Bæjarins besta


Bæjarins besta - 22.12.1999, Qupperneq 14

Bæjarins besta - 22.12.1999, Qupperneq 14
Úr brúðkaupsveislunni á jóladag fyrir 50 árum. Ungu brúðhjónin ásamt foreldrum sínum. Hjónin Hildur Einarsdóttir og Benedikt Bjarnason í Bolungarvík eiga gullbrúðkaupsafmæli á jóladag „Við getum ekki hugsað okkur að fara héðan“ Á jóladag er gullbrúðkaupsafmæli sæmdarhjónanna Hildar Einarsdóttur og Benedikts Bjarnasonar í Bolung- arvfk. Þegar þau játuðust hvort öðru í Hólskirkju fyrir fimmtíu árum var ekki aðeins lagður grunnur að löngu og farsælu hjónabandi, barnaláni og blessun, heldur tengdust þá einnig þær tvær fjölskyldur sem voru horn- steinar atvinnulífs og mannlífs í Bol- ungarvík. Feður þeirra Hildar og Benedikts, athafnamennirnir Einar Guðfinnsson og Bjarni Eiríksson, voru umsvifa- miklir í útgerð, fiskverkun, verslun og þjónustu í bænum. Því fór fjarri að aðrir kæmust með tærnar þar sem þeir höfðu hælana. Samkeppnin milli þeirra var mikil en jafnframt heiðar- leg og drengileg eins og þeir sjálfir. Vissulega þótti nokkrum tíðindum sæta í Bolungarvík, þegar börn þess- ara keppinauta og bæjarhöfðingja felldu hugi saman og gengu að eigast. Þessi fjölskyldumynd var tekin daginn þegar Halldóra fermdist. Einar stendur við hlið syst- ur sinnar, Omar er til vinstri á myndinni en Bjarni til hœgri. Þau Hildur og Benedikt búa í veglegu húsi sem þau bygg- ðu sér við Völusteinsstrætið um miðjan sjöttaáratuginn og hefur nú verið heimili þeirra bráðum hálfan fimmta áratug. I upphafi búskaparþeirra voru húsakynnin öllu þrengri - tvö kjallaraherbergi sem þau fengu á leigu inni á Grundum. Þar fæddist þeim árið 1951 fyrsta barnið, sonurinn Einar, sem nú er forstjóri OLÍS. í öllu rýmri leiguíbúð við Skólastíg fæddist árið 1955 dóttirin Halldóra, sem er læknaritari og húsmóðir í Danmörku. Yngri synirnirtveirlitu síð- an dagsins ljós í nýja húsinu, þannig að börnin fæddust öll heima eins og þá var títt. Bjarni er fæddur 1957, en hann er framkvæmdastjóri eigin fyrirtækis, B. Benedikts- son ehf. í Reykjavík, sem verður með hverju árinu um- svifameira í útflutningi sjávar- afurða. Ómar er yngstur, fæddur 1959. Hann er fram- kvæmdastjóri Islandsflugs og hefur ýmislegt fleira á sinni könnu. Öll börn þeirra Hildar og Benedikts eru í hjúskap og barnabörnin eru komin nokk- uð á annan tuginn. „Við höfum átt sérstöku barnaláni að fag- na“, segja þau hjónin einum rómi. Þegar gesti ber að garði í „Hidduhúsi“ við Völusteins- stræti er þeirn ósjaldan boðið til baðstofu. Þarerum aðræða notalegt kvistherbergi með skarsúð, sem minnir öllu frek- ar á byggðasafn en setustofu í lok 20. aldar. Þarna var lengst af geymsluherbergi en hús- móðirin er höfundur þessarar vistarveru þar sem saman er komið margt gamalla hús- gagna og merkisgripa frá fjöl- skyldum þeirra beggja. Varð snemma skotin í Benna Þegar gest ber að garði nær jólum árið 1999 virðist við hæfi að spyrja þau Benedikt og Hildi um upphaf sambands þeirra, sem þau staðfestu með heilögu heili á jóladag fyrir hálfri öld. Og jafnframt að biðja þau að greina frá fyrstu búskaparárunum, þegartilver- an var að mörgu leyti með öðrum brag en nú er. Vissulega höfðu þau Bene- dikt og Hildur þekkst frá því að þau voru börn. I afmælis- fagnaði þegar Benedikt varð sjötugur ávarpaði Hildur eig' inmann sinn í léttum dúr og Ijóstraði því upp, að hún hefði fyrst orðið skotin í honum þegar hann var sjö ára. „En þaðhefurörugglegaekki stað- ið nema í vikutíma eða svo. Á þeim árum var maður ekki skotinn í strákum lengi í einu“, segir hún. Ungi maðurinn fór hvergi! Það var síðan eftir að Hildur kom heim af húsmæðraskóla í Danmörku sem nánari kynni tókust. Þau kynni breyttu snar- lega þeim áformum sem Benedikt hafði þá um næstu framtíð. Bjarni faðir hans hafði lengi verið umboðsmað- ur Eimskipafélags Islands og var búinn að ráða soninn til fyrirtækisins McGregor & Co. í Hull, sem hafði umboð fyrir Eimskipafélagið. Tilgangur- inn með þeirri ráðstöfun var ekki síst sú, að pilturinn ungi næði frekara valdi á enskri tungu, en hann hafði áður lok- ið prófí frá Verzlunarskóla Is- lands og stóð á tímamótum. Hann var í þann veginn að fara utan, en „þá birtist honum ung stúlka, sem hann féllfyrir, og varð hans örlagadís. Aform breyttust heldur betur og örlög urðu ekki umflúin. Astarneistinn sem kviknað hafði, glœddist. Ungi maður- inn fór hvergi. Varð hjálpar- hella föður síns við fyrirtœki hans og naut hlýrrar viðtöku vœntanlegra tengdafor- eldra“, eins og Benedikt komst að orði um sjálfan sig á sjötugsafmæli sínu árið 1995. Og lífið gekk sinn gang heima í Bolungarvík. Þau Hildur og Benedikt trúlofuð- ust formlega á gamlársdag 1948 og gengu í hjónaband á jóladag ári síðar. Húsnæðisvandræði í byrjun búskapar „Þá blés ekki byrlega að komast í húsnæði hér í Bol- ungarvík, ólfkt því sem er nú er“, segir Benedikt. „Við vor- um í hreinustu vandræðum að fá húsnæði. Loks voru það ljúf frænka mín að austan og eiginmaður hennar hér, þau Guðlaug Kristinsdóttir og Eyjólfur Júlíusson, semhlupu undir bagga og buðu okkur tvö herbergi í kjallaranum hjá sérinni áGrundum. Herbergin voru síðan innréttuð þannig að annað var svefnherbergi sem var jafnframt setustofa en hitt herbergið var í senn eldhús og borðstofa. Hins veg- ar var engin snyrtiaðstaða þarna niðri og við urðum að deila henni með fólkinu uppi. Og þetta gekk alveg sérstak- lega vel. Það voru einstaklega góð ár sem við áttum á þessum stað og sambýlið var eins og best verður á kosið.“ Kolakynding og þvottabretti 14 MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1999

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.