þróast lengra. Evr-
ópubandalagið er versta skrif-
stofuríki heims, að sumu leyti
verra en Sovétríkin heitin. I
þorpi hér nálægt voru dag-
mæður vanar að sleppa börn-
um út á róló. Einn daginn var
búið að hækka allar rólurnar
svo að börnin komust ekki
sjálf upp f þær. Það kont í ljós,
að Evrópubandalagið hafði
gefið út tilskipun um staðlaða
hæð á rólum. Þær pössuðu
undir rassana á Evrópuráð-
herrunum, en það varð að lyfta
börnunum upp í þær svo að
dagmæðurnar urðu að halda
til úti á róló.
Meðalaldur Svía er miklu
hærri en Islendinga. Þetta eru
ekki bara tölur, það birtist í
þjóðfélagslífinu. Hverfin þar
sem S víar búa hér í Uppsölum
eru eins og elliheimili, - ís-
lenskt þjóðfélag er eins og
torfæruakstur á diskóteki
samanborið við það. En Sví-
þjóð er lfka fjölþjóðasamfé-
lag. í hverfum, þar sem inn-
flytjendur búa, er líf og fjör
og litskrúðugt samfélag. Hér
þarf maður ekki að ferðast til
annarra landa, þau eru í næsta
húsi. Hér búa Kúrdar, Arabar,
Persar, Bengalir, Bosníumenn
og 80 önnur þjóðerni. Þetta
fólk sér um það að lækka með-
alaldurinn. Blómlegasta og
fjölbreyttasta grein atvinnu-
lífsins hér í Uppsölunt er trú-
arbragðaiðn aðuri n n.
Aðalmunurinn fyrir mig
persónulega er, að hér mætast
straumar frá öllum löndum
heims og öllurn tímabilum
sögunnar og að hér hef ég
aðgang að einu af stærstu
bókasöfnum heims. ísafjörður
er vissulega heimsborg á sína
vísu, meiri heimsborg en
Reykjavík. en sjóndeildar-
hringurinn er þröngur. Það
finnst mörgum þægilegt, en
ég vil gjarnan sjá sjóndeildar-
hringinn og eitthvað út fyrir
hann.“
Með legó í tíma í MÍ
-Eru gamli MI og kennslan
þar enn ofarlega í huga þér í
huga þér?
„Ég man varla neitt frá þeim
tíma. Stína man eftir nemend-
um, bæði nöfnum og útliti, en
ég hef aldrei fjárglöggur verið
og enn síður mannglöggur.
Minnisdiskurinn í mér er líka
orðinn troðfullur af atburðum
síðari ára. Ég man helst eftir
kvennaverkfallinu 1976, það
var tilbreyting í því. Við karl-
kennarar tókum börnin með í
kennslustundir meðan kven-
kennararnir voru á fundi. Ég
tók nteð legó handa þeim og
þau sátu nteð það á gólfinu
meðan ég reyndi að kenna.
En nemendurnir voru í of
miklu stuði til að geta lært.“
- Þú munt vera að kenna
íslenskum börnum...
„í S víþjóð og í mörgum öðr-
um löndum hafa börn innflyj-
enda rétt á móðurmálskenn-
slu. Þetta er mannréttindamál
ogerírauninni ómissandi fyr-
ir þjóðfélagið sem fyrir hendi
er. Án þessarar kennslu verða
ðendum okkar bestu óskir um gleðilega jóla- og nýárshátíð og þökkum árið sem er að líða.
r
Gámaþjónusta Vestfjarða
S 456 4340 & 456 4760
f
Ametyst
hár- og förðunarstofa
Aðalstrœti 22 - ísafirði
x
Eiríkur &
Einar Valur hf
Skeiði, ísafirði
r
Trésmiðjan ehf.
Strandgötu 7b - Hnífsdal
Sími 456 3622
10 MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1999