Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2011, Síða 3

Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2011, Síða 3
Hinsegin dagar í Reykjavík eru nú haldnir í þrettánda sinn. Það sem eitt sinn var lítil eins dags hátíð, sem fimmtán hundruð gestir sóttu, hefur vaxið og dafnað með hverju ári og er núna litrík fjögurra daga hátíð sem 80–90 þúsund manns sækja. Hinsegin dagar hafa ótrúlega þýðingu fyrir samkynhneigða, tvíkynhneigða og transfólk á Íslandi. Hátíðin hefur eflt fólki kjark og verið því vettvangur til að standa stolt frammi fyrir samborgurum sínum. Hinsegin dagar eru staðfesting þess að samstaðan færir okkur djörfung og virðingu þegar rétt er á málum haldið. En hátíðin hefur ekki eingöngu verið hinsegin fólki ávinningur í baráttu þess. Hinsegin dagar eru einn litríkasti þátturinn í menn- ingarlífi Reykvíkinga og njóta meiri vinsælda en flestir aðrir viðburðir á Íslandi. Viðurkenningin sem þjóðin sýnir með þátttöku sinni, gleði og stuðningi er stærsta inneign Hinsegin daga. Stjórn og samstarfsnefnd Hinsegin daga hafa undanfarið ár unnið að hátíðinni sem fram fer dagana 4.–7. ágúst, og boðið er upp á litríkan hóp listamanna og fjölbreytt úrval atburða. Á þeim erfiðu tímum sem þjóð okkar hefur gengið í gegnum síðustu ár er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að leita samstöðu og gleði á þann einlæga hátt sem einkennir Hinsegin daga. Við bjóðum Íslendinga og erlenda gesti velkomna á þrettándu Hinsegin daga í Reykjavík og óskum ykkur góðrar skemmtunar. V E l k o m i n Á H i n S E g i n d a g a Í R E y k j a V Í k For the thirteenth time, we celebrate Gay Pride in Reykjavík. Our cozy little pride, originally visited by some fifteen hundred onlook- ers, has blossomed and evolved into a colourful four day celebra- tion that attracts well over 80 thousand guests from all over the world. Reykjavík Gay Pride is, in fact, one of the biggest small Prides in the world. Gay Pride is an unquestionably important event for lesbian, gay, bisexual and transgender people in Iceland. The festival promotes visibility and courage and provides us with a platform to manifest our pride before our fellow citizens. The celebrations do not only mark a successful stage in our struggle; Gay Pride is also one of the most vibrant and popular events in Reykjavík’s cultural calendar. By participating in the event in such large numbers, the Icelandic people have shown us valuable support, recognition and respect. This year, we have organized a programme that runs from 4–7 August, combining a colourful array of Icelandic artists and varied events. Even though our nation’s economy has seen brighter days, the Reykjavík Gay Pride aims to promote joy, solidarity and support for one another during times of hardship. It only remains to welcome Icelandic and foreign guests to the thirteenth Reykjavík Gay Pride. We hope you have a wonderful time!

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.